29.12.2010 | 11:01
Sögðu nei og sátu hjá, en síðst já við öllu
Það er gaman að sjá hvað húskarlar og griðkonur blessaðrar gömlu Framsóknarmaddömunnar eru borubrött í dag og góð með sig. Eftir að hin göfugu frasóknarkrataíhöld, Steingrímur og Jóhanna, fóru að míga svo um munar utaní liðsmenn Maddömunar og lofa þeim ráðherrastólum, keppast synir og dætur Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar við að lýsa því yfir að þau fari nú aldeilis ekki úr buxunum fyrir Steingrím, Jóhönnu og Össur nema að uppfylltum ströngum skilyrðum, eins og þau hafi einhver galdratromp á hendi. Meira að segja lætur ein af griðkonum Framsóknarmadömunnar þau orð falla að meydómur Framsóknar sé ekki falur nema Jóhanna, Össur og Steingrímur stórframsóknarmaður J. hypji sig úr ríkisstjórninni með skottið á milli lappanna.
En auðvitað tekur einginn mark á látalátum íbúanna í Framsóknarfjósinu. Við sem munum þá tíð þegar framsóknarmenn sóru við allt heilagt, þar á meðal lífstykki sjálfrar Framsóknarmaddömunnar, að aldrei kæmi til greina að einkavæða ríkisbankana. Eftir hástemmdar heitingar og upphrópanir, þögnuðu hinir baráttuglöðu Framsóknarmenn og héldu kjafti um skeið eins og einhver hefði troðið striga uppí þá. En einn daginn vöknuðu landsmenn upp við að búið var að einkavæða ríkisbankana. Og það sem meira var um vert: Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn höfðu fært þá þóknanlegum og flokkshollum vildavinum sínum, - að gjöf. Þannig mun eflaust líka fara með huganlega ríkisstjórnarþáttöku Framsóknar með Steingrími og Jóhönnu: Þó að Sigmundur Davíð og Vigdís Hauks tali digurbarkalega í dag og setji mönnum afarkosti munu þau þegja þunnu hljóði á morgu en skríða þar næsta dag inní hlýjuna hjá framsóknarkrataíhöldunum í ríkisstjórninni á forsendum þeirra sem fyrir eru þar í fleti.
![]() |
Misvísandi skilaboð um samstarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2010 | 22:01
Gúmmelaðið Einar Kr. og óþefur úr vissum görnum

![]() |
Þrír kostir ríkisstjórnarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.12.2010 | 16:50
Búrtíkin og kýrnar í Framsóknarfjósinu
Það er aldeilis nóg að gera yfir hátíðarnar hjá helvískri búrtíkinni Árna Þór að gjamma, gelta og spangóla fyrir húsbóndanefnuna sína. Gargandi hás og ennþá falskari hleypur þetta hvimleiða apparat í hælana á fólki sem ekki hefur nægilegt siðleysi til að bera í að svíkja stefnuskrá VG og snúa útúr henni.
Það er áreiðanlega skynsamlegast fyrir búrtíkur Steingríms, Álfheiðar og Svavarfjölskyldunnar að láta Lilju Mósesdóttur í friði en snúa þér þess í stað að því að heimsækja kýrnar í Framsóknarfjósinu og dingla skottinu framam í þær í von um að þær tryggi Steingrími enn um sinn ráðherrastól undir rassinn.
![]() |
Telur óvíst að stjórnin lifi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.12.2010 | 08:34
Steingrímur vesalingurinn J. og hans lítilsigldu aftaníossar

Ef einhverjir eiga að yfirgefa þingflokk VG eru það Steingrímur vesalingurinn J. og hans lítilsigldu aftaníossar í þingflokknum.
Ég skil vel að Lilja Mósesdóttir íhugi að yfirgefa þingflokksherbergi VG, það er nefnilega ekki öllum hent að sitja til langframa undir yfirgangi siðleysingja.
![]() |
Lilja íhugar úrsögn úr þingflokki VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.12.2010 | 08:54
En eru Selfyssingar í raun þakklátir ?
Mikið mega Selfyssingar vera þakklátir fyrir að hafa jafn röggsamt og afgerandi yfirvald og stjörnusýslumanninn Stones. Ef hins merka stjörnsýslumanns nyti ekki við ríkti fullkomin skálmöld og borgarastyrjöld í Árnessýslu. Í hvert skipti sem þjófar, ofbeldisribbaldar og fíkniefnahöndlarar láta á sér kræla í umdæmi herra Stones eru þeir óðar kveðnir niður af sýslumanninum og varðsveit hans og oft er nóg að gera.
Hinsvegar getur stjörnusýslumaðurinn ekki komið í veg fyrir að ekið sé á hross við og við í Árnessýslu því hross eru nú einusinni ólöghlýðnustu kvikindi sem um getur austan Hellisheiðar.
Auk þess læðist að mér sá leiðindagrunur að Selfyssingar meti sýslumann sinn ekki að verðleikum og séu honum ekki nægilega þakklátir fyrir að halda uppi nægilegum skikk í Árnessýslu þannig að búandi sé á svæðinu fyrir friðelskandi fólk.
![]() |
Erill hjá lögreglu á Selfossi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2010 | 23:51
Séra Diljá Kristjánsdóttir
Það þarf ekki nokkur maður að kippa sé upp við að ein vesöl prestskepna í Svíþjóð hafi ekki nennt að draugast á fætur til að messa. Því er nefnilega þannig varið að eitt best varðveitta leyndarmál Þjóðkirkjunnar á Íslandi er hve undur gjarnir prestar hennar eru að sofa yfir sig, en þetta órjálega vandamál á einnig við um sænska musterishöfðingja. Mest kveður að þessu vandmáli prestanna þegar þeir hafa verið á kvennafari, en slíkt kemur ósjaldan fyrir, og eru þeir þá svo úrillir og voðalegir viðskiptis að það er beinlínis hættulegt að umgangast þá. En þó hefur fyrst sannarlega tekið steininn úr eftir að kvenprestar fóru að ryðja sér rúms og sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum. Séra Diljá Kristjánsdóttir er sérlega ófagurt dæmi um svefngráðugan og óreglusaman prest. Hún hefur í prestskapartíð sinni gengið oftar en einusinni í svefni eins og draugur til að gegna embættisverkum og þvaðrað við þau tækifæri botnlausa vitleysu söfnuði sínum til óblandinnar ánægju.
Það vili ég að Guð gæfi okkur fleiri presta eins og séra Diljá Kristjánsdóttur.
![]() |
Presturinn svaf yfir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2010 | 22:32
Konuþjófurinn sem typpisbrotnaði í framandi húsi
Djöfuls ófriður er þetta einlægt af þessum endemis frjálshyggjuungum. Fólk getur ekki einusinni farið í sumarleyfi eða haldið uppá jól og áramót öðruvísi en að eiga á hættu að alskyns rumpulið, frjálshyggjumenn, heimdellingar, eða hvað það heitir þetta dót, sé komið á vettvang með kúbein og haglabyssur til ræna heimili þess.
Ég held ég muni eftir bölvuðum frjálshyggjukratanum sem braust inn hjá kunningja mínum um hánótt en varð svo dauðhræddur þegar hann sá heimilisköttinn koma á móti sér að hann stökk gegnum rúðu í stofunni og kom niður á hjólbörur, sem stóðu fyrir neðan gluggann, og rifbeinsbrotnaði.
Þá minnist ég með gleði konuþjófsins sem datt niður tröppur í niðamyrkri í framandi húsi og typpisbrotnaði. Sá góði maður fékk sem maður segir makleg málagjöld fyrir afbrot sitt.
![]() |
Enn berast tilkynningar um þjófnaði og innbrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2010 | 19:32
Þrátt fyrir óvild Karólínu Pussy megum vér þakka fyrir
Það er vægast sagt niðurlægjandi viðbjóður fyrir oss Íslendinga að búa við höfuðborg sem lítur út eins og slorugt vertíðarbæli í augum gáfaðra og forframaðra útlendinga af háu menningarstigi. Og ekki er vel gott ef vor glæsilega borgarastétt fer að fá á tilfinninguna að hún sé, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki annað en samansafn illa lyktandi kotkurfa og skítugra fiskkellinga af torfkofastandi. Það veit enda ekki á gott þegar frægar blaðakonur á borð við Carol Pucci, sem ég ætla að leyfa mér að kalla Karólínu Pussy uppá íslensku, taka sig til og skrifa níðgreinar um oss í virðuleg heimsblöð og ausa oss dylgjum um allrahanda ómennsku eins og okur á bjórdrykkjum; hún gæti allt eins kallað oss hreint út brennivínsprangara og glæpamenn sem séu þessa dagana í óðaönn við að skríða aftur inní moldarkofa sautjándu aldarinnar. Þá getur ólánsskepnan Karólína Pussy ekki á sér setið að leggja lykkju á leið sína þeirra erinda að hæðast að stolti allra íslendinga, Hallgrímskirkju, en henni líkir hún við hlægilega geimflaug. Það er hægt að særa eina þjóð með vægari munnsöfnuði. Ég man vel þá tíð, þegar Hallgrímskirkja var að fullu risin, að vér kölluðum hana fullir aðdáunnar, ,,Drottins Dýrðar Drelli" og tókum ofan fyrir framförunum og menningunni.
En þrátt fyrir ótrúlegan óvildarhug Karólínu Pussy í garð Íslands og íslensku þjóðarinnar megum vér þakka Skaparanum og öllum góðum vættum fyrir að hún sá ekki Kárahnjúkavirkjun, álverið í Reyðarfirði, Landeyjahöfn og Össur Skarphéðinsson og hélt að tónlistarhöllin Harpa væri fiskverkunarhús í byggingu.
![]() |
Reykjavík eins og fiskiþorp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.12.2010 | 13:26
Það voru fleiri yfirheyrðir í morgun en kátu kallarnir í Ásgarði
Það voru fleiri yfirheyrðir í morgun en kátu kallarnir í Ásgarði. Þetta voru sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, handtekin á slaginu átta í morgun og færð nauðug til yfirheyrslu útaf þátttöku þeirra í nauðaómerkilegri guðþjónustu á aðfangadagskvöld. Klerkarnir sem messuðu yfir þeim hjónum umrætt aðfangadagskvöld tóku sig nefnilega til í gær og lögðu fram kæru á hendur þeim. Í kæru musterisriddaranna er þeim meðal annars gefið að sök að hafa smánað heilaga kvöldmessu og raskað friðhelgi jólanna með frammíköllum, upphrópunum, hlegið og flissað og reynt til að efna til ryskinga meðan á guðþjónustu stóð. Þá segir í ákæruskjalinu að Kolbeinn hafi ræskt sig stórkallalega í miðjum sálmi og hrækt á bakið á kórstjórnandanum, en frú Ingveldur mælt nokkrum sinnum klámyrði svo hátt að heyrst hafi um alla kirkjuna; þau hafi verið áberandi ölvuð og haft með áfengi með sér sem þau hafi staupað sig á. Meira að segja undir sjálfu jólaguðspjallinu hafi þau dreypt á flöskunni, hóstað og grett sig. Og þegar messu var lokið og kirkjugestir á leið út hafi orðið uppþot í miðri mannþrönginni vegna áreytni Kolbeins við konu nokkra sem sótt hafði messuna ásamt eiginmanni sínum og börnum.
Að vonum eru prestarnir við kirkju þessa mjög ósáttir með hvernig til tóks á aðfangadagskvöld og hafa þeir því ritað biskubi Íslands bréf þar sem þeir fara þess á leit að fá að bannfæra frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson frá allri kirkjulegri þjónustu, þar með talið að þau fái ekki legstað í vígðri mold.
![]() |
Árásarmennirnir yfirheyrðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.12.2010 | 13:46
Þú hefur gleymt að fara í nærbuxurnar þínar
Já, þeir leyfa sér að messa þessa dagana klerkarnir í Reykjavík. En svo hagar lánið því til, sem betur fer leyfi ég mér að segja, að litlum sögum fer af einstökum guðþjónustum, að minnsta kosti ekki þess eðlis sem á sögubækur eru færðar.
Þó má segja að til nokkurra tíðinda hafi dregið við aftansöng við ónefnda kirkju í Reykjavík í gærkvöldi þar sem sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinnson skrifstofustjóri, eiginmaður Ingveldar, tóku af hrærðu hjarta þátt í guðþjónustu. Ekki var nóg með að þau sæmdarhjónin væru óvenjulega klædd miðað við stað og stund, herská til augnanna, rjóð í kinnum og öll á iði, heldur tók Kolbeinn Kolbeinsson fullum hálsi undir þegar presturinn tónaði og greip oftar en einusinni framí fyrir honum með óviðeiandi munnsöfnuði og heimtaði auk þess að meðhjálparinn færði sér messuvín, romm eða vodka; hann færi að þynnast upp ef messulátum prestsins færi ekki að linna. Og þegar kom að því að kirkjugestir stóðu upp til taka hinni postulegu kveðju, hrinti frú Ingveldur konu, sem stóð næst fyrir framan hana, um koll og öskraði til hennar: ,,Þú hefur gleymt að fara í nærbuxurnar þínar, álkan þín, eða ertu ein af þessum skjátum sem aldrei hafa farið í nærbuxur?
![]() |
160 guðsþjónustur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 36
- Sl. sólarhring: 373
- Sl. viku: 905
- Frá upphafi: 1547160
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 810
- Gestir í dag: 33
- IP-tölur í dag: 33
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007