Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2019

Og allt er þetta lið marínerað og gegnsósa af nýfrjálshyggjuórum og hrunsmenningu

mafia1_892301.jpgEkki eru þeir fríðir flokkarnir, hvorki ,,hæfnisnefndin" svokallaða, eða umsækjendahópurinn, sem ásælist stóla varaformanns Seðlabankans. Allt er þetta fólk margheilaþvegnir og ofstækisfullir kapítalistar, maríneraðir og gegnsósa af nýfrjálshyggjuórum, nýfrjálshyggjuskemmdarverkum og blindri auðvaldsþjónkun og peningahyggjuheimsku. Já, vinir mínir, ekki er það efnilegt og langt í land við að koma böndum á græðisyfirganginn og fáir virðast hafa lært nokkuð af Hruninu góða, sem breyttist á fyrsta kjörtímabili í endurreisn Gamla Íslands og upprisu allra bankabófanna og hinna gjörspilltu stjórnmálamanna; það var nú öll ,,Búsáhaldabyltingin" drengir mínir.

Og byltingin er langt undan - það grillir ekki einusinni í hana út við sjóndeildarhring í besta skyggni. Á Alþingi sitja bófaflokkar, hver öðrum verri og vitlausari en á hliðarlínunni dansa lukkuriddarar, mökkarar og illa áttaðir vitfirringar og þykjast vera að stofna sósíalistaflokk! Þvílíkir andskotans bögubósar! Það hafa margir lagt hönd á plóg í gegnum tíðina, við að afvegaflytja sósíalismann, ljúga allskyns vitfirringslegum stórmælum upp á þessa fögru hugsjón og fótumtroða allt sem þeir halda að til sósíalisma heyri. En þegar falsspámenn, hugsjónalausir og þekktir að eigingirni og græðgi, taka til við að predíka sósíalisma og safna kringum sig biluðum kverúlöntum, besservissurum, hassjóalistum og vesalingum, má með sanni segja að skörin sé farin að færast heldur um of upp í bekkinn. Og upp vaknar hin brennandi spurning: Er sanngjarnt, að hugsjónalaus og öfundsjúkur lukkuriddaralýður fái óáreittur að koma óorði á sósíalismann með því að þykjast vera að stofna sósíalistaflokk, meira að segja Sósíalistaflokk Íslands?!

Hvað þennan Seðlabanka varðar, þá væri viturlegast að leggja þann óþverra niður og reka þá sem þar um sýsla á fjöll. Þegar péníngastarfsemi væri úr sögunni í því húsi sem hýsir Seðlabankann, væri réttast að opna það hús upp á gátt fyrir fíkniefnasjúklinga og brennivínsberserki og leyfa þeim að haga sér þar að vild þar til þetta fræga mammonsmusteri hrynur til grunna. 


mbl.is Vilhjálmur formaður hæfnisnefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta og annað skráð samband frú Ingveldar og Kolbeins

gif1Fyrst þegar frú Ingveldur og Kolbeinn skráðu sig í samband blandaði gamli Kolbeinn Kolbeinsson, faðir Kolbeins Kolbeinssonar yngri, sér í málið og krafðist lögbanns á sambandið. Það sem sá gamli hafði helst út á sambandið að setja og gat rökstutt með skýrum sönnunargögnum, var að frú Ingveldur væri illa örtuðu, brennivínssjúk og með róttæka brókarsótt; enn fremur væri hún illa haldin af stóðlífi, þá væri hún einnig með flatlús. Sýslumaður tók auðvitað kæru gamla Kolbeins til greina og leystu upp samband frú Ingveldar og Kolbeins. Þannig þóktist hinn ábyrgðarfulli og roskni faðir Kolbeins hafa bjargað syni sínum frá ógurlegum hórdómi og þá einkum hvað viðvék hans ektakærustu, frú Ingveldi.

Á laun létu þau frú Ingveldur drukkinn sveitaklerk gefa sig saman fyrir utan fjárhús þar í hreppnum. Þetta var í alla staði lögleg vígsla og klerkurinn bauð hjónunum að staðfesta brúðkaupsheit sitt þar í garðanum í fjárhúsinu, sem þau og gerðu í votta viðurvist, það er prestsins og vinkonu hans. 

Og víkur þá að vinkonu prestsins. Hún var virkilega ung að árum um þessar mundir, stuttpilsuð svo af bar og ljónviljug til samfara, sem hún þó illa kunni. Einnig var stúlka þessi stórvinkvendi brúðarinnar, frú Ingveldar og ekki örgrannt um, að þær hefðu þá þegar marga fjörulalla sopið. Já - það var nú það. En, held ég verði að segja, þá var þessi vinkona klerksins, sem gaf þau Frú Ingveldi og Kolbein saman á fjárhúströppunum sú kona sem heitið hefir Máría Borgargagn, löngu síðar gift Indriða Handreði landstólpa. Það átti ekki fyrir Máríu Borgargagni að liggja að verða prestsfrú, enda presturinn, vinur hennar ástúðlegur, harðgiftur annarri konu og var í sterkum tygjum við enn annan kvenmann, húsfreyju þar í sveitinni. En það var ekki að því að spurja, að hjónaband frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns hefir reynst gifturíkt og haldið vel, þrátt fyrir all-ískyggilegar ágjafir á stundum. Hitt er rétt, að frú Ingveldur og Kolbeinn eru svo þroskaðir einstaklingar, víðsýnir og gáfaðir, að þau láta ekki sona eitthvað uppákomandi hitt og þetta gjöra hjónaband sitt að aungvu. 


mbl.is Ragnheiður Guðfinna og Reynir skrá sig í samband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Nýfundnalandi var líka svona trúarsöfnuður - en hann er víst ekki til lengur

beljaAnnað slagið í seinni tíð, hefir sértrúarsöfnuður nokkur gefið sig fram til að mótmæla húsdýrahaldi í stóru samhengi og smáu. Þetta fólk hefir vilja sleppa sauðfénaði, nautgripum, hænsnfuglum og svínum landsmanna út á Guð og gaddinn af mannúðarástæðum, eða hvað það nú kallar þetta. Og af einskærri ofsagóðmennsku og framúrskarandi mannúðarástæðum mun trúarsöfnuðurinn fylgjast með aðdáun á hin frelsuðu nytjadýr frjósa í hel á frostköldum melum íslenskrar vetrarnáttúru.

Einhver sagði mér, að trúarsöfnuðurinn, sem vill sleppa dýrunum lausum, ætti óðul sín að Kleppi inn við Sund. Þetta væru nefnilega brjálað fólk, sem á það til að flýja út af Kleppi af og til í trúfélagslegum tilgangi. Svo er greyjunum smalað saman og rekin aftur inn í búrin sín að Kleppi, þar sem þau leggjast á meltuna og bíða næsta tækifæris til kunngera fagnaðarerindið. Sumum þykir gaman að tiltektum þess ofsatrúarfélgs og langar til að koma upp leónum, tígrum og ísbjörnum í Húsdýragarðinum, sem hinir geggjuðu frelsarar hefðu eflaust gaman af að glíma við.

Á Nýfundnalandi, sem er einn mikill hreppur í vestri, komu eitt sinn galnir trúranöttarar úr dýrafrelsunarreglunni í kvikindagarð, sem þar er rekinn af hinu opinbera í bland við dýravini. Í þeim garði var hinum sanntrúuðu vísað til ísbjarnastíunnar og þeim boðið að opna hliðið fyrir björnunum. Auðvitað tóku trúarnöttararnir tilboðinu og hlupu að hliðinu og rifu það upp á gátt. En það varð bara til þess að ísbirnirnir stukku samstundis á frelsarana, slógu þá í hel með hrömmunum og átu þá síðan. Á eftir lölluðu ísbirnirnir alsælir inn í stíuna sína aftur og lögðust saddir og sælir á fleti sín og möluðu gífurlega.


mbl.is Öðru hvoru „herleiðangur“ gegn garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

230 gerð að fíflum í boði forsætisráðherra og Félagsvísindastofnunnar

ingv20.jpgJæja, þá eiga stjórnvöld ekki eftir að hafa þessar 230 hræður, sem þau smöluðu saman í Laugardalshöll um helgina, að fíflum,- nánar tiltekið, að erki- regnin fíflum. Ekki var verra, að umrædd samkoma var undirrituð og stimpluð af Háskóla Ísland, forsætisráðuneytinu og forsætisráðherra, sem gerir að verkum að fíflagangurinn var löggiltur gjörningur og sýnir hvaða hug forsætisráðherra ber til þjóðarinnar.

Þá er sem önnur eðjótasamtök hafi reynt að gera sig gildandi fíflafundi forsætisráðherra. Það var þetta svokallað ,,Stjórnarskrárfélag", sem þekkt er að því að haga sér undarlega. Kunningjakona mín, sem þekkir nokk til Stjórnarskrárfélagsins, sagði mér fyrir skemmstu, að í þessu félagi væru í fyrsta lagi landsölukratar á lokastigi ESB sjúkdómsins, í öðru lagi heilþvegin ungmenni á refilstigum, í þriðja lagi fórnarlömb misskilningsins og lyganna um að þjóðin hafi kosið sér ,,nýja stjórnarskrá" fyrir nokkrum árum, í fjórða lagi öfundsjúkt og heimskt hyski, sem þekkir ekki svart frá hvítu og afneitar staðfastlega að tveir plús tveir séu fjórir. Það þarf ekki mörg orð um slík grey, en þau munu með tímanum verða útdauð, án þess að nokkur maður taki eftir því eða sakni þeirra.

Hinsvegar, og það væri hægt að sanna með mjög sterkum rökum, að fundurinn þar sem Háskólinn og forsætisráðherra höfðu 230 manns að erkifíflum, hefði getað risið upp úr lágkúrunni og dragýldunni, ef stóðið í Stjórnarskrárfélaginu hefðu hleypt samkomunni upp í vopnaðan bardaga. Ef Stjórnarskrárfélagið hefði ráðist í einni leiftursókn inn í Laugardalshöllina, vopnað atgeirum, rimmugýgjum og sverðum, en forsætisráðherra, Félagsvísindastofnun Háskólans og hinar 230 fífluðu sálir hefðu tekið til varna með borðum, stólum, borðhnífum og blýhöntum. Ekki er hægt að gera að því skóna, og er það skiljanlegt, hvernig sá bardagi hefði farið, hefði hann verið háður. Ugglaust hefði orðið mikið mannfall og stjórnarskrárórar þar með úr sögunni um sinn; ennfremur hefði forsætisráðherra og Félagsvísindastofnun verið úr sögunni fyrir fullt og allt, en leifarnar af Stjórnarskrárfélaginu hefðu haldið áfram kaffineyslu og hvítvínssumbli á knæpunum í 101.  


mbl.is Stjórnarskrárfélagið fékk að fylgjast með fundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nautgripir, forynjur og óð handanheims meri í hestalátum

boli_1056815.jpgStundum er talað um að þessi eða hinn sé nautheimskur og er þá væntanlega átt við að naut séu eitthvað það heimskasta sem finna má á byggðu bóli. Þá ganga sögur af því að griðungar séu sérlega fólsk kvikindi og leitist gjarnan við að myrða fólk, ef þeir telja sig eiga færi á þessháttar munaði. Okkur er í fersku minni blótneytið sem réði húsfreyjuna af dögum á hlaðinu heima hjá nágrannaðum, þar sem hún hafði verið í heimsókn. Nú, griðungurinn fékk náttúrlega að kynnast réttlætinu í beittu stáli og vara af húsbónda sínum fláður og bútaður niður. Síðan fékk eiginmaður hinnar látnu konu ketið af morðingjanum í beætur fyrir konumissinn.

Í dag eru mannýgir tuddar geymdir inni í rammgerum húsum þar sem þeir eru tjóðraðir með járnkeðjum uppi í básum sínum svo þeir sleppi ekki út til að myrða mannfólk með því að hafa það undir og stanga í hel. Ef nautgripur af fyrr lýstu tagi slyppi úr haldi og yrði mannsbani mundi eigandi hans verða dreginn fyrir dóm og dæmdur til fangelsisvistar en nautið brytjað niður í gúllasch og snitzel.

En svo eru það þessi manlegu naut. Það er öllu hættulegri fénaður, lúmskur og illvígur. Hvað getum við sagt um nokkurskonar sauðnaut, fljótt á litið í mannsmynd, kafloðið að vöngum og með bindi, illa gyrt og krumpað? Tjahh, okkur mundi verða orðfall, ekki eitt einast orð kæmi fram á varirnar af aldeilis yfirþyrmandi forundran. Ég tala nú ekki um ef slíkt forynjulíki kæmi til fundar við oss, ríðandi á hvítri meri í hestalátum. Má vera að sumir mundu halda að þar væri mættur til leiks djáknaskrattinn frá Myrká í þeim erindagjörðum að kokkála góðbændur í sveitum landsins. Eða hvort þetta væri ekki nautgripurinn Þorgeirsboli, margfrægur af vondri viðkynningu. Að minnsta kosti er það ramm-þjóðsagnalegt, að enn þann dag í dag megi Íslendingar eiga von á að mæta skæðum draugum í nauts, djákna, eða jafnvel merarlíki, um hábjartan dag. Hvurnig í andskotanum á fólk að snúa sér í þvílíkum ókjörum á tuttugustu og fyrstu öldinni?


mbl.is Segir lýðræðið hætt að virka sem skyldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim er fyrirmunað að skammast sín þessum ólánsendemum

x22Alveg er Katrínu fyrirmunað að skammast sín fyrir auðsæjan og fyrirlitlegan pólitískan loddaraleik sinn, að ekki sé minnst á þorparann Stenngrím, yfir og undirformann VG. Þessi makalausu gægsn hika ekki við í fávísi sinni að skrökva því enn og aftur upp, að VG sé vinstriflokkur og spinna hiklaust upp að þessi pólitíski undanrennu og uppskafningagrautur sé hluti af einhverju alþjóðlegu vinstri. En þegar endemin fara að tala um ,,systurflokkar" VG á hinum Norðurlöndunum er ekki laust við að við sem betur vitum glottum dálítið í kampinn að þvaðrinu og lákúrunni.

Ef VG væri vinstriflokkur, eins og Katrín og Stenngrímur halda fram, hefði aldrei komið króna inn í flokkinn frá svæsnum auðvaldsfélögum á borð við Samherja og og öðrum gjafakvótarisum og yfirgangshundum; heldur aldrei ein einasta króna frá stóriðjufyrirtækjum, alþjóðlegum; og heldur ekki frá ríkinu, en Katrín og Stenngrímur, margnefndur, tóku þátt í að samþykkja stórar fjárveitingar út úr ríkissjóði til stjórnmálaflokkanna á Alþingi. Fólk sem er svo spillt og rotið, að því flökrar ekki einusinni við því að taka við miklum peningaupphæðum frá grimmum auðvaldsfyrirtækjum, og leyfa sér svo í þokkabót að ræna ríkissjóð til reksturs stjórnmálafélaga eiga engan rétt á að kalla sig vinstrisinni, því það eru soddan aumingjar auðvitað ekki.

Sennilega var ég með þeim allra fyrstu, sem áttuðu sig á raunverulegu poletisku eðli VG, Stenngríms og hinna í Flokkseigendafélagi VG. Það varð fljótlega einsýnt, að VG var í raun og veru hægriflokkur með raunarlegu framsóknarívafi. En síðustu tvo árin hefir Stenngrími og þeim hinum ekki þókt taka því að leyna auðvaldseðli sínu, heldur hafa þessir auðvirðilegu loddarar og smámenni tekið þátt í að framkvæma róttæka hægristefnu með Erkiíhaldinu og Framsóknarliðinu. Ekki þarf að taka fram hverskonar hugarfar það er, sem leitt hefir forustu VG, en það er bæði gjörspillt og úldið. Við hliðina á VG er Sjálfstæðisflokkurinn beinlínis stálheiðarlegur í sinni auðvaldsspillingu, því þar á bæ hefir aldrei neinum dottið í hug að ljúga að kjósendum að þeir væru vinstriflokkur, eða með sósíalíska slagsíðu af einhverju tagi. 


mbl.is Mikil samstaða um styrktarmannakerfi VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skussarnir arðrændir og dólgar sem stunda gripdeildir í fjárhirslum ríkisins

flokkseigendur_786424Það er ekki á þá logið, nefapana, sem eiga og reka einkahlutafélagið VG, þ.e. ,,Vinstri"hreyfinguna ,,grænt" framboð. Ekki er nóg með að þessi grey, sem eiga að heita alþingismenn fyrir þennan kostulega flokk, séu höfð að fíflum dags daglega af eigendum sínum, heldur láta eigendurnir sér ekki muna um að arðræna veslingana með því að láta þá borga í ,,flokkssjóðinn." Að sjálfsögðu lætur Stengrímur ríkissjóð borga framlagið fyrir sig undir liðnum ,,dreifbýlisstyrkur", en það er allt í lagi hjá manni með aðra eins ofboðslega þingreynslu eins og Stengrímur, fyrir utan að hann er einn af æðstu hluthöfunum í Flokkseigendafélagi VG.

Af hverju Proppi er ekki látinn borga, er illskiljanlegt, því þótt hann sé vegna ótrúlegra hæfileika sinna í náðinni hjá æðsta ráðinu, þá verður hann að borga fyrir að fá að vera þingmaður Stengríms, Álfheiðar og Swobbófjölskyldunnar. Svo má vera að drengkjökrið sé gjaldþrota, fallítt, og bara hreinlega á hreppnum. Okkur er nú fjandans sama um það allt. En það er vel til fundið af Flokkseigendafélaginu að arðræna dekurdýrin sín af undarennuættum.

RæningiSvo er sjálfsagt viðeigandi, þótt að gani nákvæmlega ekki neitt, að nefna þennan óstjórnlega fjáraustur úr ríkissjóði í stjórnmálaflokkana, ekki síst vegna þess að þessháttar framferði gerir ekkert annað en að ýta undir spillingu og varmennsku hinna siðlausu alþingismanna. Það fyrir utan geðjast mér alls ekki að því að dólgar á borð við Bjarnaben og Stengrím séu að moka til sín peningum, sem ég meðal annarra hefi greitt í ríkissjóð. Þessháttar glæpamennsku mótmæli ég af heilum hug og inna að innstu hjartarótum. Það á sem sé ekki að líða þjófnað sem þennan af almannafé. Ef þingmenn geta ekki látið af því að draga háar fjárupphæðir draga sér fé inn í stjórnmálafyrirtæki sín, sem sum eru skipulagðar glæpasvínastíur, þá er ekki um annað að ræða en að almenningur geri aðför að þinghúsinu og dragi ruslaralýðinn og gripdeildarseggina, sem þar búverka, út á skottum sínum og kasti þeim öllum sem einum út í Reykjavíkurtjörn og láti þá svamla þar, börnum og hröfnum til skemmtunar.


mbl.is Þingmenn VG styrktu flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokkungar á barmi sturlunar auglýsa eftir jafningjum sínum

x15En einkum og sér í lagi eru þeir Miðflokkungar að biðla eftir reynslusögum úr Klaustrinu og öðrum nærliggjandi knæpum. Þeim hefir sem sé, aumingja köllunum og þessari einu kellingu, gengið heldur illa að finna fólk, sem hefir hagað sér jafn illa á ölstofum og þau gerðu hér um árið þegar Bára tók þau fyrir nesið og upp á nýmóðins stenógram með mynd og öllu saman. Sigmundi, og þeim klaustur bræðrum og systur, liggur nefnilega lífið á, að því sem þeim finnst, að finna einhverja, sem að minnsta kosti eru jafn spillt og þau og helst enn spilltari, hvernig sem það má nú vera.

En klausturhöldurum Miðflokksins tekst ekki að sýna fram á skemmtan þeirra, sem Bára tók upp á símann sinn, sé normal og eðlileg, þá er hætt við að poletískir dagar þeirra séu taldir og Miðflokknum verði fleygt eins og heilsuspillandi sorpi á ruslahaug sögunnar. Þar við bætist, að þau, prívat og persónulega, verði hrakin í útlegð sem afbrigðilegt dónafólk, ef framferði þeirra í Klaustrinu fær þann dóm, að hafa verið fáheyrður, viðurstyggilegur og mannskemmandi dónaskapur, löðrandi í perverísku klámi og óþverra. 

Satt að segja eru aungvar líkur á, að Sigmundi Davíð og þeim hinum takist að veiða upp einhverja jafndónalega klámkjafta og þau sjáf eru, hvað þá einhverja verri. Miðflokkungar verða bara að sitja uppi með það, að aldrei hafi uppi verið frá landnámsöld til þessa dags eins rammdónalegur og klúr stjórnmálaflokkur á Íslandi, sem aukinheldur hefir á sínum snærum sóðalegt kvenhatur, sem er svo svæsið, að það næstum því kom heiðarlegum þingkonum og kvenráðherrum í gröfina langt fyrir aldur fram. Síðustu daga hefir og því verið fleygt, að alræmdir spaugfuglar hafi í hyggju að búa til teiknimynd um ævintýri Miðflokkunga og Báru á Klaustri, og þar verði ekkert til sparað í háði og spotti.


mbl.is Miðflokkurinn auglýsir eftir reynslusögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný-nasistinn sem gerðist pan-kynsegin-intrósex ný-frjálshyggjumaður með fémíníska tendensa

paunk1Merkilegt ef nasistapöddurnar vita að til eru háskólar á Íslandi, því það bendir til að fáeinar heilafrumur séu á milli eyrnanna á þeim, sem þó er mjög ólíklegt. Sennilega var það einungis tilviljun að þessir gripir hafi hitt á Háskóla Íslands og farið að myndast við að dreifa andlegum afurðum sínum þar. En háskólanemar verða auðvitað að vera á verði gagnvart meindýrum, sem halda að sé töff og kúl að vera nasisti.

Hér á árum áður var á flökti í Reykjavík náungi sem hélt því statt og stöðugt fram að hann væri samkynhneigður ný-nasisti, og náði með þeirri yfirlýsingu athygli í Kvosinni í Reykjavík og nærsveitum hennar. Á tímabili voru eiginlega allir ákaflega upp með sér að þekkja samkynhneigðan ný-nasista, því aungvum hafði áður dottið í hug að slík blanda væri til. En svo varð samkynhneygði ný-nasistinn leiður á hlutverkinu, enda hætt að vera nýstárlegt, lýti því hátíðlega yfir í heyranda hljóði, að nú væri hann kominn aftur úr skápnum, og í þetta sinn sem einn ekta pan-kynsegin-intrósex ný-frjálshyggjusteggur. Og til sannindamerkis veifaði hann tólum sínum framan í viðstadda. Þetta gerðist á virðulegu kaffihúsi í hjarta Reykjavíkurborgar.

Og nú varð fólk enn hrifnara af okkar manni, en þegar hann var einungis vesæll samkynhneigður ný-nasisti. Og ekki leið á löngu að hinn forframaði pan-kynsegin-itrósexíski ný-frjálshyggjusteggur með fémínísma sem hliðargrein, væri sestur að á framboðslista til alþingiskosninga og í kjölfarið kominn á þing fyrir einn vitleysingaflokkinn, sem þar starfar. Það rættist því sannarlega sæmilega vel úr stagkálfinum, sem í fyrstu gerði út á samkynheygðan ný-nasisma, þegar hann var kominn í bláa skyrtu og búinn að greiða hárið í tagl, eins og hann væri hross, og farinn að plampa um á nýjum stígvélaskóm og með tölvu í fanginu; en frama sinn á þessi upprennandi skörungur fyrst og fremst því að þakka að hann gerist pan-kynsegin-intrósex ný-frjálshyggjumaður með fémíníska tendensa.


mbl.is Rasískum áróðri dreift í Háskóla Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn verður ekki umflúin og þórðargleði helguvölufólksins

burt.jpgJá, það getur ekki endað með öðru en að Áslaug litla Arna, veslings ráðleysinginn svorni, verði að segja af sér ráðherratigninni, sem sem hún var svo lukkuleg með fyrstu dagana á eftir að Bjarniben krýndi hana til dómsmálaráðherra. Því er heldur ekki hægt að neita, að fénaðurinn sem ræðst hvað svæsnast að Áslaugu Örnu þessi dægrin út af albönsku konunni, virðist hafa beðið í óþreyju eftir eitthvað svona gerðist, svo það hefði nú tilefni til að taka hana rækilega í gegn og sýna um leið hvað þau eru nú óstjónanlega góð. Enda hafa hænsnin, sem þykjast vera á móti dómsmálaráðherra, bókstaflega gjörtryllst af sannri og innilegri þórðargleði.

Við getum alveg séð fyrir okkur þegar Áslaug Arna verður leidd út úr dómsmálaráðuneytinu og henni varpað á hauginn til hinna dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins þurfti að fjarlægja úr ráðuneytinu vegna hlálegra afglapa. En Helga Vala, so undurgóð sem hún er, verður bara að passa sig á að fjúka ekki sjálf á hauginn, hvar ónothæfum stjórnmálaálkum fargað. Það er ekki nóg að sporta sig um sali alþingis í fullkomnu ábyrgðarleysi stjórnarandstöðu og leika tækifærisleikrit. Næsta dag gæti Helga Vala verið komin í ríkisstjórn og horft, glottandi með velþóknun á flugvélarnar, sem hefja sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli með vanfærar, hælisleitandi konur innanborðs.

En það fer samt þannig að aumingja blessað barnið hún Áslaug Arna, eða Slauga eins og vinir hennar kalla hana, verður að hrökklast úr embætti og gefa sig að fullu og öllu á vald humarsáts og hvítvínsdrykkju. Það verður hræðilegt að horfa upp á það. En aunginn hefir hingað til getað flúið örlög sín, allra síst dómsmálaráðherrar, sem setið hafa á sínum fínu rössum í ráðherrastóli í skjóli Sjálfstæðisflokksins. 


mbl.is „Mannfjandsamleg stefna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband