Leita í fréttum mbl.is

GJH höfuðsnillingur og þjóðsagnapersóna.

103_0352Skal nú kvaddur til sögunar, enda óþarfi að draga það lengur, höfuðsnillingurinn og þjóðsagnapersónan GJH, sem fyrir skemmstu tók við heiðursviðurkenningunni "Sameign allra Tálknfirðinga, fjær og nær." Mun rétt vera, að GJH sé eini maðurinn á byggðu bóli sem unnið hefur fyrir slíkri nafnbót.

Síðasta sumar urðu þau ógurlegu tíðindi, að nefndur GJH, varð sextugur, sem sýnir svo ekki verður um villst , með einföldu reikningsdæmi, að hann er hér um bil ellefu árum eldri en Osama bin Laden. Ekki þarf að taka fram, að GJH er fremri Osama á öllum sviðum, nægir þar að nefna, að sá síðarnefndi er algerður bindindismaður,  en GJH kann manna best að meta guðaveigar sem lífga sálaryl, sem meðfylgjandi mynd sýnir svo ekki verður um villst.

Síðast liðið haust varð GJH þeirrar hamingju aðnjótandi, að gerast framsóknarmaður og munaði ekki nema hársbreidd að hann færi í framboð fyrir stjórnmálasamtök framsóknarmanna. En hamingjan er fallvöllt og á aðventunni dró ský fyrir sólu því GJH varð svo ógæfusamur að hætta að vera framsóknarmaður. Og á sjálft aðfangadagskvöld, yfir jólasteikinni, gaf GJH út yfirlýsingu þess efnis, að FRamsóknarflokkurinn væri skítaflokkur, sem æðri máttarvöld ættu að sjá sóma sinn í að afmá með öllu af yfirborði jarðar enda væri flokksnefna þessi ekki hótinu betri en innbyggjar Sódómu og Gómorru forðum daga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband