3.11.2020 | 17:30
Er ofdrykkja í barnaskólum orðið daglegt brauð, - eða hvað?
Mikill þó Djöfull er að sjá nýjar myndir úr barnaskólum í dag, samanber skiliríið sem fylgir meðfylgjandi frétt af sóttvörnum í skólum. Á umræddri mynd má sjá nokkur skólabörn með stóran kogarabrúsa á milli sín, og er auðséð á krökkunum til hvurra nota kogarasprittið er. Ef mér hefði verið sagt fyrir fáeinum dögum, að barnaskólabörn sætu á skólabekk við spíritusnautn hefði ég ekki trúað því, en sem sjá má er myndin ólýgnust um gang mála í skólunum. Nú er víst algengt að sjá börn koma veltandi sökum ofdrykkju út úr skólum og haga sér mjög ósæmilega úti á skólalóðinni.
Í þann tíð er ég gekk í skóla hefði orðið uppi fótur og fit ef skólasystkini mín, eitt eða fleiri, hefðu dregið upp brennsluspritt í tíma og farið að dreypa á því, og skóladeginum hefði svo lokið með generalfylliríi. Ekki minnist ég uppákomu af því tagi, enda hefði viðkomandi drykkjusvolabarni verði refsað með algjöru húðláti, líklegast með hnútasvipu. En tímarnir breytast og mennirnir með. Núna þykir ekki athugavert, eða í frásögur færandi, þótt börn leggi stund á kogaradrykkju í tímum og drekki frá sér ráð og rænu og gjöri sjálfum sér og foreldum þeirra til stórkostlegrar skammar.Þó má samt hrósa skólabörnunum fyrir að hafa heldur ódýrar áfengistegundir sér til gottgjörelsis í skólanum í stað þess að berast á koníakki og volka. Enda má segja, að brennsluspritt, handspritt, kardó og ódýr rakspíritus séu alþýðlegir drykkir og beri neytendum þeirra vitni um hófsemi og aðhald. Það sér hvur maður að það væri með öllu ófært að krakkaskrattar, ekki einusinni komnir á gelgjuna, séu að flotta sig og sporta með rándýr eðalvín um skólaganga og kennslustofur. Mér er sagt að tólf vetra stelpugála hafi haft með sér romm, bruggað í Havana á Cúbu, í skólann og þetta romm hafi freistað kennarans svo mikið, að hann fór fram á við stelpuna að fá að drekka með henni úr flöskunni. Þetta var kvenkennari og þær skiptu innihaldinu úr Havanapyttlunni bróðurlega á milli sín með þeim afleiðingum að þær fundust eftir dúk og disk áfengisdauðar í gömlu ljósritunarkompunni. Meira segi ég ekki að sinni um þá uppákomu, en aðkoman var svo ljót að kennslukonan var leidd fyrir dómara og situr nú í gæsluvarðhaldi.
![]() |
Sóttvarnir í skólum stórt verkefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2020 | 22:15
Að eiga djúpvitran menntamálaráðherra af Fjóshaugnum miðjum
Er ekki dásamlegt að eiga svona vitran mennta- og menningarráðherra? Er það ekki verskulduð náðargjöf til Íslendinga frá Drotni Alsherjar? Jú, kæru vinir, ætli það sé ekki lóðið? Að hólfa skóla er djarfasta og heilagasta ráð sem nokkur íslenskur stórnmálahani, fyrr eða síðar, hefir upphugsað. Ekki skemmir fyrir, að vor ástkæri mennta- og menningarráðherra, er fædd í Framsóknarfjóshaugnum miðjum og alin upp við fótskör sjálfrar gömlu Framsóknarmaddömunnar. Má ljóst vera hvurju mannsbarni, íslensku og jafnvel erlendu, að uppeldið í Framsóknarfjósinu hefir tekist vonum framar og skilað ossum löndum fyrirtaks mennta- og menningarmálaráðherra, stórvitrum og gegnsósa af Maddömulærdómi frá blautu barnsbeini.
Og vissulega er Lilja Alfredósína sjaldgæft metfé úr hinu feyskna og hryggsigna Framsóknarfjósi. Hún er svo klár og vitur, að hún gat reiknað út að hólfun í skólum er betri en óhólfaður skóli, þó umfram allt reiknaði hún út að öll hólfin verði Framsóknarhólf með mynd af Hriflóni gamla, Stenngrimi Johoð, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni og Gifturíka Kaupfélagsstjóranum fyrir norðan land. Af því munu börnin menntast meira og betur en annars.Fyrir ekki löngu síðan heyrðist á tal tveggja framsóknargúbba, sem vóru að kukka saman úti, nánar tiltekið inni í ruslatunnuporti millum Austurstrætis og Hafnargötu. Þeir vóru að leggja á ráðin um að steypa ráðsmanni Framsóknarmaddömunnar, honum Sigurði Inga, af stóli og láta Vegamálastjóra fjúka með honum í leiðinni. Ekki er nokkur vafi á að þessir skítandi menn í porti, hafa í hyggju að vígja frauken Alferdósínu til ráðsmennsku í Framsóknarfjósinu; að minnsta kosti töluðu þeir fjálglega um liljur vallarins, sem hvorki kunna að vinna né spinna, og fogla hyminsinns, sem safna ekki forða í hlöður fremur en gamla Framsóknarmaddaman, sem löngu er hætt að heyja fyrir sauðnautin sem hún heldur í Fjósi sínu. Sennilega er fólginn vænn búhnykkur í því að stampa Sigurði Inga og flæma hann eins og hund í Miðjuflokkinn. Karlarnir í portinu viku að endingu máli sínu, rétt á meðan þeir skeindu sig með grasvisk og stóðu upp, að þeirri staðreynd, eins og þeir orðuðu það, að Sigurður Ingi væri fádæma durtur, ugglaust gjörspilltur af ýmiskonar gargagndi vitleysu, og aldeilis ónothæfur sem ráðherra, hvað þá ráðsmaður í Fjósi, auk þess sem hann væri ljósrit af skelfilegasta ráðsmanni Framsóknamaddömunnar, sem uppi hefir verið.
![]() |
Flókið en betra að hafa sóttvarnahólf í skólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.10.2020 | 17:47
Á að leyfa þessum giljagaurum, blóðugum upp fyrir haus, að reisa sér árásarstöðvar hér á landi?
Hvað vill þessi giljagaur upp á dekk? Flotaforingi úr djöfullegasta árásarher heimsins að boða ,,varanlega viðveru" þessa sama hers, sem er ekki aðeins blóðugur upp að öxlum heldur upp fyrir haus eftir óteljandi valdarán og valdaránstilraunir. Fyrir mína parta afþakka ég ,,viðvarandi viðveru" slíkra óþokka á Íslandi.
Eflaust rjúka einhverjir landar mínir úr stétt auðkeyptra smámenna upp við þruglið í þessum Burke flotaforingja og hefja áróður fyrir nauðsyn á ,,viðveru" bandaríska herveldisins á Íslandi og messa með helgislepjuværð yfir fólki um áskoranir, framtíðatækifæri, hagvöxt, fjárfestingar, ,,skyldu okkar" við nánustu vini okkar og NATÓ. Dýpara er varla hægt að sökkva í aumingja- og heimóttarskap, auðsveipni og hundseðli. Og þá mun bleik brugðið, ef krataeðlisófétin munu ekki standa þétt upp við heimsvaldasinna og vestrænt stórauðvald þegar hin úrkynjaða, íslenska burgeisastétt tekur á móti hinum alblóðuga her USA.
Og hverju ætlar VG, Álfheiður, Stenngrimur Johoð, Swabbóliðið og Katrín Jakobs svara vangaveltum herra R. Burke flotaforingja? Ætla þau að láta sem þau hafi ekki heyrt í karlinum? Jafnvel að bjóða hann velkominn með allt sitt hafurtask til Íslands og leggjast sjálf í ellinni á hernaðarspena Bandaríkjamanna og NATÓ; það væri svo sem eftir öðru hjá þeim.
![]() |
Skoða varanlega viðveru Bandaríkjahers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2020 | 15:02
Er skilningur á aukast á, að því verri dugi heimskra manna ráð sem þau koma fleiri saman?
O-ho-ho-ho-ho ... þetta líkar mér. Nú hafa sóttvarnaryfirvöld loks náð að skilja örlítið af boðskap Ólafs pá í Laxdælu, þess efnis, að því verr dugi heimskra manna ráð sem þau komi fleiri saman. Og í ljósi og krafti nýfengins skilnings dröttuðust yfirvöld til að banna fleirum en tíu manns að safnast saman, en með semingi þó.
En ,,blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar og þríeykisins" var stórkostlegt númer, sem hefði átt skilið að vera leikinn í Þjóðleikhúsinum fremur en í Hörpunni. Fyrir það fyrsta var uppstillingin frábær: Í framlínunni stóðu þrjár ráðherrafraukur, hver við sitt ræðupúlt, og mösuðu hver á eftir annarri. En í skugganum að baki þeim húktu landlæknir, sóttvarnarlæknir og Víðir eins og ill gjörðir niðursetningar. Að sjálfsögðu veit aunginn gjörla, hversvegna í fjandanum fjórir ráðherrar frá þremur stjórnmálaklíkum, sem flestir höfðu ákaflega lítið til málanna að leggja annað en almennt og tilgangslaust þvaður, voru að þvælast þarna. Fundurinn hefði orðið mun skilmerkilegri og gáfulegri ef heilbrigðisráðherra og þríeykið, Þórólfur, Alma og Víðir, hefðu verið þarna ein og talað fyrir fyrirhuguðum sóttvarnaraðgerðum.
En, sem sé, sóttvarnaráætlun yfirvalda var gjörð að heldur fáfengilegum og heimskulegum fundi kvenna í ríkisstjórnarflokkunum. Hvað hafði til dæmis Áslaug Arna til málanna að leggja? Svar: Ekkert. Eða Alfredósína og Katrín? Svar: Að sjálfsögðu ekki neitt. Eini tilgangurinn með sýningu ríkisstjórnarinnar í Hörpu í dag var sýndarmennskan sjálf, því ekki var hægt að unna heilbrigðisráðherra einum að kynna aðgerðir sóttvarnaryfirvalda; Framsókn, forsætisráðherra og Erkiíhaldið urðu að vera með til að tryggja jafnræði í sýndarmennskunni og áróðri ríkisstjórnarflokkanna. Úr því ríkisstjórnarflokkarnir áttu allir fulltrúa í leikritinu var þá ekki eðlilegt að stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu átt sína fulltrúa á pallinum svo þjóðin gæti dáðst að þeim líka? Stjórnarandstöðuþingmennirnir eru víst þingmenn líka og kosnir af kjósendum á kjörskrá. En nei, fundurinn í Hörpu var sýning ríkisstjórnarinnar, hvar heimskra manna ráð ráðast ekki af því hvort fleiri eða færri koma saman.
![]() |
Aðgerðir hertar tíu mega koma saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2020 | 16:29
Stjórnleysi Akureyringa nær nýjum hæðum
Já, það mátti alltaf búast við þessu. Hingað til hefir Akureyringum ekki verið sjálfrátt, sem þýðir auðvitað,að þeir geta ekki með nokkur móti haft stjórn á sér og því síður stjórnað eigin bæjafélagi. Og ekki vænkaðist hagur Strympu þegar Samherjarnir tóku þar öll völd og fóru að ráðskast með allt stórt og smátt þar nyrðra. Sagt er að aunginn í Eyjafirði megi lengur gjöra dodo með maka sínum nema með skriflegu leyfi Samherjafurstanna. Mök utan heilags hjónabands eru að sjálfsögðu bönnuð þar um slóðir og mega þeir sem brjóta það bann eiga von á íllskuþrunginni refsingu.
Það fór svo náttúrulega, eins flesta grunaði, að Akureyringar mundu misnota kóvíð nítjánda og gjöra sitt besta í að frussa honum út um allt. Nú ku korrið og köfnunarhljóðin í hinum sýktu bæjarbúum hvarvetna heyrast út á götur á Akureyri og er íllt til þess að vita. Sem betur fer, þá hefir formlega verið farið þess á leit við Dag borgarstjóra í Reykjavík og pírataguddurnar hans, að taka Akureyri að sér og stjórna þar með harðri hendi. Taki Dagur þessari freistandi áskorun, verður Akureyri lögð undir Reykjavík og þar með verður allt múður og allur moðreykur úr sögunni fyrir norðan.
En það má búast við að Dagur og viðreisnarguddurnar muni lenda í vandræðum með Samherjana, sem munu eflaust kalla vini sína, þá Stjána Möller, Loga Vindbelg og Stenngrim Johoð, til liðs við sig og láta þá berjast í fremstu víglínu við innrásarherinn úr Reykjavík. Nú dugar ekkert andskotans vol eður víl hjá Deginum og hans liðleskjum, þau verða að berjast þar til síðasti Samherjinn er fallinn og ró verður komin á fyrir norðan land. Sennilega mun Dagur, viðreisnar- og pírataguddurnar, ásamt leyfunum að VG, falla í orrustunni, en það er allt í lagi, því maður kemur í manns stað og Samherji í Samherja stað og allt verður óbreytt og halda áfram að reka á reiðanum, sunnanlands sem og norðan.
![]() |
Smit í samkvæmi og jarðarför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2020 | 16:06
Vinsæll leikur vitfirringa á vitfirringahælinu
Er ekki nóg fyrir þessa Klaustursteggi að drekka sig vitlausa í brennivíni svo þeir fari nú ekki að heimta heróín ofaní allan sorann? Það má vera að þeir Klaustrungar hafi á sínum snærum klikkaðar kérlíngarklessur og brúklega skrokka til deyfa í heróíni, en í soleiðis tilfellum er rétt að benda þeim á að senda umrædd númer til sérfræðilæknis. Og hvað ætli gangi að kérlíngarklessunum og skrokkunum þeirra til heróín þurfi til að ná óþægindum þeirra niður? Máske gigt, eða einhver annar erfiður og hættulegur sjúkdómur?
Á vitfirringahælinu ríkir oftar en ekki sérlega frjálslyndur og lýðræðislegur andi. Sem dæmi um það er rétt að upplýsa, að strax eftir að Bára birti myndböndin af bænalátum þeirra Miðjunga í Klaustri, fór heimilismenn á vitfirringahælinu strax að setja upp leikþætti, byggða á samræðum og bænalestri Sigmundar Davíðs og húskarla hans og þessari einu griðkonu hans hið örlagaríka kvöld. Einn vitfirringurinn vildi endilega fá að vera gamla Framsóknarmaddaman og var það látið eftir honum. Annar vitfirringur, sérlega galinn og hlálegur, heimtaði að leika Sigmund Davíð og fór í grýlubúning til að líkjast fyrirmyndinni sem mest. En þegar Framsóknarmaddaman tók til við að hýða Sigmund, en það var ekki skráð í upprunalega handritið, skárust vaktmennirnir í leikinn og lokuðu þá inni í stubbakompunni svo þeir gætu samið frið í ró og næði.
Því er ekki að leyna, að á vitfirringahælinu eru líka menn með gríðarlega leiklistarhæfileika. Einn tók að sér hlutverk Beggó munks og annar fór í gervi skrokks, sem passaði svona líka asskoti vel við hann Beggó. Sagt er að senan, sem þessi frábæru vitfirringar settu upp, hafi slegið í gegn, en henni verður ekki lýst hér, því hér er hvorki staður né stund fyrir forboðið fræðsluefni í klámi. Síðan hafa vitfirringarnir margoft leikið Klausturleikinn í ýmsum tilbrigðum, nema hvað forstöðukonan hefir bannað þeim alfarið að leika skrokkskaflann og hóta að berja vitfirringana í klessu ef þeir ekki hlýddu. Því hafa þeir gripið til þess óyndisúrræðis að taka leikinn um Beggó og skrokkinn og leika hann að næturþeli, þegar forstöðukérlíngin liggur afvelta og sofandi heima hjá sér. Og fyrir stuttu bættist nýr vitfirringur í hóp hinna sem fyrir vóru á hælinu, en sá nagli hafði prumpað út af skefjalausri heróínnautn. Sá er sagður Miðjúngur, mikil vexti, óhreinn, illa þefjaður og óhóflega lúsugur.
![]() |
Spyr um heróín á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2020 | 20:13
Hundsspottið Sálmur er hjóm eitt í samanburði við vitskepnuna Snata
Já, okkur varðar ekkert um hundsspottið Sálm hans Ólafs Ragnars. Nýi Sálmur, líkt og gamli Sálmur, er öldungis ófær til smalamennsku og kemur að aungvu gagni við refaveiðar. Haft er fyrir satt, að gamli Sálmur hafi í eitt skipti komist í návígi við mink og sturlast af hræðslu og verið taugaveiklaður upp frá því og gengið vikulega í tíma hjá áfallastreitumeistara. En nóg af þessum bévítis Sálmum hans Ólafs Ragnars og hennar Dórittar.
Þá er heldur meira bragð af þeim fræga hundi, Snata, sem vann sér meðal annars til álitsauka, að koma eiganda sínum, Ólafi bónda, fyrir kattarnef. Að vísu hefir þetta þarfaverk aldrei verið sannað á Snata og hann sjálfur þögull sem gröfin þegar það ber á góma. Stöku sinnum hefir kvittur komist á kreik, þess efnis, að Snati hafi ill áhrif og spillandi á aðra hunda, til að mynda æst þá upp í að gjörast dýrbítar. Að minnsta kosti þykir vart einleikið hve margir þeirra hunda, sem kynnst hafa Snata persónulega og numið við fætur hans, hafa orðið berir að því að ráðast á lambfé á fjöllum, eða ráðist inn í hænsnakofa í þeim eina tilgangi að fremja andstyggileg fjöldamorð.Hinsvegar hefir kérlíng Ólafs bónda um skeið verið full haturs í garð Snata því hana grunar að hundfjandinn sé ekki allur sem hann er séður, það hefir sem sé flögrað að henni, að undir vingjarnlegu yfirborði hins víðfræga smala-, grenjavinnslu- og leitarhunds, sem sagður eru hafa að minnsta kosti tólf manna vit, búi forhert og miskunnarlaust skrímsli, sem hiki ekki við að fremja hræðileg hervirki, jafnvel glæpi gegn mannkyni. En Snati er vitur og les huganir manna og kérlínga eins og lestrarhestur les bókstafi á blaði við bestu aðstæður. Af þeim sökum hefir hann allan vara á þá kérlíngarfrenjan hans Ólafs heitins bónda er nálæg; hann hefir allt um það hugleitt hvort hann eigi að láta þessa ófrumlegu leiðindaskjóðu fara sömu leið og karlinn hennar fór, eða með örðum orðum: láta hana hverfa fyrir björg á mjög óvæntan hátt. - Koma tíma koma ráð, segir Snati einlægt við sjálfan sig, þá hann hugleiðir framtíð kérlingar, - ekkert liggur á, ekkert liggur á, kerlingarótugtin fer til Fjandans, hvort heldur hún tórir til morguns eða í hálfan mánuð í viðbót og það er nú það.
![]() |
Klónaði hundurinn Samson eins árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2020 | 19:41
Henni eru allar bjargir bannaðar; hún mun fá að velta eins og kvartél
Það er þriflegur andskoti hjá henni Þórhildi Sunnu að hafa reytt lögregluhersveit landsins soleiðis til reiði að nú er allra verða von. Varla vill þessi kérla fá útsendar frá Hálfdáni Varðstjóra, ríxlögreglustjóra og Áslaugu Örnu í heimsókn til sín. Eða er það nokkuð? Ekki viljum vér horfa upp á fílelfda lögreglufanta vaða inn til Þórhildar Sunnu og velta henni út eins og kvartéli og mismuna henni inn í brynvagn lögreglunnar og hafa hana með sér á brott? En þetta mun ugglaust verða hlutskipti hennar von bráðar.
Hálfdán Varðstjóri hugsar sér gott til glóðarinnar að fá Þórhildi Sunnu inn til sín og hefir haft á orði að hann hlakki til að ,,dusta úr henni rykið", eins og hann orðar það. Það er annars af Hálfdáni að segja, að hann hefir komið sér upp miklu safni af merkjum, sem hann skreytir sig með innan klæða; á þjóhnöppum sínum hefir hann gjarnan haglega gjörðar myndir á stærð við frímerki, er önnur af Trump en önnur af Mússólína. Þetta mynda- og merkjastand yljar Varðstjóranum um hjartarætur, hefir leysandi áhrif og auðveldar honum að kasta af sér vatni, en á köflum plagar blöðruhálspróblem Hálfdán Varðstjóra.En þetta með Þórhildi Sunnu er alveg hræðilegt og vandséð hvurnig hún ætlar að kjafta sig út ér klípunni sem hún hefir komið sér í. Lögregluprjónar eru óðir, farnir að bíta í skjaldarrendur og æða fram og aftur eins uxar sem búnir eru að missa glóruna, því þá þyrstir svo mjök að hjóla í pírataþingkvendið. Og talsmátinn á þeim, Drottinn minn dýri, ,,hatursorðræða" er heldur en ekki mjúkt og meinlaust orð yfir þau firn. Og þó svo Þórhildur Sunna vildi gjöra félaga sína í Píratinu að varnarliði sínu mundi það varnarlið falla við fyrsta blástur. Henni eru allar bjargir bannaðar og brátt verður henni velt eins og kvatéli inn í fangaklefann þar sem Hálfdán Varðstjóri ræður ríkjum.
![]() |
Vill að ummæli Þórhildar fari fyrir siðanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2020 | 16:30
Vinsæl löggæslufrauka sem nýtur lýðhylli lendir milli tannanna á grimmu þingkvendi
Óttaleg leiðindatrunta getur hún Þórhildur Sunna verið að láta sig hafa að agnúast út í vinsælan lögregluprjón, kvenkyns, og jafnvel bregða hinni vel látnu lögreglukonu um orðræðu, rasisma, fasisma og ofbeldishyggju. Að vísu er vinsæla löggæslufraukan vel merkt, að hætti skrautgjarnra sundurgerðarpersóna, en er það ekki bara allt í lagi? Ekki að mati Þórhildar Sunnu, sem er mikið í orðræðunni og hugsar í samtali og verkferlum. Hvað hún vill svo gera við vinsælu lögreglukonuna er oss með öllu hulið.
Hálfdán Varðstjóri er ákaflega upp með sér að hafa hina dáðu Anítu lögregluprjón í varðsveit sinni og gefur henni besta vitnisburð. Eitt sinn fór hún að stilla til friðar á einkaheimili, en þar lenti hún í hasar við brjálaða kérlíngargálu, sem búin var að dauðrota eiginmann sinn, þá að var komið. Hin tryllta kona hugðist fara eins að við Anítu og karlinn sinn, en Aníta varð fyrri til, sleit borðfót úr timbri undan stofuborðinu og laumaði honum ákveðið í höfuð kérlíngar, sem valt útaf og bærði ekki á sér. Úti í lögreglubifreiðinni sat Hálfdán Varðstjóri undir stýri og dreypti á volgu rommi sem hann geymdi inná sér og hlustaði á graðhestahljómlist í útvarpinu. Það lyftist því heldur á honum brúnin, þegar útdyr hússins, sem lögreglan hafði verið kvödd að, opnuðust og Aníta, sem nýtur lýðhylli, kom út og dró ljótu, rotuðu kérlínguna á eftir sér á hárinu. Þetta vóru nú tiltektir sem Hálfdán Varðstjóri kunni að meta og verðskulduðu, samkvæmt hans áliti, þykkan aukabónus í launaumslagið.Frú Ingveldur gefur vinsælu Anítunni líka góð meðmæli, ekki síst eftir að Aníta skilaði Kolbeini, eiginmanni hennar, illa til reika heim á þriðjudagsmorgni, en þá hafði Kolbein, ódámurinn sá arni, verið gersamlega horfinn síðan á sunnudagskveld. Það er einkum vakti gleði frú Ingveldar yfir skilvísi Anítunnar var sú staðreynd að þessi fræga og vinsæla lögreglukvinna teymdi Kolbein Kolbeinsson í bandi á eftir sér eins og hund. Þegar Kolbeinn sá eiginkonu sína mikilleita í dyrunum þá ýlfraði hann. Svo kom upp úr kafinu, að Anítan hafði fundið Kolbein í alræmdu hjallgreni í svo vafasömum félagsskap, að maður sem bæði er skrifstofustjóri og framsóknarmaður, gæti beðið alvarlegan hnekki af, ef fréttist út á meðal múgsins, að hann hefði fundis lítt klæddur, og í dónalegum athöfnum, í þeim óhrjálega stað.
![]() |
Táknmynd lögreglunnar sem refsandi afls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2020 | 15:34
Merarhjartað í buxunum
Sem kunnugt er þá mun betra að verða frægur af endemum í stað þess að vera bara ekkert frægur. Þetta á ekki hvað síst við stjórnmálamenn. Ein lítilsigldur og litlaus poletikus, sem verður til dæmis frægur, gott ef ekki heimsfrægur, af því að missa hjartað ofan í buxur sínar út af solitlum jarðskjálfta, fyllist ólýsanlegri hamingju, og það þrátt fyrir að merarhjartað ólmist í buxunum eins og villuminkur í poka.
Hins vegar er það svo, að þegar forsætisráðherra þjóðar opinberar heybrókargéð sitt og fullkomið hugleysi fyrir framan heiminn, eins og íslenski forsætisráðherrann gjörði í beinni útsendingu þegar jarðskjálftinn á Reykjanesskaganum reið yfir, þá er eitthvað mikið að. Forsætisráðherra sem þolir ekki goluþyt eins og jarðskjálfta er auðvitað aunginn forsæðisráðherra heldur varasamt og hjartveikt bleyðimenni og við það gétur aungin þjóð búið, að minnsta kosti ekki við reis.
Því verður, að taka forsætisráðherrann koma henni í hvíldarinnlögn í Austurríki eða Sviss, þeir eru að sögn góðir í að meðhöndla áfallaröskunargémlínga, og sjá til þess að hún dvelji þar, lengi. Í kjölfarið verði herra Stenngrimi Johoð, einum eiganda forsætisráðherra, falið að taka að sér embætti forsætisráðherra, sem mundi þá bætast ofan á starf herra S. Johoð sem forseta Alþingis. Ástandið er grafalvarlegt, samtal hefir farið fram, línulegur veldisvöxtur hefir orðið í hugrekkisfasa sitjandi forsætisráðherra, sem kallar á nýja verkaferla og lausnir, sem leiða til þess heildstæðrar áskorunnar í þá veru að hinn veimiltítulegi forsætisráðherra verði umsvifalaust tekinn úr umferð. Semsagt, þúst, hún var ekki sona hrædd þegar hún var að bretta sig á gelgjulegan hraksmánarmáta framan í Stoltenberg NATÓ-framkvæmdastjóra, þá var nú regluverkið skýrt. So er hún so klár og dugleg, þúst ...
![]() |
Viðbrögð Katrínar vekja heimsathygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 2
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 100
- Frá upphafi: 1553982
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 90
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007