Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2018

Og öll borgarstjórnin þjónaði honum eins og englaskari af Hymmnum

perAuðvitað tímir hann ekki baka vöpplur ofan í Reykvíkinga enda aungar kosninga í vor og þar með óþarfi að vera með lýðskrum og uppgerðaralþýðlegheit. En svona er nú krataeðlið: tóm sýndarmennska, auðvaldssleikjukapur og loddaramennska. Fyrir nokkrum dögum skjögraði þetta kratanúmér áfram á hækjum, af því hann var með gigt eins og góði dátinn Svejk, en á menningarnótt ætlar hann að hoppa um göturnar eins og fjallageit. Ætli maðurinn hafi komist á andarnefjulýsi til að smurja á knén á sér, eða tók Grunstein læknir hann til meðferðar og læknaði hann eins og skot?

Nú hafa komið fram óskir þess efnis að Brynjari Vondulykt verði ekki hleypt út á menningarnótt og er því borið við að hann sé illa skemmtanavandur maður, ófyrirsjánlegur í aðgerðum og af honum leggi almenn óþrif, mengun og mannvonska og þá ekki síður kvennvonska. Í morgun, á þriðjudagsmorgni, sá á eftir þessum óþrifagemlingi hvar hann skeiðaði eins og önd á eftir tveimur túristakerlingum og mátti sjá langar leiðir hvaða erindi hann í við þær. Þetta var á miðjum Fríkirkjuveginum. Og hann komst aftan að annrri þeir og sveiflaði henni út í tjörn, hvar gæsirnar tóku í móti henni, en hinni kvinnunni dröslaði hann á eftir sér uppmeð Fríkirkjunni og hugðist taka hana frillutaki þar að kórbaki.

Öll borgarstjórnin, að flækjuhærða kratahöfðingjanum meðtöldum, horfðu á aðfarir Brynjars Vondulyktar út stórna glugga á Ráðhúsinu og aunginn, segi og skrifa aunginn, hreyfði legg eð lið ferðakonunum til bjargar þó auðsætt væri að misyndisverk væri í uppsiglingu við Fríkirkjuna. Það var þá sem aldurhnigin portkona, reykvísk að atvinnu, margelfd við hvurja raun, sá hvað verða vildi og hraðaði sér á vettvang. Um það bil sem hún snaraðist fyrir hornið að kórbaki var Vondalyktin að því komin að fá vilja sínum framgengt, og sú sem fór í tjörnina var í óðaönn að fara úr blautum leppunum. Portkonan aldraða sá að ekki mátti tæpara standa og greip um illalyktandi hreðjar Brynjars Vonulyktar og teymdi hann eftir sér meðfram kirkjunni, yfir strætið og út að Tjörn, en þar kastaði hún honum af hendi á hauin út í vatnið. Skipti engum togum að þar var nær drukknaður Brynjar Vondalykt og hefði sjálfsagt dáið þar ef borgarstjórnin hefði ekki öll komið þjótandi til að bjarga honum, leiða hann til stofu Ráðhússins þar sem hann var traktéraður á rótsterku og heitu sykurkaffi og enn rótsterkara brennivíni. Og Vondalyktin fór ofan í nærbuxurnar sínar og dró þaðan upp dulítinn, vatnsheldan plastpoka með hvítu dufti og fékk sér rækilega í nefið af því; og öll borgarstjórnin þjónaði honum eins og englaskari af Hymmnum.


mbl.is Ekkert vöfflukaffi hjá Degi í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengið framhjá bestu lúðrasveit landsins og hún svívirt og smáð

StonesEn hvers á okkar sæli stjörnusýslumaður Stónes að gjalda að fá ekki að vera með hinum lúðraveitarmönnunum í Hljómskálgarðinum. Stjörnusýslumaðurinn Stónes, nú lögreglustjóri yfir óþjóðalýð suður með sjó, sem klæðist lúðrasveitarbúning áhverjum degi og sefur gjanan í honum á nóttinni, honum er meinaður aðgangur að lúðrasveitakeppni sem hann hefði svo auðveldlega unnið. Í þetta sinn hefir Stjörnusýslumaðuinn verið borinn pólitískum ráðum og nú skal hann gjalda þess að vera sannkristinn Sjálfstæðisflokksmaður.

Ferill Stjörnusýslumannsis Stónes er glæsilegur og spannar landið, miðin og útlönd líka. Hann blés í lúður með söngsveitinni Rolling Stones á stórtónleikum á Alaska fyrir nokkrum árum. Og í Árnesssýslu kvartaði drykkfelldur bóndakurfur undan því að lúðrasveitarmaður hefði veitt sér eftirför, hvar hann ók eftir þjóðveginum, troðið sér frammúr og nauðhemlað fyrir framan sig svo við lá árekstri. Ekki nóg með það, heldur valhoppaði þessi lúðrasveitarmaður út úr bifreið sinni og sektaði bóndann og svipti hann ökuréttindum á staðnum fyrir meinta ölvun við akstur.

Þá hefir Stjörnusýslumaðurinn Stones verið til staðar á sogarstundum, en þegar Helguvíkurundrið lést eftir harða sjúkdómslegu, blés Stjörnusýlumaðuinn útfararsálm yfir þessu bráðkvadda óskabarni Sjálfstæðisflokksins, sem því miður kafnaði í eigin skítalykt langt um aldur fram. Þegar öll afrek Stjörnusýslumannsins Stónes með lúðurinn að vopni eru rakin og tíunduð má ljóst vera, að með því að ganga framhjá honum, þegar boðið var til lúðrasveitakeppni, hefir hann verðið svívirtur á þann veg af opinberum aðilum að hlítur að varða við lög. Því dæmist rétt vera, að sveitarstjórn Reykjavíkur og þá einkum hreppsnefndaroddvitinn Dagur sæti þyngstu refsingu í eins mörgum vandahöggum og þau frekast þola og erfiða síðan ævilangt í Rasphúinu að Litla Hrauni í Árborgarhjáleigu. 


mbl.is Uppgjör lúðrasveitanna nálgast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað var karlinn að gera með lúsugan hund í starfsliði sínu?

lus.jpgHvernig stendur á því að merkilegur og gáfaður maður eins og bandaríkjaforseti ræður hund í starf opinbers ráðgjafa við hirð sína. Og ekki nóg með að hann hafi ráðið hund, heldur virðist hundurinn, eftir orðum forsetans að dæma, vera grálúsugur í þokkabót. Ætli sé alveg öruggt að forsetinn hafi ekki fengið kvikt á sig við að umgangast þennan ófétislega hund, að karlskepan sé ekki orðinn undirlagður af hundalús sjálfur? Sneplótt hárstrýið á hausnum á honum bendir að minnstakosti til lúsafaraldurs, eða jafnvel hann hafi haft geitur í hári sínu í æsku.

Og er þá ekki viðbúið að okkar forsætisráherra hafi smittast af bandarískri hunda- og forsetalús Þegar hún hitti hinn mæta mann fyrr í sumar? Já, og forsætisráðherrann hafi borið nitina og kanski pöddur líka í forseta Íslands og fjármálaráðherrann okkar, sem Gvuð forði okkur öllum frá? Kanski sitjum við að lokum uppi með lúsastjórn og það vita víst allir hvað soleiðis stórn heitir.

Annars er ekki allt neikvætt við lúsina. Heyrt hefi eg sögu af bráðgáfuðum og mikilvirkum bónda, sannkölluðum bústólpa og landstólpa, oddvita og hreppstjóra, sem var svo vel að sér að hann át lúsina úr hausnum á sjálfum sér, sér til heilsubótar. Hann ráðlagði hverjum manni að eta að minnsta kosti 10 pedikulur á fastandi maga á morgnanna, því sá sem það gerði samviskusamlega þyrfti ekki að óttast lífshættuleg meinfár eins og krabba eða hjarta- og æðasjúkdóma. Þá garíntéraði hann hvurjum manni, sem þetta gerði, auk þess að taka inn 30-40 pedikulur til viðbótar á dag ævarandi ofsafjör til kvenna; og konur sem þetta gerðu væru ævarandi suðupottar neðan nafla til æviloka. Af þessu má ráða, að ef ríkisstjórnin er orðin lúsug þá á hún að brúka lýsnar sér til heilsubótar og ríkja þar með til eilífðar.

Svo var líka barnakennari sem hóf kvæði sem hann orkti á þessa leið:

,,Þó liggi lús hjá saumi
láttu vera að klóra þér" ...


mbl.is Trump kallar Omarosu herfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilnæm barátta við hryðjuverk og nauðsyn þess að koma í veg fyrir hryðjuverk á Íslandi

stonesAuðvitað er hentugra fyrir ærða breska valdahafa og lögreglu þeirra að líta á umferðaróhappið við þinghúsið þeirra sem hryðjuverk. Á sama hátt lítur forsætisráðherra Breta á klósettferðir karlsins sín sem hryðjuverk, en verður hún einlægt að flýja úr húsinu þeirra vegna. Svo er undurgott fyrir gamla, úrkynjaða auðvaldið á Bretlandi að geta gortaf af hryðjuverkum hjá sér þegar þeir eru að skrafa við þjáningabræður og systur frá öðrum gömlum og ráðsettum nýlenduveldum.

Þegar rannsaka skal hryðjuverk, þá er fyrst skylda rannsakenda að gefa í skyn opinberlega, að sá er hryðjuverkið framdi hafi verið 1. múslimi, 2. Rússi, 3. Íri, 4. kynvilltur kommúnisti af gyðingaættum. Best er að geta slengt öllum þessum fjórum atriðum á hryðjuverkafantinn, eða fantana og bæta við, að með aðgerðum sínum hafi ríkisstjónin og lögreglan komið i veg fyrir að djöfuls hryðjuverkahyskið heðfi drepið rúmlega helming þjóðarinnar ef ekki hefði komið til árvekni forsætisráðherra, drottningarinnar og lögregluforingjanna.

Nú er orðið nauðsynlegt fyrir okkur Íslendinga að koma okkur upp hryðjuverkum, að minnsta kosti tilraunum til hryðjuverka og láta fylgja, að með framgöngu sinni hefðu fjármálaráðherra og ríkislögreglustjóri, með aðstoð forseta Alþingis, afstýrt hrottafengnu hryðjuverki sem geðvilltir múslimar og góða fólkið hafi ætlað að fremja. Með fréttum af baráttu valdhafa við hryðjuverku væru myndir sem sýndu fjármálaráðherra og ríkislögreglustjóra í ofsafengnum slagsmálum við misyndismenn í búrkum, en forseti Alþingis lægi rotaður á mirði götunni eftir grjótkast Palístínubarna, sem hryðjuverkamenn hefðu flutt gagngert til landsins til að grýta helstu ráðamenn þjóðarinnar. Ef hægt verður að koma því inn í sauðarhaus þjóðarinnar að ríkisstjórnin, og þá alvega sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, hafi bjargað þjóðinni frá hryðjuverkaárásum þá mun traust þjóðarinnar á ríkisstjórninni og Sjálfstæðisflokknum aukast gríðarlega. (Ath. orðið ,,gríðarlegur" er tískuorð nú um stundir, einkum hjá hægrisinnuðum uppskafningum sem þekkja fá lýsingarorð annað en þetta ,,gríðarlegur" sem þeir lærðu hjá frammákonum í Flokknum á námskeiðum í Valhöllu.)


mbl.is Rannsaka atvikið sem hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir gætu komið sér upp hjarðsveinasjúkdómi

x41Sjálfstæðismaðurinn Erdógan er mikill hrosshaus og álíka gáfaður og Dónald Trump og flestir íslensku ráðherrarnir. Og nú eru þessir endemisauðvaldssauðir, Erdógan og Trump komnir í hár saman út af bandarískum ódámi, sem situr í fangélsi í Tyrklandi fyrir að hafa laumast aftan að Eródógani og pissað í frakkavasann hjá honum; Trumpur vill sinn pissara frjálsan en Erdógan er skapi næst að láta skella undan helvítinu og setja hreðjarnar á stöng, almenningi til sýnis á aðaltoginu í Ankara.

En þar eð Erdógan og Trumpur eru báðir NATO-dindlar, þá munu þeir eflaust hittast bráðlega á fundi hjá þessum innilegum góðgerðarsamtökum sem NATO er. Það er hiklaust hægt að mæla með því fyrir það félaga að fara saman á hóruhús eftir fundinn og skemmta sér eins og menningarástandi þeirra hæfir. Ef NATO fundurinn verður í Þýskalandi er gráupplagt fyrir strákana að bregða til Hamborgar og heilsa upp á stelpurnar í Herbertsstrasse. En verði fundurinn á Bretlandi verður að semda þeim götutelpur upp á hótél.

Nú, ef þeir Erdógan hefðu hjarðsveinasjúkdóm upp úr krafsinu með stelpunum þá væri það góð búbót fyrir þá og í ágætum stíl við það sem þeir hafa sagt og gert sem höfðingjar þjóða sinna. Svo er annað og það er það, að ekta hjarðsveinasjúkdómur mun að endingu rugla sjúklinginn ógurlega í höfðinu ef hann fær fram að ganga allt til enda. En í tilfelli Erdógans og Trumps er aungvu slíku til að dreifa því þeir eru svo ákaflega slæmir og ringlaðir í hausnum að geggjunarhluti hjarðsveinasjókdómsins hefir akkúrat aungin áhrif á þá.


mbl.is Erdogan: Sniðgöngum bandarískar vörur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann var allur flatlúsugur

kuk.jpgÉg eyði þér helvítis minkurinn þinn, hvæsti Máría Borgargagn að eiginmani sínum þegar hún hafði fullvissað sig á því að hann væri allur flatlúsugur. - Þær eru sumar svo stórar að það heyrist í þeim urrið! Hvar náðirðu í þetta helvíti, skepnan þín? Það var fárr um svör hjá Infriða Handreði; hann fór eitthvað að þvaðra um, að þega stórt væri spurt, o.s.frv., en Borgargagnið stöðvaði þvættinginn með því að gefa honum firnafast á kjaftinn svo hann riðaði allur um stun og valt síðan út af.

Máría Borgargagn gáði hvort maður hennar væri nokkuð örendur eftir höggið og hún þá orðin löggiltur morðingi. En það var ekki því að heilsa, helvítis óbermið Indriði Handreður var ekki dauður og enn síður flatlýsnar sem hann var búinn að koma sér upp. Og Máría reyndi enn og árfram að krefja hann sagna um hvað hann heðfi komist yfir þessi kvikindi. -Fékkstu þær úr endanum á Kolbeini, helvítið þitt? Eða af Sigurveigu Dræsu, eða Viggu Sleggju, hún er römm það hænsni og óþefinn leggur langar leiðir af henni.

Því miður varð Máría Borgargagn að búa við fullkominn upplýsingaskort hvað varðaði hið nýstárlega málefni sem upp var komið á líkama eiginmanns hennar. - Að ég skuli ekki hafa hrint þér fyrir björg þegar við vorum í fjallgöngunni um daginn, fnæsti Borgargagnið og rak aðra löppina miðlungis vinsamlega í síðuna á manngarminum sem lá flatlúsugur á gólfinu og dró þungt andann. Skömmu síðar vatt Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður sér inn úr dyrunum, áberandi rauðeygur og flóttalegur í framan. Hann var í jakkafötum, þ.e. hann var aðeins í jakkafötunum, aungvu öðru og það var svipljótt bremsfar á buxnarassinum. - Jahh, nú hefir heldur betur gefið á bátinn við Grænland, hugsaði Borgargagnið með sér þegar sá hið ógnvekjandi bremsufar. - Nú held ég verði gaman í flatlúsabæ.


mbl.is Hálft maraþon 14 ár í röð hjá Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nikótínböðullinn Kölski hjá Chelsea

drottÞað lítur helst út fyrir að forráðamenn Chelsea hafi verið þau sauðnaut að ráða tóbaksböðul sem framkvæmdastjóra hjá sér. Og víst er umræddur nikótínþræll alræmdur fyrir ofsalega reyktóbaksnautn, sem keyrir oft og iðulega um þverbak í öfgum. Á Ítalíu, þar sem þessi sígarettufantur er upp æskaður var hann alltaf kallaður Kölski af því hann reykti svo ofboðslega. Þetta er nú fyrirmyndin sem æskulýðsleiðtogarnir hjá Chelsea bjóða ungviðinu uup á. Ja svei!

Við verðum bara að vona að Kölski framkvæmdastjóri sé ekki í skjóli myrkurs að pukra við fleiri ódyggðir en tóbakdreykingar. Sona kallar eru nefnilega vísir með að afvegaleiða æskulýðinn með allskonar ósiðlegum uppátækjum, sem auðveldlega geta leitt fyrirmyndarbörn útí glæpi og óeðli. 

Það besta í stöðunni nú er að Chelsea tapi öllum knattspyrnuleikjum héðan í frá meðan Kölski stýrir liðinu og hleypur á fimm mínútna fresti afsíðis til soga ofan í sig ramman tjörureyk úr viðbjóðslegum vindlingum. Ef karlskepnan tapar nógu grimmt mun stjórnin sjá að sér og reka hann frá félaginu, en soleiðis á einmitt að géra við alla nikótínböðla hvar sem í þá næst.


mbl.is Sarri fær sitt eigið reykingasvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við þekkjum öll þann mann sem öskraði einn í eyðimörkinni Efra-Breiðholti.

kolb11.jpgSvo ekkert fari milli mála þá skal það upplýst að öskrandi maðurinn í Efra-Breiðholti var aunginn annar en Indriði Handreður, nýkominn af Fiskideginum mikla á Dalvík og Gleðigöngu hinsegin fólks í Reykjavík. Og annarlega ástandið sem hann var í stafaði af þeim áhrifum sem hann varð fyrir á umræddum skemmtunum, að vísu í bland við dálítið af áfengi og öðrum krassandi eiturlyfjum. Þá kvartaði Handeðurinn sárann undan óþolandi verk í afturendanum, en við þeim kvilla spörkuðu lögregluþjónarnir þéttingsfast í rassinn á kauða svo hann sá sitt óvænna og hætti að kvarta.

Nú kann einhver að spyrja hvað maður eins og Indriði Handreður hefði verið að flækjast um miðnætti uppi í Efra-Breiðholti, þá er því til að svara, að maðurinn villtist frá konu sinni og öðru samferðarfólki. Þarna í Breiðholtinum mættu honum síðan óæskilegir straumar, sem orsöluðu víxlverkun í fíngerðu taugakerfi hans og hann fór að öskra eins og naut í haga og vakti með því nýsofnað fólk í grendinni. Um Indriða Handreð má því segja, að hann hafi farið sem uxi upp í Breiðholt og komið þaðan naut.

Á meðan Indriði Handreður tróð villur uppi í Breiðholti öskrandi og mígandi utan í hús brá eiginkona hans, Máría Borgargagn fyrir sig betri fætinum og læsti að sér með frú Ingveldi, Kolbeini og Brynjari Vondulykt. Það var í svefnherbergi þeirra hjóna, frú Ingveldar og Kolbeins. Það er talið, að á nákvæmlega sama augnabliki og lögreglan smellti handjárnunum á úlnliðina á Handreðnum hafi Vondulyktinni fatast flugið aftan á Kolbeini og kast ast fram úr hjónarúminu út á gólf og handleggsbrotnað á báðum handleggjum. Og af því þau er eftir hjörðu í bælinu sinntu ekkert um kvein Vondulyktarinnar hvar hún emjaði í gólfinu af kvöl fyrr en eftir dúk og disk þannig að tvær og hálf klukkustund liðu frá því slysið varð þangað til hinum slasaða var komið undir læknishendur vóru þau þrjú hneppt í gæsluvarðhald vegna glæpsamlegs tómlætis gagnvart stórslösuðum manni.


mbl.is Fengu fjölda tilkynninga um öskrandi mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að verða innlyxa er oftast djöfullegt

wcÞað er alltaf hálfnöturlegt að verða innlyxa, ekki síst í stöðum sem heita skuggalegum nöfnum eins og Kolgrafafjörður eða Keflavík. Fyrir nokkrum árum máttu fáeinar síldapöddur bíða þau örlög að verða innlyxa í Kolgrafafirði og það varð uppi fótur og fit og það jafnvel svo að fullmisheppnaðir ráðherrar og þingeyður komu á staðinn til að auka á óþrifin af síldarýldunni. Nú er hveli mætt á staðinn og strax orðin innlyxa og því tímabært fyrir hreppsyfirvöld að fara skrifa bréf til ráðuneyta og heimta bætur fyrir óþægindi af rotnuðum hvölum í Kolgrafafirði; svo verða þingfífl og ráðherrar virkjaðir og á endanum verður gefinn úr digur tékki sem bætur fyrir ónæðið sem helvítis hvelin gerðust sannarlega sek um.

En fyrst farið er að nota orðið ,,innlyxa" detta mér í hug meinleg örlög Gunnbrands Ísolfssonar, sem lést að heimili sínu í Reykjavík þann 12 mars 1942. Gunnbrandur heitinn fannst í fremur skammarlegri líkamsstellingu fyrir framan salernisskálina á baðherbérgi sínu. Höfuð hans var ofan í skálinni sjálfri og þar á ofan lá níðþungur steðji, í þokkabót hafði veri sturtað niður yfir steðjann og höfuð Gunnbrands. Í lögregluskýrslu um atburðinn, sem kom í leitirnar á Þjóðskjalasafninu, segir að Gunnbrandur hafi framið sjálfsmorð með því að drekkja sér í sinni eigin salernisskál og steðjinn ofan á höfði hans hafi verið til þess að hann rifi ekki höfuðið upp úr skálinni þegar vatnið fossaði úr kassanum. Á meðfylgjandi dánarvottorði stóð að Gunnbrandur Ísolfsson hafi látist af völdum drukknunar í vatni.

Nú væri þetta allt gott og blessað ef Gunnbrandur hefði ekki verið hauskúpubrotinn eftir steðjann, eða annan ámóta þungan hlut, þegar hann teygði sig í snerilinn á klósettkassanum og sturtaði niður. Það sér hver heilvita maður að dauðrotaður maður með mölbrotinn haus sturtar ekki niður, né fremur önnur viðvik, eftir að vera orðinn djúpt meðvitundarlaus eða jafnvel steindauður. Nei, vinir mínir, hér var morð framið á Gunnbrandi Ísolfssyni og morðinginn eða morðingjarnir fengu að ganga lausir eftir að hafa aflífað þennan annálaða sómamann og velgjörðamann ungra ekkna. Eflaust hafa morðingjarnir ekki látið við sitja að drepa Gunnbrand aumingjann í eigin salerni, heldur haldið uppteknum hætti og kálað fleiri manns. En það var hræðilegt fyrir Gunnbrand að verða innlyxa á þeim stað er hann fannst andaður. 


mbl.is Hvalatorfa innlyksa í Kolgrafafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðferð Vestfirðinga og útvegur norðlenskra bænda

gamblerÞeir voru nú ekki að tvítóla við hlutina Vestfirðingarnir sem stóðu ferðamenn að ólöglegum utanvegarakstri heldur hengdu þá á staðnum. Þeir notuðu sem sé gálga á traktorsgröfu og spottinn var stroffa úr grönnum vír. Það fór ágætlega um glæpahyskið í snörunni og öllu var því kastað í mógröf á eftir og eignir þess á staðnum gjörðar upptækar og skipt milli þeirra er verkið unnu. En ávallt væri brugðist við utanvegarakstri á þennan hátt væri utanvegarakstur ferðalinga á Íslandi úr sögunni.

Þá hafa norðlenskir bændur sýnt afburðafordæmi í viðskiptum sínum við ferðalanga. Þessir bændur hafa, með þegjandi samþykki héraðsvaldhafa, gert sér að atvinnu að sitja fyrir ferðamönnum og gera allt upptækt í fórum þeirra, allt frá einni eldspýtu upp í stórar bifreiðar með öllu sem í þeim er. Þessi atvinnuvegur hefur orðið góð búbót á mörgum bæjum norðanlands og á þorrablótum þar nyrðra eru nú aðallega sagðar skemmtisögur af bragðmiklum ferðamannaveiðum. Þá skjaldan ferðamenninrnir sjálfair hafa sloppið frá bændunum og hraðað sér á næstu lögreglustöð hefa lögreglumennirnir hlegið að þeim og sumum ferðamönnum hafa þeir varpað í fangaklefa og lagt þar á þá hendur.

Í sumar lágu Steingarður bóndi að Efri Stórfellum og Jórunn dóttir hans fyrir ferðalöngum lengi dags og voru komin á fremsta hlunna með að hverfa frá og fara heim að sofa þegar allt í einu birtist stærðar bíll með 10 Kínverja inanborðs. Feðginin stukku þegar til, stöðvuðu bílinn og ráku bílstjóra og farþega út í skurð og rotuðu þá þar eins og seli. Að svo búni dógu þau bifreiðina heim að bær og rifu hann niður í smátt á þrjátíu mínútum og voru búin að selja megnið af honum í varahluti áður en vikan var liðin. Af Kínverjunum er það að segja að þeir röknuðu úr rotinu í skurðinum og héldu heim að næsta bær sem þeir sáu, en það var Efri Stórfell Steingarðs bónda. Hafði nú Steigarður snör handtök er hann sá hverjir gestir voru og hringdi viðstöðulaust á Hálfdán varðstjóra og bað hann hirða ófétin sem stæðu ráðvillt úti á hlaði að Efri Stórfellum.


mbl.is Ferðamenn sekir um utanvegaakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband