Bloggfærslur mánaðarins, júní 2021
30.6.2021 | 11:31
Saurskriðan mikla varð fólki að bana og olli miklu tjóni á eignum
Þær eru hættulegar þessar saurskriður, það er gömul saga og ný. Meðan Ólafur heitinn bóndi var og hét bar hann saurinn og skepnum sínum og heimilisfólki upp á allstóran stall frammi á barði hér um bil uppi í hlíð fyrir ofan bæ nágrannans. Upphaflega hafði Ólafur í hyggju að geyma kúkinn þarna um stundarsakir, en dreifa honum síðan á tún þegar tækifæri gæfist til.
Því miður var eins og þetta tækifæri til dreifingar kæmi aldrei og Ólafur bóndi hélt áfram að aka saurnum frá heimilisfólki og skepnum á hauginn uppi á barðinu. Að fimmtán árum liðnum var skítahrúgan orðin ægilega stór, eiginlega risavaxinn og var farinn að gnæfa yfir sveitina. Og hún hélt áfram að vaxa, því grasbítar Ólafs bónda héldu áfram að skíta allt hvað af tók og það gjörði heimilisfólkið líka.
Svo var það eitt vorið, í asahláku, að stallurinn undir haugnum brast og öll ósköpin gossuðu niður brekkuna og kaffærðu fjós, hlöðu og íbúðarhús nágrannans á næsta bæ. Það var mikið tjón; allar kýrnar og kálfarnir fórust, heyið í hlöðunni eyðilagðist, og bóndinn, húsfreyjan og smalahundurinn Grani drukknuðu öll í saurskriðunni. Enginn þorði að krefja Ólaf bónda um skaðabætur, né láta hann standa á einhvern hátt ábyrgð á hruni haugsins, því hann var svo viðskotaillur og mundaði skotvopn sín að öllum vildu hafa tal af honum varðandi hið óhugnanlega slys. Það var ekki fyrr en hinn frægi hundur Ólafs bónda, Snati, hrinti honum við tækifæri með trýninu fyrir björg að réttlætið náði fram að ganga.
Fólk í áfalli hýst á hóteli eftir aurskriðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2021 | 21:43
Undrið skilur Dýragarðinn eftir, það er ljótt að sjá
Fyrst Brúarlandsundrið úr undanrennusöfnuði Stenngrims Johoð var svo artarlegur að lífga dulítið upp á þjóðgarðsnefnuna við Snæfellsjökul hefði hann átt að ganga lengra í þetta sinn og sneiða Dýragarðinn inn í þjóðgarðinn og láta síðan við svo búið standa.
Að eyða stórfé af sköttum almennings í að búa til bákn fáránleikans í skjóli ,,þjóðgarðs" undir Jökli er svo vitlaust að ekki það er ekki sinusinni hægt að hlæja að bölvaðri dellunni. Innan þjóðgarðsins er fátt annað en eyðimörk, leiðinlegar hraunnibbur og mosaþembur, og allt hefði þetta staðið óbreytt frá eilífð til eilífðar þó ruglaðir stjórnmálabesefar hefðu látið vera moka peningum, sem betur voru settir annars staðar, í þetta eyðimerkurdekur og þjóðgarðsóra.
Það hefir svo sem ekki farið framhjá okkur hinum, að þjóðgarðsómyndin atarna, hefir orðið snobbuðum stertimennum og harðlífiskerlingum tilefni til merkilegheita og til að auglýsa yfirstéttarónáttúru sína og lágkúru. En djöfuls óhæfa má það heita, fyrst Brúarlandsundrið var komið á vettvang, að drífa ekki í því að innlima helvískan Dýragarðinn í þjóðgarðsnefnuna kostulegu.
Stækka Snæfellsjökulsþjóðgarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2021 | 13:48
Mikil tækifæri eru fólgin í selís og hvalskyri, en tudda skal samt ekki reyna að mjólka
Sú var tíðin hér á landi að sauðir þóktu helst til fájúgraðir og nytlitlir til mjólkur. Ekki bætti úr skák, að þessar skepnur voru með öllu punglausar og gögnuðust því ekki ám um fengitímann. Aftur á móti röru sauðir í spikinu, enda var þeirra eina starf að éta og éta og voru lausir við að eyða kröftum í eltast við rollur með brókarsótt eða láta mjólka sig kvelds og morgna eins og kýr.
Nú er öldin önnur hvað sauðina varðar og er það í samræmi við þróun samfélagsins, nýfrjálshyggju hennar og péníngagefandi tækifærin, sem baula á péníngaelsknadi lágmenningarsauði úr öllum áttum og skúmaskotum. Nú er það meira að segja farið að mjólka sauðina og gjöra ís úr gumsinu, sem seldur er aldeilis illa heimskum ferðamönnum við okurprís. Sjáum til dæmis hana Önnu Máríu Sjúlls, sem hefir milkan sauð í vagninum sínum og mjólkar hann miskunnarlaust til ísgerðar. Það er mikill bíssníss og uppörvandi.
En tækifærin leynast víðar. Vel má mjólka urtur og hvalkýr og laga selís og hvalskyr úr nyt þeirra. Það má líka gjöra tilraun til að mjólka gelda karla og búa eitthvað spennandi til úr þeirra framlagi til ferðamannaþjónustunnar. Þó er rétt að taka öllum vara við að reyna að mjólka nautin, því þau eru geðstirð og lítt gefin fyrir fíflagang. Hver man ekki eftir húsfreyjunni á bænum sem fór drukkin til gegninga í fjósinu? Hún stakk fingrinum svo sannarlega í rangan þumal, og ekki svo sem nein furða því hálfgert rökkur ríkti í fjósinu. Aumingja konan fór básavillt og settist með mjólkurfötuna undir tuddann og hugðist mjólka hann. En tuddafjandinn var geðveikur af íllsku, rammt blótneyti, sem leyfði aungvum að koma fram við sig á óviðeigandi eða dónalegan hátt. Því sleit hann sig lausan af básnum er hann sá hvað verða vildi og lagði til mjaltakonunnar með hornum sínum og klossknúsaði hana til dauðs í flórnum. Eftir að konan var dauð og hann laus úr básfjötrunum, sá tuddinn sér leik á borði, því hann var mjök villtur og kynóður, og var hann því í þokkabót búinn að nauðga öllum kúnum þá að var komið.
Selur sauðamjólkurís við Hengifoss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2021 | 22:54
Mikil tækifæri framundan vegna gjörbreyttra aðstæðna
Í staðinn fyrir að færa Selfrussurum nýja brú yfrum Ölfusá væri nær að saga núverandi brú í sundur við báða enda og steypa henni í heilu lagi í djúp fljótsins í þeirri von að aldrei sjáist til hennar meir. Ef menn nenna ekki að beita sögum á brúarræksnið má vel sprengja hana í tætlur með dínimíti og aftengja lýðinn austan Ölfusár frá höfuðborgarsvæðinu. Norðlendirngar, Akureyringar og soleiðis fólk, geta sem best þotið suður Kjöl elligar Sprengisand ef þeim langar endilega að heimsækja Selfrussara og Rangæinga.
Einnig eru upp ráðagjörðir meðal dýralækna Vegargerðarinnar að taka þjóðveginn sundur neðan við Kambabrúnir; einnig í Þrengslum; eldgosið sér um að eyða Suðurstrandarvegi. Mikið mun ríkið og þjóðfélagið græða stórar fúlgur fjár í sparnað, ef áðurnefndar hugrenningar dýralæknanna verða að veruleika. Þá er bara eftir að komast að því hvur það var sem kúkaði á gólfið í Samgönguráðuneytinu. Eitt er víst og það er það, að ekki skeit þar nautgripur, sauðpéningur, né aðrir þarfagripir. Beinast sjónir manna nú helst að húskörlum gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem mjök eru á sveimi í Samgönguráðuneytinu um þessar mundir, öllum til tjóns.
Svo er annað alvarlegt mál í uppsiglingu: Sem sé spá vísindamanna þess efnis, að brátt snúi gosið mikli á Reykjanesi hrauntaumum sínum í útnorður og velli yfir Reykjanesbrautina á fimmtán kílómetra kafla og þar með verði ferðamannastraumurinn til landsins og frá landinu úr sögunni. Eflaust verður einhverjum létt ef Keflavíkurflugvöllur verður einangraður hólmi á Suðurnesjum þangað sem aunginn kemst nema fuglinn fljúgandi. Aðrir leggjast ugglaust fyrir, grénjandi og veinandi eins og stungnir grísir, og deyja svo drotni sínum öllum til ánægju. Það eru alltso mörg spennandi tækifæri í pípunum vegna yfirvofandi breytinga á ferðaferli innanlands og allir kjósa tækifærin, eins og einn nautheimsk frambjóðandatíta auglýsti sig með.
Umferðaröngþveiti á Selfossi: Nýja brú strax! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2021 | 22:16
Eitt sinn villtist Kolbeinn þegar hann ætlaði að hitta eiginkonu sína
Já, hann ætlaði að hitta eiginkonuna en villtist. Það er eins og maður hafi heyrt sona teoríu áður. Þetta kom einusinni fyrir Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann. Hann hafði skroppið út á lífið eftir vinnu á skrifstofunni og allt leit sæmilega út. Þegar knæpunni var lokað ætlaði hann heim að hitta eiginkonuna en hafnaði fyrir einskæran misskilning, hafvillu og náttblindu heima hjá verulega andstyggilegum hjónum, fullum af sora og óeðli.
Í höndum þessara óféta var Kolbeinn eins og viljalaust rekald og um níuleytið morguninn eftir vörpuðu þau Kolbeini klæðlausum og innilega svívirtum og misnotuðum á dyr og sögðu honum að halda kjafti að fara til Helvítis þegar hann reyndi veikum mætti að mótmæla meðferðinni á sér og óréttlætinu. Í Bankastræti tók lögreglan Kolbein Kolbeinsson fastann og kærði hann fyrir ölvun á almannafæri, gróft blygðunarsemisbrot og ónáttúru. Reyndar nenntu lögregluprjónarnir ekki að púkka lengi upp á Kolbein og köstuðu honum út úr lögreglubifreiðinni áður en þeir komust á stöðina. En áður en þeir viku Kolbeini úr bílnum létu þeir hann fá svartan ruslapoka og sögðu honum að vefja pokanum um óþverrann á sér.
Þegar Kolbeinn komst loks heim eftir átakanlegar hremmingar gat hann gefið frú Ingveldi greinargóða lýsingu á hinum andstyggilegu hjónum sem höfðu svalað viðbjóðslegum fýsnum sínum á honum. Frú Ingveldur brá snöfurmannlega við, bað mann sinn bíða heima meðan hún færi á vettvang atburðanna og jafnaði leikinn. Nokkrum dögum síðar voru andstyggilegu hjónin borin til grafar, án þess nokkur hirti um að grennslast fyrir um banamein þeirra. Þannig hefir frú Ingveldur ætíð unnið af heilindum að þeim verkum er hún hefir tekið sér fyrir höndur, enda hafa allmörg verk hennar þakkarverð þjóðþrifaverk.
Ætlaði að hitta eiginkonuna en villtist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2021 | 13:28
Upphafa áfengisneyslu og vígaferla frú Ingveldar
Snemma beygðist krókurinn hjá frú Ingveldi því ung var hún farin að hafa í staupinu. Móðir hennar, frú Ingveldur eldri, þókti nauðsynlegt að bjóða dóttur sinni besta hugsanlegt uppeldi sem hægt var að bjóða, og gaf litlu frú Ingveldi snemma hvannarótarbrennivín út í mjólkina í pelanum og fljótlega þar á eftir rauðvín og áfengt öl. Jafnframt gjörðist sú stutta errileg með víni og lék oft jafnaldra sína grátt þegar hún var undir áhrifum.
Þrátt eindreginn vilja auðnaðist frú Ingveldi ekki að feta alveg í spor Egils Skallagrímssonar, en hann vó sitt fyrst víg sex ára gamall, sem frægt varð. Hið næsta sem frú Ingveldur komst í nálgun við Egil á Borg sex ára var þegar stóra systir jafnöldu frú Ingveldar gjörði snarpan aðsúg að henni af því frú Ingveldur hafði einelt litlu systir þeirrar stóru, hlutgert hana og barið í rassinn með naglaspýtu. Frú Ingveldur brást við aðsúgnum með því að fara heim og sækja öxi, því hún var þá þegar gagnkunnug æskuverkum Egils. Því miður fataðist frú Ingveldi höggið þegar til kom, enda aðeins sex ára, og stað þess að höggva stóru systur í hausinn og í herðar niður, hjó hún einungis af henni hægri handlegginn upp við öxl.
Síðar á ævinni hefir henni tekist að vega óþurftarskepnur og illþýði og það án þess að upp hafi komist. Til dæmis eitraði hún fyrir Arinbirni Kolbeins Kolbeinssyni, náfrænda Kolbeins Kolbeinssonar eiginmanns frú Ingveldar, á afar sannfærandi hátt. Eftir byrlunina varð Arinbjörn fyrst kolmórauður á hörund, síðan heiðgulur og loks neongrænn og drapst svo. Matreiðslumeistarinn á veitingastaðnum Humarhalinn var síðar handtekinn og dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt Arinbjörn af yfirlögðu ráði og varð það mál þar með úr sögunni. Fleiri góð víg hefir frú Ingveldur vegið, sem þyka horfa til þjóðþrifa. Eitt frægasta verk hennar á vígvellinu var samt þegar hún hjó sundur lífbeinið á Vilborgu Eyjólfsdóttur. Vilborg andaðist af sárum sínum, en náði þó að skrifta áður en hún féll endanlega frá og fullyrti að það hefði verið Sigurveig gamla Dræsa sem hefði hoggið hana banahöggið í klofið, því Vilborgu lá mjök þungur hugur til Sigurveigar síðan Sigurveig hafði fíflað mann hennar, dregið hann á tálar og leitt hann út í glórulausan hórdóm. Kom frú Ingveldur ekki við sögu andláts Vilborgar meir.
Meðfylgjandi mynd að frú Ingveldi var tekin þegar hún var um það bil tveggja ára.
Gleði og bjartsýni fram undan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2021 | 12:05
Sýning á sjálfum sér
Auðvitað héldu hinar sjálfhverfu merkisfraukur ríkisstjórnarinnar opinbera sýningu á sjálfum sér í tilefni þess að öllum takmörkunum vegna kóvíðs nítjánda hefir verið aflétt. Trúlega eru þessar einkennilega sérkennilegu mannvitsbrekkur þeirrar trúar að svona sjálfssýning sé aldeilis bráðnauðsynleg í aðdraganda alþingiskosninganna sem fram eiga að fara eftir þrjá mánuði. Þetta kemur ekki á óvart: Athyglissjúkar dömur af borgarastéttinni með gelgjutendensa hafa þörf fyrir þetta.
Það hefir verið í meira lagi pínlegt að horfa upp á blaðamannafundarlæti ríkisstjórnarinnar á farsóttartímanum. Ófáir hafa fengið á tilfinningun að þar færi innantómt og hálfvitlaust fólk og ekki færri en tveir ráðherrar stjórnarinnar hafa gjörst illa sekir um stóttvarnarbrot í miðju kóvíðsfárinu. Svo kemur þetta lið fyrir alþjóð með fettum og brettum og lætur eins og það hafi bjargað landsmönnum með snarræði frá bráðum dauða. Þvílík andskotans finngálkn atarna.
Vér vonum nú enn heitar en áður, að þjóðinni auðnist kjósa þessa ríkisstjórn sýndarmennskunnar, óheiðarleikans og ómennskunnar af höndum sér í haust og kveði þar með þann draug niður sem þessi rumpulýður hefir haldið úti í fjögur ár. Því miður er ekki um auðugan garð að gresja í stjórnarandstöðunni og væri rétt af þjóðinni að kjósa hana líka burt úr mannheimum.
Öllum takmörkunum aflétt innanlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2021 | 19:59
Hægrisinnuð boðflenna og brennuvargur til vinstri
Það er engu líkara en Katrín sé alltaf að tala yfir hausamótunum á vanvitum og einfeldningum sem ekki kunna fótum sínum forráð. Meðan Bjarniben peningaföntum banka þvælir Katrín um loftslagsmál. Ljóti nýfrjálshyggjukjaftaskúmurinn þessi óheiðarlega kona. Við eru farin að gera okkur grein fyrir að Katrín og undanrennugöglin í VG vilja að flokkurinn þeirra sé hægrisinnaður græningjaflokkur efrimillistéttarfólks, sem hefir að poletisku markmiði að sitja í ríkisstjórn út á loforð um hálendisþjógarða, sem þeim þóknast að svíkja jafnharðan eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Svo má líka með talsverðum rökum halda fram að eigendur VG hafi verið, kannski frá upphafi, í herferð gegn sósíalisma og stéttabaráttu; hafi einsett sér að ,,afsósíalíséra samfélagið" eins og auðvaldsbelgurinn Albert Guðmundsson kallaði það rétt áður en hann og hans kumpánar afnámu vísitölubindingu launa, en leyfðu öðrum vísitölum að vaða áfram með hroðalegum afleyðingum fyrir alþýðu landsins.
Svo vælir þetta hyski, Stenngrimur Johoð, Katrín Jakkó og Lilja Rafney undan lítilli virðingu almennings gagnvart Alþingi, og lætur sem það geri sér ekki grein fyrir því af hverju fólk hefur ógeð á þeim og kjaftablaðri þeirri, óheilindum og falsi. Frú Katrín Jakobsdóttir, áttaðu þig á, að þú ert boðflenna í stjórnmálum, brennuvargur á vinstri vængnum, og ættir umfram allt að hypja þig af sviðinu nú þegar.
Þurfum að breyta því hvernig við hugsum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2021 | 14:22
Skynsemiskristindómur í klaustrinu og örlítið af siðvilltum fjölmiðlungi
Þeir allravitlausustu í poletíkinni, merarklaustujúnkarnir í Miðfótúngaflokknum, tala mikið um skynsemi og skynsemisstjórnmál, og ætlast víst til að með þessháttar talsmáta muni kjósendur telja þá ögn gáfaðri en þeir í raun og veru eru. Svo sem flestir gjöra sér grein fyrir var Miðflokkurinn stofnaður upp úr særðu stolti og ruglubulli hins ofdekraða Sigmundar Davíðs og margfrægu Wintris- og Tortúlustandi hans. Allt leit samt vel út í fyrstu og að Sigmundi sópaðist kraðak af vönkuðum sauðum úr gemlingastíunni hjá gömlu Framsóknarmaddömunni. En svo fór Sigmundur Davíð til bænahalds í Klaustrinu.
Þau lögðust öll til bænagjörðar við guðsborð og messuvíns í Klaustrinu og drukku fast. En oft er í holti heyrandi nær, og á því vöruðu Sigmundur Davíð og hans klausturfólk ekki. Í leyni lá Bára með upptökutæki og daginn eftir fékk landslýður að sjá og heyra hið einkennilega guðsorð sem Miðfótúngar höfðu um hönd í Klaustrinu. Síðana hefir Miðflokkurinn verið skjátan ein, skorpin og hnúskótt; og flestir sem einhvern tíma tóku mark á flokknum gera það ekki lengur, heldur hlægja að honum, jafnvel opinberlega. Í fræknum hópi Miðfótunga á Klaustri, sem Bára tók upp, var hin brosmilda nunna, Anna Kolbrún, og kvíaði dátt svo korraði í að bænaflokknum af Freyju eyju og skrokknum sem Beggó vildi komast í kast við. Og allir Miðfótúngarnir voru svo undurglaðir þetta kvöld, bænir þeirra einlægar og kjarnyrtar og þau héldu af hinni alkunnu skynsemi sinni, að guðdómurinn altumlykjandi þau í Klaustrinu þetta kveld. Þau voru sem maður segir sálarhólpin, að eigin mati, á þessari heilögu stund. Daginn eftir var Miðfótungaregla Klaustursins rjúkandi rúst, sýnd sem skrípaþáttur í sjónvarpinu, og líkust því Helvíti, sem er hræðilegra en nokkur veit.
Sigmundur Davíð vissi ekki sitt rjúkandi ráð og reyndi að verja sig með samherjaaðferðinni, þ.e. kenna illyrminu Báru um allt, hún hefði falsað myndbandið af bænastundinni og skáldað upp hinar fallegu bænir sem á bandinu heyrðust. Það er svo sem þekkt að illa gjörðir fjölmiðlungar, siðblindir í sinni spillingarhræsni, reyna að kaupa fólk til að taka upp stjórnmálamenn án þeirra samþykkis til að koma þeim illa. Einn slíkur fjölmiðlungur, sem nú er kominn í framboð fyrir flokk, sem löngum hefir reynt að treina í sér líftóruna með því að bera örðum spillingu á brýn, ætlaði til dæmis að fá einstakling til að leggja snöru fyrir einn þingmann Sjálfstæðisflokksins til þess að hægt væri nú að taka hann niður. Ekkert varð úr þessu ástúðlega áformi hins siðbilaða fjölmiðlungs. En einstaklingurinn, sem átti að kaupa til verksins, sagði viðkomandi þingmanni frá skítatrikki fjölmiðlungsins, sem nú er orðinn frambjóðandi og kemst ef til vill á þing ef illa tekst til. Það er mörg skynsemin hjá hinum poletisku vitfirringum nú til dags.
Stjórnmálin ekki leidd af skynsemi nú til dags | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá hefir þeim tekist að hrekja aumingja Banza úr Viðreisnarflokknum, sem hann þó stofnaði fyrir braskarar og fólk með ESB-heilkennisárátturöskun. Svona eru laun heimsins og vonska fólksins og skjaldan launar kálfur ofeldið, - eða var það ofbeldið? - æ, það skiptir aungvu máli hvort heldur það er ofeldi eða ofbeldi, á því tvennu eru óglögg skil.
En nú hefir sem sé drotningu kúlulánanna lánast að láta gott af sér leiða og sparkað veslings Banza burt úr samfélagslífi braskaranna í Viðreisn. Þetta þykir sumum mikið gustukarverk. Auðvitað ber Banzi sig illa þar sem hann situr á rassmeiddi sínu í rennusteininum og kjökrar linnulaust. Fyrir honum liggur ekki annað en að skríða á fjórum fótum heim í Valhöllu Sjálfstæðisflokksins og gjörast aftur heill samherji Samherjana þar á bæ.
Ekki skulum vér heldur gleyma þeim möguleika, að vel getur Banzi farið í kynjaleiðléttingu og stormað síðan í blábleikum kjól til liðs við Samfylkinguna eða VG og gjörst þar oddviti á framboðslista. Þetta er ugglaust freistandi tækifæri fyrir Banza, því hjá Samfylkingunni eða VG getur hann fundið sinn innri ESB- og braskarafrið. Og Samfylkingin er afar nýfrjálshyggjusinnað apparat, seisei, já, - og VG er vandalaust að svíkja allt sem þau þóktust áður standa fyrir, þetta er nefnilega soleiðis fólk, - ef fólk skyldi kalla. Ónei, það er ekki öll nótt úti enn fyrir honum Banza, hvort heldur hann skríður heim í Valhöllu eins og padda, elligar leggst undir knífinn og gjörist í framhaldinu efrimillistéttafémíníst í kjól og kvenbrók af Samfylkingar- eða VG-tegund. Þrautalendinginn fyrir vesling væri að gjörast málaliði hjá Pírötum og hefja baráttu fyrir kannabisnautn og últranýfrjálshyggju eins og þar hefir tíðkast.
Gat ekki hugsað sér að sitja áfram í stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 21
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1493
- Frá upphafi: 1542363
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1315
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007