Bloggfærslur mánaðarins, maí 2020
Ósköp er nú að sjá blessaða þyrluna hans Ólafs hérna útvegsbónda á Miðhrauni I. í Miklholtshreppi á Snæfellsnesi á myndinni atarna. Hún líkist einna helst pöddu, járnsmiðsgreyi sem hefir fótbrotnað á öllum fótum hægramegin. Er ekki táknrænt, að flugtól meistarans halli sona til hægri? Og hvað hann Ólafur bóndi er búinn að þurfa að líða fyrir þyrluhrapið. Það er ekki lítið.
Nú vitum vér ekki hvort bóndinn á Miðhrauni I. er aftur kominn í loftið á helekopternum sínum og byrjaður að gera hávaða í byggð, svo volaðir búandkarlar og grettnir slordónar geti dáðst að mikilleika eins bónda og skipaútgerðarmanns, sem hóf sig upp úr aungvu í Framsóknarflokknum og varð manna ríkastur í sinni sveit. Já, hann skjögraði út úr Framsóknarfjósinu eftir að hafa oltið og bylt sér í mörg herrans ár í flórnum og mátt þola ítrekaðar skammir og flengingar af hendi gömlu géðíllu Framsóknarmaddömunnar, sem tókst þó að lokum að gjöra hann stórmenni. En um leið og Ólafur niðursetningur í Framsóknarfjósinu komst undir bert loft hóf hann sig til flugs. Þeir sem viðstaddir voru sögðu síðar, að brottför Ólafs hefði í öllu líkst uppstigningu Frelsarans um árið.
En mikill þó bölvaður ekkisins flóðgöltur er nú helvítið hann Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður; hann er svíðingur, mannhelvítið. Þegar menn voru að einkavæða, selja banka, láta kaupfélögin hverfa og hirða upp þokkalega bita hér og hvar, þá kom Kolbeinn sér í aðstöðu til að taka prósentur af öllu sem gerðist í veislunni góðu þegar menn átu gull og græddu á daginn og grilluðu sosialista á kveldin og snæddu þá með hvítvíni og humrum. En mikið urðu þau sæmdarhjón, frú Ingveldur og Kolbeinn rík á einkavæðingunni, góðærinu og öllu þessu fjarska góða, sem endaði með Hruni. Það fór sem sé líkt með góðærinu og þyrlunni hans Ólafs bónda að Miðhrauni I., hvort tveggja endaði niður í urð eftir leiðindafall.
Myndin, sem þessu tilskrifi fylgir, er teikning Kolbeins Kolbeinssonar af gömlu Framsóknarmaddömunni og Ólafi bónda á uppalningsárum hins síðarnefnda.
![]() |
Rannsókn á þyrluslysi Ólafs Ólafssonar lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2020 | 11:39
Trump er ekki veikur maður, hann er allt annað og verra
Ekki er nú Dónaldur veikur maður að öðru leyti en því að hafa orðið afdankað íhaldsnaut og péníngagéðsjúklingur, vitgrannur og að sama skapi fáfróður. Það er allt og sumt. Því miður er Dónaldur ekki einn um að vera innréttaður á þennan hátt, hann á sér ótölulegan fjölda þjáningarbræðra, sem ráða helst til miklu í veröldinni og hafa gert hana að ræningjabæli. Það hefur því aungin minnstu áhrif, eða tilgang, að dæma Dónald Trump bandaríkjaforseta kleppara og hælismat. Það væri nær að skoða fordómalaust og ofan í kjölinn það þjóðskipulag, sem getur af sér apparat eins og Trump í forsetastól. Eitt liggur þó ljóst fyrir strax, en það er að nauðsynlegt er að leggja slíkt samfélagsskipulag af og taka upp nýtt.
Hér á Íslandi á Dónaldur Trump töluverðan fjölda aðdáenda, einkum í Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum. Það kemur ekki beint á óvart, að þeir klausturmenn í Miðflokknum líti með lotningu upp til Trumpsins og leggi sig fram um að temja sér heimskulegan kjaftavaðal að hans hætti. Það vekur heldur aungva undrun, að nýi Sjálfstæðisflokkurinn, þessi sem skaust alskapaður fram á sjónarsviðið í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar, sé hugfanginn af Dónaldi og heimskupörum hans, því Trump er holdgerfingur nýfrjálshyggjunnar og skilgetinn afkomandi hennar.
Dónaldur Trump, nýfrjálshyggjan, Miðflokkurinn og Nýi Sjálfstæðisflokkurinn eru skaðræði fyrir hvurt ríki þar sem þessi fyrirbæri fá að skjóta rótum. Skemmdarstarfsemi og eyðileggingin af völdum þessara skaðvalda birtist okkur gjarnan, eða öllu heldur undantekningarlaust, sem andlegt og siðferðilegt niðurbrot samfélagsins þar sem slíkur óþrifnaður hefir fengið að leika lausum hala. Stóraukinn ójöfnuður ásamt tilheyrandi sárafátækt vissra þjóðfélagshópa, mikið minna umburðarlyndi, úrkynjuð athyglissýki einstaklinga, sjúkleg græðgi og sí-vaxandi fáfræði og heimska, í tækniþjóðfélaginu miðju, eru ær og kýr Trumpanna og nýfrjálshyggjunnar, sem aldrei eru mældar í hagtölum hins opinbera, enda hafa Trumpin ekki hinn minnsta áhuga á þessháttar stagli.
![]() |
Donald, þú ert veikur maður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er ekkert ,,auðvitað" við það að Katrín þessi undanrennuprinsessa hafi átt sæti á Alþingi í ein þrettán ár. Satt að segja hefir Katrín aldrei átt neitt erindi inn á þing, hún er og verður gluggaskraut Steingríms Johoð og annarra eigenda VG.
Og ef þetta Mítú hefur afhjúpað margt í sambandi við þinghaldið, þá má ætla að þingmenn séu ákaflega blindir á starfsumhverfi sitt, eða þykjast ekkert hafa séð fyrr en eftir Mítú. En Katrín litla á ekki í vandræðum með að bulla og slá úr og í og hafa helst aldrei eina skoðun á neinu, alltaf tvær til þrjár, eða enga. Það er vitað, að þingmenn síðustu ára láta iðulega eins og þeir þoli ekki mótlæti af nokkru tagi og frá þeirra bæjardyrum séð þykir fínt að hafa orðið fyrir kynbundnu áreiti, hvað sem það nú er nákvæmlega, og ekki síðra að geta grobbað sig á sannfærandi hátt um þessi eða hinn graddinn hafi reynt við sig. Þá kvað poletisk gagnrýni vera orðin að einelti. Ég er ekki einusinni viss um að Katrín muni, eða hafi fattað, að meðferð Steingríms, eiganda hennar, Johoð á Lilju Mós og Guðfríði Lilju og fleirum hafi verið einelti, enda gerði hún sem varaformaður VG á þeim tíma nákvæmlega ekki neitt til að stöðva það viðbjóðsega einelti. Hvorki Katrín né Steingrímur verða nokkru sinni hæf til að úttala sig um einelti og annað samfélagslegt böl á Alþingi og ættu þess vegna að þegja, steinþegja.
Andi Lilju Mós og Guðfríðar Lilju svífur enn yfir drullupollum VG. Katrín man eflaust ekki eftir undirferli Steingríms og sínu gagnvart Ögmundi Jónassyni, Jóni Bjarna, Atla Gísla og Ásmundi framsóknarpilti Einari. Það var óhrjálegt einelti og subbuskapur af verstu gerð. Þeir sem gera sér grein fyrir hverskonar rottuhola VG varð fáeinum árum eftir stofnun flokksins býður við þeim lágkúrulegu mannleysum, sem þar olnboguðu sig áfram af flærð og eineltishvötum; þessháttar lið er stundum kallað skítapakk og það með réttu.
![]() |
MeToo afhjúpaði margt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 17:36
Með hælaháa skó undir klaufunum
Það held ég sé eitthvað nýtt af nálinni, að lífeyrissjóðir vinni eftir fjárfestingarstefnu, sem gangi út á að kjarasamningar séu virtir. Ég er eiginlega skíthræddur um, að þarna sé miðjustjórn ASÍ að skrökva, eða bara að ljúga vísvitandi, sem er vondur siður. En vel má vera, að síðan efrimillistéttarfémínístar tóku öll ráð í ASÍ og nærsveitum, hafi hin nýja forusta ákveðið, að leggi lífeyrissjóður pénínga í kapítalískt græðgisfyrirtæki þá sé það í sömu andrá nokkurskonar heilbrigðisvottorð af hálfu talsmanna alþýðunnar þess efnis að umrætt fyrirtæki hafi alla tíð virt kjarasamninga og landslög fullkomlega.
En auðvitað vita efrimillistéttarfémínístar lítið um hvort fyrirtæki hafi brotið á þrælalýðnum, sem hjá þeim vinna, því efrimillistéttarfémínístar af þessu tagi hafa ósköp takmarkað vit eða eigin reynslu af vinnu, allra síst verkamannavinnu. Á móti hafa efrimillistéttafémínístar nautn af að skála með pénínga- og yfirstéttarslekti og finna ákaflega til sín þegar myndir af þeim birtast á glamúrsíðum auðvaldsblaðanna. Þannig er nú því háttað.
Ekki er þetta efnilegt og ósjálfrátt vaknar grunur um að ,,nýja verkalýðsforustan" sé ekki á réttri bylgjulengd. Að minnsta kosti var hún fljót að klofna og eftir sátu þessir höfðingja, gaggandi eins og roðhænsn, hvurt á sinni skítahrúgu. Það er svo sem ágætt að metorðastreðarar sjálfra sín auglýsi meinta góðmennsku sína og kærleik og þvaðri eins og sauðnaut um velferðarplástra á hið kapítalíska þjóðskipulag, en það þjóðskipulag vilja þessar fínlegu alþýðuhetjur um fram allt halda í. Þetta eru sem sé, þegar allt kemur til alls, íhaldssauðnaut með klaufir á hælaháum skóm, rauðum.
![]() |
Óyggjandi staðfesting frá Icelandair ekki til staðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 15:36
Félag viljugra flugfreyja að raungerast hjá Icelandair
Þá er loks komið að því, að Icelandair stofni félag viljugara flugfreyja og stampi endanlega samskiptum við hið einstrengingslega, ósamvinnuþýða illa innrætta Flugfreyjufélag Íslands. Eflaust er þetta mikill léttir fyrir Boga Níls og eigendur Icelandair að vera loka lausir við flugfreyjubrussurnar af fóðrum í bráð og lengd. Að vísu hefir efrimillistéttarfélag ASÍ haft í hótunum við Boga Níls og flugfélagið hans, en þessháttar gaul leiðir allt alminnilegt fólk hjá sér.
Það kemur því í hlut viljugra flugfreyja að fást við flugdólga Icelandair í framtíðinni og er það vel. Viljugar flugfreyjur gera ekki kröfur til annarra, en temja sér þess í stað iðni og nýtni og þá list að lifa af 150 þúsund kronum á mánuði. Með því móti geta Bogi Níls og Islandair hafið sig til flugs á nýjan leik og flogið, sem leið liggur, út um alla heima og geima. Eftir sitja gömlu péníngagráðugu flugfreyjurnar og efrimillistéttarfémínístarnir í ASÍ og telja hrukkurnar á trýnunum á sér. Það er fullgóð iðja fyrir soleiðis fólk.
Æjijá, gömlu flugfreyjurnar eru orðnar ósköp úr sér gengnar; það er farið að falla á þær svo um munar. Ríkisstjórnin hefir snúið við þeim baki, sem og atvinurekendur og allir helstu prímusmótorar hinnar íslensku borgarastéttar. Og þótt efrimillistéttar-fémínístafingálkn ASÍ séu að hóta einhverjum fjandanum, sem þau kalla samúðarverkföll og vita ekkert hvað er, þá munu Bogi Níls, Bjarniben og Katrín Jakk, stórvinkona jómfrúar Snædal og Bandaríkja-Solveigar, afgreiða þessháttar föndur á fljótan og snyrtilegan hátt. Ef verkalýðsforstjórarnir láta ekki segjast og heimskast til ap beita lífeyrissjóðunum gegn Icelandair verða þeir teknir og lokaðir inni í óupphituðum hundakofa austur á Möðrudalsöræfum. Auðvaldið, með Steingrím Johoð og Katrínu litlu á spottanum sem samherja í hersveit sinni, hefir frá og með deginum í dag heimild til að nota öll þau neyðarúrræði sem því sýnist til að brjóta efrimillistéttarfémínísta á forstjóralaunum hjá alþýðunni í ASÍ og gamaldags flugfreyjuverkakonur með sigggróna lófa á bak aftur. Þar við situr. Já.
![]() |
Icelandair: Flugfreyjur höfnuðu lokatilboðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 13:03
Gríðarlega glaður hoppar hann nú á hludda-bódda-leiðinni, í skugga pervertisma alþingismanna
Dásamlega er það nú yndislegt, að litli kúturinn hann Steingrímur Johoð skuli vera búinn að læra nýja tískuorðið ,,útsettur". Steingrímur er með þessu framfaraskrefi, að fóta sig í rauninni semsagt í nútímanum á gríðarlega lausnarmiðaðan hátt, sem í raun og veru er semsagt gríðarlegt samtal í þágu hludda-bódda-leiðarinnar, sem hefir öðlast gríðarlega lausnarmiðaðar vinsældir. Svona getur nú ræst úr sjálfhverfum grobbdrengjum af Langanesi og do do do.
En það er í rauninni ekki alveg nýtt, að Steingrímur Johoð sé semsagt í rauninni á hludda-bódda-buxunum. Hann hefir og átt samtal við Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn og kysst hann á rassinn í fagnaðarvímu. Það var líka fjarska lausnarmiðað af honum og Jóhönnu, að hirða íbúðir í þúsundavís af öreigum og selja þær í höndur útrásarvíkinga. Það var réttlætið, jafnaðarmennskan, vinstrihreyfingin og allur kjaftavaðallinn fram að því.
Já, þau fóru semsagt í raun og veru sérstaka lausnarmiðaða hludda-bódda-leið í gríðarlegu samtali við kröfuhafa, samherja, skiptastjóra og fleiri velunnara Hrunsins, þúveist, aaammm, héddnahér. Og þó að upp hafi komist nýverið um mannvonsku og pervertisma á Alþingi, sem hefir raungerst í sérstakan öfuguggahátt, þá heldur lífið áfram, og um að gera fyrir þingmenni að þukla hvurn annan og þreifa fyrir sér um gríðarlega lausnarmiðað samtal um semsagt nánari útsetta úrlausn á gríðarlega flóknum samlegðaráhrifum tveggja þingskörunga, öðrum í jakkafötum, tómum, hinum í pilsi og með gríðalega þykkan og útsettan gerfiullartrefil, margvafinn um hálsinn. Og hvað er að því, að til dæmis tveir eða þrír þingmenn, taki sig saman um fá sé lausnarmiðað dodo í vinnunni, við skulum segja inni á taðhúsi Alþingis, eða í góðu miðstöðvarkompunni, sem hagvanir vita manna best hvar staðsett er í hinu útsetta og lausnarmiðaða og gríðarlega Alþingishúsi við Austurvöll.
Viðbót: Hvað ætli Lilju Mós og Guðfríði Lilju, og fleiri fyrrverandi þingmönnum VG, finnist um vandlætingu Steingríms í dag gangnvart eineltisseppum og yfirgangshundum, sem virðast leika lausum hala á Alþingi í dag?
![]() |
Þingmannsstarfið mjög útsett fyrir áreitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2020 | 19:20
Draga kynfærin á eftir sér í bandi eins og hund, - eða hvað?
Ljóta orgían þetta ekkisens Alþingi okkar. Þar sitja að minnsta kosti til hálfs, sálsjúkar veimiltítur, dramadrottningar og vesalmenni. Hvern fjandann á eiginlega að þýða hjá þjóðinni að kjósa þessháttar dínglumdángl á þing? Það er ófyrirgefanleg vanræksla og ábyrgðarleysi. Og hverskonar stjórnmálaflokkar eru það sem ekki getað skaffað annað en svona endemis liðleskjur til æðstu trúnaðarstarfa landsins? Það væri gustukarverk að slá slíka flokka af á einu bretti.
Það talar og talar um eitthvert dularfullt fyrirbæri, sem það kallar ,,kynbundið áreiti". Hver skrattinn ætli það sé? Eru þeir sem eru með kynbundið áreiti með kynfæri sín eða annarra í bandi og leiði það á eftir sér eins og hund? Eða hvað er eiginlega um að vera? Hvers konar ólag er þetta á kynfærum þingmanna? Er raunhæft að gera kröfu til þess að þingmenn séu allir sem einn geldingar, kynlausir, kynfæralausir, allslausir og vitlausir?
Ef niðurstaða þessarar kynlegu skoðanakönnunar meðal þingmanna er rétt í alla staði vandast málið. Hvaða rustar ólu þessa þingmenn upp, sem látaskepnuskap og óeðli stjórna gjörðum sínum í umgengni við starfsfélaga sína? Voru þessum aumingjum ekki kenndir mannasiðir? Eða er kennsla á mannasiðum brot á frelsi og mannréttindum kókópuffskynslóðarinnar, sem óx úr grasi á nýfrjálshyggjutímunum? Víst er um það, að undanrennugalskapur, úrkynjaður eins og kapítalismi síðustu ára, hefir fjölmennt á Alþingi upp á síðkastið; villilýður, sem þekkir ekki gjörla mun á réttu og röngu eða sanngirni og rangsleitni og veður áfram í sjálfumgleði, athyglissjúkdómi og græðgi, með öðrum orðum: siðblindur, siðlaus og siðvilltur lýður, óhæfur til starfa í þágu almennings.
![]() |
38% þingmanna orðið fyrir einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.5.2020 | 18:21
Þær dragtklæddu nenntu ekki að mæta
Jæja, nenntu flugfreyjurnar ekki að mæta á samningafund? Það var þeim líkt. Og svo ku Bandaríkja-Solveig styðja þær heilshugar í bráð og lengd, bak og en þó einkum fyrir. Það er haft eftir Solveigu að flugfreyjur, þótt dragtarklæddar séu í vinnunni, séu sannkallaðar verkakonur, Eflíngarkérlíngar, með sigg í lófum. Það má með sanni segja að vinnudeilur séu með fjörugra móti þetta vorið.
Að verða flugfreyja, er draumur lítilla telpna og telpudrengja, og vissulega eru uppáklæddar flugfreyjur ímynd hins glimmerborna efrimillistéttarfémínísta. Það er glæsilegt. Enn glæsilegra er að forkvendi láglaunakvenna skuli hafa gert þær að sínum sigggrónu skreiðarkérlíngum og grundvöll einhverrar byltingar, - hvernig byltingar veit aunginn, enda er það víst aukaatriði.
Eitt sinn lentu þau frú Ingveldur og Kolbeinn í dragtklæddum flugfreyjum. Það var frú Ingveldur, sem laumaði annarri lúkunni upp undir pilsið freyjunnar, um leið og hún strunsaði flugvélargangsins millum sætisraða, og kleip. Það var sem freyjan, þessi glimmeraða og ilmavatnsþefjandi dúkka, hefði fengið íllt raflost uppum sig og hárin risu eins og á villiketti í slagsmálaham. Auðvitað trúði flugfreyjan því ekki upp á konuna frú Ingveldi að hún hefði gert sér þetta, því flugfreyja þessi er glámskyggn og illa að sér í prettum mannlífsins. Því fór sem fór. Og í stað þess að beina íllsku sinni að frú Ingveldi, með það að markmiði að henda henni út úr flugvélinni þarna í tíu kílómétra hæð, réðist hún á blásaklausan karlmann í sætaröðinni við hliðina á frú Ingveldi og Kolbeini, klóraði hann í framan eins og hamslaust villidýr og beit í nefið á karli svo stór sá á honum. Þegar flugvélin lenti var mannauminginn seldur í höndurnar á lögreglunni í Djakarta og hefir ekkert til hans spurst síðan.
![]() |
Samningafundi frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2020 | 17:37
Hefjum sinuelda aftur til vegs og virðingar
Ekki viljum vér vera minni en þau lönd þar sem skógareldar geysa. Því miður höfum vér ekki enn nægilega skóga til að kveikja í svo af verði skógareldur. Nei nei. Gömlu mennirnir, forfeðurnir, glæpaurtirnar frá Norðvegi, létu þræla sína írska og skoska höggva landnámskóinn niður í brenni og til kolagerðar. Síðan hefir verið fátt um elda í skógum hjá oss. Þeir kalla þennan hégóma í Norðurárdal ,,gróðurfarselda" eða eitthvað ámóta skammarlegt. Enn skammarlegra er þó að ónáða slökkviliðsmenn með því láta þá eltast við auvirðilega sinuelda og sviðnan á mosaþembum.
Í þá gömlu góðu daga, þegar allt var gott og blessað og fólkið vinnusamt og guðhrætt, var maður sendur tíu ára og þar um kring með eldspýtustokk út á mörkina til að kveikja elda í sinu. Þetta var vandaverk, sem skyldi haga þannig að girðingarstaurarnir mundi ekki verða eldinum að bráð. En stundum varð lítt við ráðið og nokkrir girðingarstaurar voru að leik loknum eins og illa farnir eldibrandar. Þegar vindátt var hagstæð kveikti maður upp rétt fyrir ofan sjávarmál, en síðan sá golan um að láta heilu fjöllin standa í ljósum logum og reykurinn sást í öðrum héruðum. Já, maður hugsaði sér oft gott til glóðarinnar með Búlandshöfðann á vorin og indælt að sjá hann hverfa um stund í eldtungum og þykkum reykjabólstrum.
Nokkrum dögum eftir að sinan og mosadrullan voru brunnin var hlíðin orðin vel græn eins og upplitaður framsóknarskrokkur á Klaustri og fuglarnir réðu sér ekki fyrir kæti og byrjuðu að verpa í þúfnakollum, sem fyrir skömmu síðan voru brunarústir einar. Þegar lambfénu var sleppt út í frelsið vóð það þegar upp þangað sem eldurinn hafði logað glaðast og lömbin, þá lítil og óæt, átu sína fyrstu magafylli af splunkunýju grængresi. Um haustið vóru þau orðin gríðar stór og feit svo lýsið bókstaflega lak af af lærum þeirra og síðuhuppum þegar þau vóru orðin að hangiketi á jólunum.
![]() |
Mikil eyðilegging í Norðurárdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2020 | 15:37
Skeifan á fýldu fésinu er alveg milljón
Hún kann að orða hlutina þegar kemur að vinum hennar, þeim Samherjum, hún Lilja Rafney. Enda er kérlíng ein af mörgum, sem segjast vera á móti kvótakerfinu í sjávarútvegi en en eru því fylgjandi í verki, alveg inn að innstu hjartarótum. Ef Lilja Rafney væri kvótaandstæðingur væri hún ekki í flokki með Steingrími Johoð, þeim veleðla kvótadýrlingi, og Swabbófjölskyldunni. Einnig: Ef Lilja Rafney væri sósíalisti væri hún löngu skilin að skiptum við Steingrím, Katrínu, Swabbógengið og undanrennutútturnar. En af því að Lilja Rafney hefir, af veikum mætti, reynt að þvaðra þvert á sínar raunverulegur skoðanir, þóttist vera vinstri eitthvað og sosialist, sona eins og Pétur Þríhross, þrátt fyrir að vera rækilega samdauna auðvaldsþjóðskipulaginu og arðræningjunum, er hún einlægt í fýlu, sannkallaðri skítafýlu, með bæði munnvikin teygð langleiðina niður á læri.
Það er erfitt hlutskipti að vera Lilja Rafney, því ekki er tekið út með eintómri sældinni að hafa tungur tvær eða þrjár og jarma sitt með hvurri. Við viljum öll, að Lilja Rafney verði frelsuð með því að færa Sjálfstæðisflokknum hana að gjöf, - nú, eða Framsókn eða Klausturmeraflokknum. Á fyrsta fjórðungi síðustu aldar orkti góðskáld eitt heima í héraði: ,,Úti í snjónum flokkur frýs, fána sviptur rauðum. Síðar bætti hirðskáld Swabbóana við: ,,Ólafur Ragnar Grímsson grís gekk að honum dauðum." En nú til dags er fátt um skáldmælta menn og hagyrðinga, ekki síst í VG. Þó fannst í brjóstvasa eins VG prelátans miði með dulitlum kveðskap á þegar honum var stungið inn rétt eftir síðustu áramót.
Ekki er að því að spurja, að ljóðmælin á miða VG þorparans, sem fór í steininn, voru úr hófi háfleyg og gáfuleg, enda VG gáfumannafélag, og ekki á allra færi að skilja þessháttar mannvitsvísdóm. En listaverkið hljóðar einhvern veginn sona:
,,Á Sjúgandafirði sýpur hún á sosialismus að sunnan,
(og lýgimálum af Langanesi).
Þetta er nú meiri tjörutunnan,
tórir sæl við gaflinn þunnan.
En kjóllinn hæfir fýldu fési
og fnykurinn finnst uppi á Akranesi."
![]() |
Hlutabréf í Samherja sumargjöf í stærri kantinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 6
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 1545575
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007