Bloggfærslur mánaðarins, mars 2021
17.3.2021 | 21:53
Snilldarhugmyndin um heilsuvöruna ,,Merarsmér"
Frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar fengu fyrir nokkrum árum þá snilldarhugmynd að halda mylkar konur, mjalta þær og búa til úr mjólkinni afurð sem þau settu á neytendamarkað undir nafninu ,,Merarsmér". Þau ráðlögðu kaupendum að smyrja Merarsmérinu ofan á hrökkbrauð og éta það með kaffi eða tevatni. Í annan stað gjörðu þau fádæma dýrmæt smyrsl úr Merarsmérinu. Smyrslin voru seld í túpum og kostaði tuttugu gramma túpa um það bil eitthundraðþúsund krónur, per/stukk og voru brúkuð til að auka fólki náttúru.
Til að byrja með gekk allt vel og Merarsmérið rokseldis, hvort heldur var til viðbits á brauð eða í lostavekjandi túpum. Svo gerðist sá fáheyrði en heldur sorglegi atburður, að þrjár persónur kvöddu þennan heim skyndilega eftir að hafa neytt Merarsmérs úr túpu. Þá komu vísindamenn til skjalanna og felldu þann úrskurð að Merarsmér þeirra hjóna væri eitrað. Í millitíðinni milli andláta hinna þriggja og niðurstöðu vísindamanna dóu allt að fimm manns drottni sínum af Merarsmérinu, en vel á fjórða tug misstu vitið fyrir fullt og allt.Þegar staðan var orðin eins ískyggileg og að ofan greinir, framleiðsla þeirra hjóna stöðvuð. En í stað þess að setja frú Ingveldi og Kolbein í gæsluvarðhald handtóku Hálfdán Varðstjóri og hans sveit kerlingarnar sem gengt höfðu stöðu mjólkurpenings og stungu þeim inn. Þjófélagslegrar stöðu sinna vegna kom aldrei til álita að ákæra hjónin, en þau létu framleiðslufyrirtæki sitt fara viðstöðulaust á hausinn og hvarf þar stór milljonaskuld við bankann og lífeyrissjóðina upp til hymmna og mun aldreigi sjást meir í þessum heimi eða öðrum. Mjólkurkonurnar sitja eflaust inni enn í dag og verður ekki sleppt lausum í bráð.
![]() |
Mjólkar hestana sína oft á dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2021 | 16:08
Drengurinn með Drjólann
Allt er þetta gott og blessað, nema hvað ég kannaðist lítillega við piltkorn sem kastaði upp við upphaf hverrar viku. Um þennan nemanda var orkt af ekki minni manni en skólaskáldinu:
Drengurinn með drjólann,
drullaðist í skólann.
Þar sat hann timbraður og tærður,
talsvert illur og ærður.
Drengurinn með drjólann
dró loks eld í skólann.
Mjög drakk mjöð úr flösku
meðan skólinn brann til ösku.Í dag kunna sveinar, haldnir ógleði í skóla, ekki til verka. Þeir sitja sljóir og titrandi til vikuloka, þá gubba þeir á gólfið. Fyrir skömmu varð að fá vörubíl með opinn pall til að keyra útældum skólabörnum í brott frá sólanum, því kennararnir þoldu ekki uppsölufýluna og voru reiðir. Og ekki ætla ég að þreyta lesendur með því að segja söguna af barnaskólatelpunni, sem kom stundum hífuð skólann og með bokku í skólatöskunni. Hún var kölluð Berta Bokka því faðir hennar hét Friðbert, en sjálf heitir skjóðan Jórunn Hk. Friðbertsdóttir.
Að lokum leggjum vér til að skólabarnaforeldrin við hinn baneitraða Fossvogsskóla fari um næst helgi að dæmi ,,Drengsins með Drjólann", eða viði að sér kraftgóðu sprengiefni og láti það um að svipta hinum baneitraða skóla um koll. Það var sem vér segjum: farsæll endir á hvimleiðu vandamáli.
![]() |
Kastaði upp í lok hverrar viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2021 | 14:06
Þá gaspra þeir ögn í lýðskrumsskyni
Hræddur er ég um að péníngalæknarnir kippi sér lítið upp við dulítinn grásöng lítilfjörlegra undanrennuunga úr hænsnakofa Stenngrims Johoð. Þeir vita sem er, sérgreinahetjurnar pénígaóðu, að garmar á borð við Proppa VG eru engi bógar til eins eða neins, liðónýtir og ómótaðir til alls. Ef sérgreinalæknir með höfuðið fullt af péníngahugsunum mundi mæta Proppa litla á götu mundi hann bara grípa í stélið á honum og kasta honum af hendi eitthvert langt út í buskann.
Og þó Proppi og önnur smámenni í VG séu að derra sig og ýlfra og ískra í lágum hljóðum núna, meina þeir ekkert með því, en af því það eru að koma kosningar finnst undanrennuungunum rétt að sýna örlítinn lit, þókt undanrennulitur sé, og gaspra ögn í lýðskrumsskyni til að varna því að verða ekki kosnir burt af þingi með stélfjaðrirnar milla lappanna. En auðvitað á að kjósa VG út af kortinu í haust, því þeir hafa sýnt sinn innri mann og hvað í þeim býr. Við viljum ekki slíkar hlandkollur undir fölsku flaggi inn á Alþingi meir.En það verður að taka á peningasjúku auðlæknunum með tveimur hörðum hrútshornum. Það getur varla gengið í okkar samfélagi að slík óútreiknanleg fól fái að vaða hér uppi, mun verri en nokkur sjúkdómur sem þeir þykjast geta læknað fyrir morð fjár. Og ef þessir karlar fá ekki þær upphæðir fjár sem þeir vilja úr sameiginlegum sjóðum landsmanna eða bara beint úr vasa hins veika, mega hinir fársjúku öreigar bara drepast heima hjá sér eins og sárasjúkar rottur í holu.
![]() |
Um ólögmæta hótun að ræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2021 | 13:18
Hann mun tipla eins og snyrtur og balsameraður skrokkur inn kirkjugólfið
Þá hyllir undir fallegt brúkaup á Höfuðbólinu. Það verður hugnæmt þegar Bergþór okkar, Beggó á Klaustri, tiplar eins og snyrtur og balsameraður skrokkur inn kirkjugólfið með brúðarmeyjarnar Gunnar Braga og Sigmund Davíð hangandi í taglinu á sér. Og brúðurin, Jésús minn góður Gvöð, svo ómótstæðileg í Heimdallsstuttbuxum og með brúðarslör framleitt í veiðarfæraverksmiðju Namibíu. Eitt brúðkaup getur ekki orðið hátíðlegra. Og Albertínu, Lilju og bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum er auðvitað boðið, og það þrátt fyrir að farið sé að falla verulega á þann hrjáða bæjarstjóra. Frjálshyggjuklerkurinn Hjálmar ku eiga að gefa verðandi brúhjón saman með nokkrum laglegum tilvitnunum í ólánssnatann Milton Friedman. Svo verður Klaustursálmurinn sunginn.
Brúðkaupsveislan verður haldin í Valhöllu og þar verður passlegur nautsskrokkur, steiktur og gljáandi, liggjandi í passlegri hæð á langborði. Svo verður dansað. Með fyrirhuguðu brúkaupi verður innganga Miðfótunga í Sjálfstæðisflokkinn innsigluð og munu þeir hverfa hljóðlega til sæta í Valhöllu, rétt eins og annar frægur flokkur gjörði skömmu fyrir miðja síðustu öld. Verður þá lokið einni af fleiri aðgerðum í poletiskri hagræðingu. Það verður seint talinn héraðsbrestur þókt Miðfótungar deyi Mammóni sínum inn í Sjálfstæðisflokkinn.Það þóktu og nokkur tíðindi þegar frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður gengu í heilagt hjónaband. Um langa tíð hefir frú Ingveldur verið í langinnsta hring raunverulegra ráðamanna í Valhöllu og Sjálfstæðisflokknum yfirleitt, en Kolbeinn sérlegur ráðsmaður og yfir skuggabaldraráðuneyti gömlu Framsóknarmaddömunnar. Þau voru gefin saman á hægri bakka Framsóknarfjóshaugsins af þeim síra Baldvini og séra Atgeiri p. Fjallabakssen. Veislan fór fram á urðinni fyrir neðan Valhöllu, sem þá var í byggingu og lauk henni með þjóðlegum slagsmálum eins og þau gerðust best í réttunum í gamla daga.
![]() |
Bergþór Ólason og Laufey Rún eru nýtt par |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2021 | 15:41
Reiðhjólastuldir fyrr og nú
Svo það er þá horfið, týnt, tröllum gefið. Það hlaut að enda með þessu. Vel man, ég þá ég var sjódrengur á síldarskipi í Norðursjó, öll reiðhjólin sem voru í Hirtshals á Danmörku í þá daga. Oft kom fyrir að piltur og piltur, sem hafði farið á knæpuna en nennti ekki að skakklappast fótgangandi um borð, tók sér næsta reiðhjól traustataki og þaut í einum rykk niður á bryggju, kastaði hjólinu langt út í höfn, og skreið um borð. Það gat líka verið bráðhættulegt að vera Íslendingur, og vera að flækjast einn að kveldlagi um götur þar í Hirtshals, því danskir ofstopamenn lágu hvarvetna í leyni og slógu Íslendinginn í rot, formálalaust, ef þeir komust í færi.
Eina ferð man ég undurgóða frá Álaborg til Hirtshals. Það var komið undir morgun og piltarnir ölmóðir og þráðu að komast um borð í skip sitt til hvíldar. Þeir tóku leigubíl og var stefnan sett á Hirtshals. Þegar þangað kom báðu þeir leigubifreiðarstjórann að nema staðar fyrir ofan Hirtshalskrána, þeir ættu þar erindi og kæmu fljótt aftur. En í stað þess að sinna viðskiptum á kránni, óðu piltarnir, vel upp aldir og skikkanlegir, gegnum húsið og út að neðanverðu þar sem þeir slógu eign sinni á reiðhjól er það stóðu og hjóluðu niður að skipshlið. Vitanlega stungu þeir hjólhestunum niður í höfnina millum skips og bryggju. Og þannig fór um sjóferð þá. Leigubifreiðarstjórinn fékk sem sé ekki krónu fyrir ferðina frá Álaborg og reiðhjólamennirnir sáu hjólhestana sína aldrei meir. En Hirtshals kro var ágætur staður í þá daga. Það held ég nú.
Með þessu er ég ekki að segja að drukknir og þreyttir útlendir piltar hafi stolið hjóli Lífar og þakkað fyrir sig með að kasta því í Reykjavíkurhöfn. Öðru nær. Allt eins gæti verið að neftóbaksklístraður bóndadurgur ofan úr sveit hafi átt leið um, ágirnst hjólið Lífjar og stolið því eins og marghertur og reyndur sauðaþjófur frá átjándu öld. Svo gæti sem best verið að ræninginn sé nútímakvenmaður, svona álíka og Líf, sem talið hefir að henni vantaði aðeins eitt upp á útlit sitt, en það væri að líða eins og hundraðogeinnmussa um göturnar á góðu reiðhjóli, sem hún hefði því miður ekki efni á að kaupa sér í augnablikinu. Vér ráðleggjum að Líf, þeim tvíellefta stjórnmálaskörungi í hundrað og einum að fá sér dráttarvél til að brúka sem fararskjóta á borgarstjórnarfundi, en þessháttar tæki mundi ein blönk lopamussa og hussumkussa aldrei getað stolið.
![]() |
Hjól Lífar horfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2021 | 21:48
Hann saung frægan dúett inn á plötu með frú Ingveldi
Hann kvað vera óttalegur tralli hann Helgi. Svo söng hann eitt sinn frægan dúett inn á plötu með frú Ingveldi, mig minnir hann heiti ,,Í kartöflugarðinum heima" og varð fádæma vinsæll hér heima, í Færeyjum og í Norður Noregi. Eflaust muna færri efir númerinu sem frú Ingveldur grenjaði inn á plötu kringum 1970; sá andskoti var bannaður í opinberum flutningi í Ríkisútvarpinu af onum Jóni eitnum Þórarinssyni tómskáldi og tómlistarstjóra.
En það sem verra var í sambandi við frumraun frú Ingveldar á tónlistarsviðinu var að óskiljanlegt fólk gjörði sér lítið fyrir og stal upplaginu af plötunni og brenndi þær allar á báli eins og gjört var við galdrakarla og nornir í gamla daga. Höfundur lags og ljóðs hefir með öllu glatast, hvernig sem á því stendur, og frú Ingveldur sjálf, ráðsett sem hún er orðin, verður þögul sem gröfin ef á þetta málegni er minnst í hennar návist.
Úr ljóðinu frú Ingveldar hafa því miður að eins geymst tvær ljóðlínur, annað allt er glatað og aunginn maður þykist muna neitt. Þessar tvær ljóðlínur eru í þokkabót þannig að vaxtarlagi að vart er við hæfi að birta þær opinberlega. Og þó - þetta eru nú einusinni ómetanleg menningarverðmæti. Með leyfi hljóða línurnar einhvernvegin á þessa leið: ,,Svo ryðjumst við inn í rottugeymsluna og rotum og kremjum þær til sprengs - en uppi á loftinu liggur læragná með færin sín blá, af kulda og vosbúð, en kynæðið lifir í loftinu á loftinu undir loftinu og ..." Eftir þetta óx ljóðið af öfgum og ofsa of endaði að sögn með fullnægingu. Já, það er heldur munur á listinni þá og helvítis ruslinu sem okkur er boðið upp á í dag og enginn hefir rænu né manndóm í sér að banna og brenna.
![]() |
Tónleikar Helga Björns í beinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2021 | 20:30
Bruðl, óráðsía, svall - og súpa soðin að Þingvöllum
Bölvað ekkisins bruðlið alltaf þarna á Þingvöllum. Nú ætla þessir óráðsíugemsar, Þingvallanefnd eð hvað það nú heitir, að fylla allt af kömrum þarna, eins og ekki sé nógu gott fyrir þessa fáu flækinga sem villast að Þingvöllum að skíta í Öxará eða bara beint í Þingvallavatn. Fyrst hægt var að drekkja kvensniptum í Öxará í gamla daga geta landshornasirklar og landafjandar gert sér að góðu að kukka í bölvaðan lækinn.
Einstaka sinnum hafa þau góðu sæmdarhjón farið í útileguleiðangur til Þingvalla og einatt haft með sér gott föruneyti. Fyrir um fjéregtíu árum fóru þau ásamt Brynjari Vondulykt, Indriða Handreði, Máríu Borgargagni, Óla Apaketti á stuttbuxunum og Sigurveigu heitinn Dræsu, sem þá var í fullu fjöri, fótgangandi úr Reykjavík austur til hins forna þingstaðar, hvar Jónas nokkur vildi endurreisa Alþingi á nítjándu öld. Þau fóru fótgangandi og lá leiðin um Mosfellssveit og upp Mosfellsdal. Að Gljúfrasteini áðu þau í bifreiðastæði skáldsins, lyftu pyttlum og pelum og sungu ,,Öxar við ána" af slíkri raust að skáldið rauk upp með andfælum og rak komumenn eins og sauðfé úr túni og beitti á þau rakka sínum blóðgrimmum. Upp á Mosfellsheiði hreppti ferðaflokkurinn svartaþoku og villtist út og austur heiðina í tvo sólarhringa, en þá birti til.
Á Þingvelli komu frú Ingveldur og þau hin að kveldi dags og slógu upp tjöldum. Þegar því var lokið hófst eins og hendi væri veifað upp stórdrykkja og voru drukkin minni þeirra fornkappa, sem hópnum rak minni til að uppi hefðu verið. Þá búið var að drekka í minning allra þeirra Grettira, Gláma og Njála upp aftur og aftur, ruddust Kolbeinn og Indriði Handreður eins og graðneyti inn í tjald tveggja franskra hjóna og gjörðu sér þar dátt við heimafólk, en Vondalyktin hafði komið sér fyrir hjá alræmdu allragagni, sem fyrir slysni lá við í tjaldi á völlunum. Hinsvegar leituðu frú Ingveldur og Borgargagnið ásta hjá Óla Apaketti, en komust brátt að raun um að lítið gagn var af þeim pilti til hvílubragða og slógu hann því í rot og drógu hann buxnalausan úr tjaldi og lögðu til á árbakkanum. Um morguninn færði Kolbeinn frú Ingveldi nærbuxur beggja franshjónanna og bauð henni að sjóða af þeim súpu, sem hún og gjörði og hafði út í fáeinar gulrætur og hnefafylli hrísgrjóna. Var súpan etin í hádeginu og gjörður góður rómur að.
![]() |
Ný gönguleið í hjarta þinghelginnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2021 | 17:04
Nei, þau munu aldrei styggja samherja sína
Auðvitað vill dýralæknirinn á vegadeildinni ekki styggja eigendur ryðjárnahrúgunnar, sem telst vera flóabáturinn Baldur í dag. Það er nefnilega versti dónaskapur sem til að hnýta í þá drengi eða finna að við þá, hvað þá leyfa sér að rifta samningum við þá bögubósa. Og á bak við dýralækninn í Vegagerðinni er kvakar annar dýralæknir undir með hinum fyrri, það er ófagurt spangól.
Og þó svo ryðstampurinn, sem kallaður er Baldur og á að vera flóabátur og ferja, hefði rekið upp í fjöru með manni og mús í fyrradag í norðaustanbrælunni, þá hefði ekki hvarflað að vegagerðardýralæknunum að segja samningi ríkisins við skipafélagið upp, því þetta eru ábyrgir dýralæknar og samherjavinir. En í hlöðunni við Framsóknarfjósið klúkir gamla Framsóknarmaddaman í heybælinu og hefir ofan af fyrir sér með að bölva hinu og þessu í sand og ösku meðfram því hún sötrar af ákavítisflöskunni sinni. Jafnvel þessi fjörgamla kerlingarskrukka vill ekki segja upp samningi um Breiðafjarðarsiglingar því hún hræðist að þá verði kveikt í hlöðunni og Fjósinu og hún brennd inni eins og rotta.Nei nei nei, ríkið ætlar ekki að kaupa nýja ferju og reka hana á sama hátt og siðaðir menn mundu gera. Sjálfstæðismenn þurfa nefnilega svigrúm til að misnota fjármuni ríkisins, bruðla með þá og kasta þeim út í veður og vind. Og þó uppi sé munnsöfnuður um að nauðsynlegt sé að aðskilja ríki og Sjálfstæðisflokkinn mun gamla Framsóknarmaddaman og Logi Vindbelgur á Samfylkingunni koma í veg fyrir þessháttar bras á snyrtilegan hátt, því fyrst og síðast eru þau samherjar samherja sinna og bræðralag þeirra í kapítalismanum við Sjálfstæðisflokkinn er haldið órjúfanlega saman með ósýnilegum reipum og vírum.
![]() |
Ekki fyrsta val að segja samningnum upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2021 | 12:16
Þá hefir þeim tekist að buga ljúfling allra sannra samherja
Þarna sjáiði hvað þið eruð búnir að gera, bölvaðir ódámarnir ykkar. Nú hafa orð ykkar, andstyggilega ljót og óþverraleg, gert það að verkum að einn okkar bestu Íslands sona er orðin svo sálarmyrtur eftir aðsúg ykkar að honum að honum hafa nú fallist höndur og hyggst draga sig frá lífsstarfinu, sem var honum svo kært. Já, bölvuðu lítilmennin atarna, ykkar verður minnst í Helvíti þann dag sem okkar kæri samherji hrökklast frá kjötkatlinum í hinsta sinn.
Hinsvegar er það alveg hárrétt hjá Kristjáni okkar, að þetta er komið gott af hans hálfu í poletikinni. Honum hefir tekist sem sönnum samherja einum er lagið, að standa dyggan vörð um hagsmuni samherjanna í kvótamálunum og auðlindaskattinum. Meðal annars sýndi hann sinn fagra innri mann þegar hann hringdi einn morguninn, næstum því upp úr þurru, í aðalsamherjann og spurði hann hvernig honum liði. Þessi fallega hringing sýndi þjóðinni hversu ljúft hans hjartalag er og hve sönn samhygð hans er með raunverulegum samherjum. Enda sagði forsætisráðherra við þetta tækifæri, að hann Stjáni væri með gullhjarta.
En nú er komið að leiðarlokum: Vondir menn og enn verri konur hafa hrakið Stjána af leið og má segja að hann komist ekki lengra, sitji fastur ofan í skurði, samherjaskurði. Í dag hrærast hjörtu vor til samúðar og meðaumkunar með Stjána, enda erum vér öll samherjar hans þegar öllu er á botninn hvolft. Þó er huggun harmi gegn, að enn hefir óþjóðalýðnum ekki tekist að buga sjálfstæðishetjuna Bjarnaben, og Gölle a. er enn að öllu leyti ódauður, sem og hnáturnar sem þamba hvítvín, éta humar og öskra eins og naut af frjálshyggjukvölum. En humar er óþverramatur og eiginlega ekki matur, því kvikindið humar lifir á því að éta hræ. Vér skulum samt þrauka gegnum sorgarferlið sem að oss er rétt og heita því að hefna Stjána bónda og ryðjast með vopn á höndur andskotum hans og óvildarskepnum.
![]() |
Kristján Þór fer ekki fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2021 | 19:37
Sértrúarsöfnuðurinn Vantrú byggir kirkju
Það hefir ekki legið í láginni að sértrúarsöfnuðurinn Vantrú hyggur á framkvæmdir. Það stendur sem sé til af þeirra hálfu að byggja sér kirkju, boðlegt musteri, þar sem Vantrúarsöfnuðurinn getur legið á bæn allan sólarhringinn og velt sér hvurt innan um annað eins og umlandi svín og nautgripir. Þá hefir söfnuðurinn komið sér upp klerki, afar vantrúuðum náunga, sem hefir unnið sér til frægðar að berjast á móti draugagagangi og staðhæfa á mannamótum að aungvir draugar séu til. Á einu mannamótinu fóru viðstaddir með kauða og lögðu hann á grúfu yfir mátulega háan, jarðfastan stein og hýddu hann þar með borðtennisspaða þar til báðir þjóhnappar hans ljómuðu eins og tvær eldrauar sólir..
Kirkja Vantrúar verður með fjóra turna; einn fyrir Jón Krukk, annan fyrir Jón Hrak, hinn þriðja fyrir Saura-Gísla og hinn fjórða fyrir Pokurinn. Þegar musterið verður risið mun musterishöfðinginn taka menn til altaris og láta þá bergja á sakarmenntum Vantrúar, Coka Cola og Abelsíni frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar meðan kórinn syngur: ,,Andrés var þar utan gátta eftir að allir fóru að hátta." Að lokum verða sungnir sálmar um Pokurinn og þá pilta.
Fram að þessu hefir Vantrú, eins og alþjóð veit, haldið vakningarsamkomur sínar undir berum himni úti á víðavangi eða yfirgefnum fjárhúsum eða hænsnakofum í eyðihreppum. Þetta er óheppilegt fyrirkomulag og hafa ýmsir Vantrúarmeðlimir fengið lungnabólgu af helgihaldinu í kuldatíð en aðrir króknað á leiðinni heim. Því miður kom það fyrir að einn hinna ólánssömu sem króknað hafði eftir Vantrúarmessu á Rútstúni gerði sér lítið fyrir og gekk aftur og birtist söfnuðinum sem afturganga, en Vantrúarpaurar trúa alls ekki á draugagang. Þó máttu þeir leggja á flótta frá hálfkaraðri helgistund, sem þeir héldu í gamalli skreiðarskemmu suðrá Miðnesi, því draugurinn reið þar húsum svo ofboðslega að Vantrúarbersekir urðu drulluhræddir og tóku til fótanna og hlupu hvur í sína áttina út í buskann.
![]() |
Nýtt ákvæði muni réttlæta fjárútlát til kirkjunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 1545814
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007