Leita í fréttum mbl.is

Þvílík býsn og villuboðskapur

dansFljótt á litið virist Níels Hafsteinsson Danskennari Til 30 Ára heldur betur vera utan við sig og austan. Ég hefi að minnsta kosti ekki lesið önnur eins býsn í háa herrans tíð og ummæli Níelsar Danskennara þess efnis að sá sem ekki geti dansað verði utangátta í samfélaginu. Hefur manngarmurinn aldrei heyrt þess getið að fólk hafi dansað sig út úr samfélaginu? Hann hefur að minnsta kosti ekki veitt því eftirtekt að íslensku auðvaldsstéttinni tókst af dæmafáu harðfylgi að stíga djöfladans frjálshyggjunnar svo skart að nú stendur Ísland utangátta,eitt og yfirgefið, í samfélagi þjóðanna. Fyrir mína parta frábið ég mér boðskap og kenningar Níelsar Hafsteinssonar Danskennara Til 30 Ára. 
mbl.is Dansað af lífi og sál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband