Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Protan í Rúmeníu og sægreifarnir.

Það þykir nú ekki í frásögur færandi þegar útgerðarfyrirtæki á Íslandi láta sjómenn sína varpa fiski í sjóinn, hvort heldur það er í 47 tonna vís eða þúsunda tonna vís. Miðað við þau ósköp blikna þessi skitnu 47 tonn af dýraskrokkum sem fundust í útjaðri Búkarest. Það er þó einn grundvallar munur á gírugu brottkasti kjaftagleiðra íslenskra sægreifa og fyrirtækisins Protan í Rúmeníu, sem losaði sig við hræ af dýrum á víðavangi, en það er að hinn dauði brottkastaði fiskur er falinn á hafsbotni þar sem enginn sér hann, meðan dýrahræin lágu fyrir allra augum.
mbl.is Rotnandi hræ í tonna tali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin hræðist Steingrím J. og Ögmund.

Það er vel við hæfi, að utanríkismálanefnd verði kölluð saman og NATO-dindlarnir þar, ásamt frú Ingibjörgu Utanríkisráðherra verði látin standa fyrir máli sínu. Ekki er annað að sjá en sleikjuskapurinn kringum rassinn á Bandaríkjunum og NATO hafi heldur færst í aukana eftir að Samfylkingarselskapurinn gekk í Sjálfstæðisflokkinn í vor, og var varla á bætandi við það sem fyrir var í þeim efnum.

Ef formaður utanríkismálanefndar hunskast til að halda umbeðinn fund, má búast fastlega við, að frú Ingibjörg Sólrún muni eiga þar mjög í vök að verjast, sem og aftaníossar hennar lítilfjörlegir. Það verður eflaust hlutskipti frúarinnar að tafsa, súpa hveljur og ranghvolfa augunum, þegar og ef hún reynir að svara félaga Steingrími þegar hann lætur til skarar skríða. Enda hræðast samfylkingargarmarnir ekkert meira en að lenda í klónum á Steingrími J. og Ögmundi Jónassyni því samviska Samfylkingarinnar mun víst ekki upp á marga fiska þessa dagana.  


mbl.is Formaður VG óskar eftir fundi í utanríkismálanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur orðið lífskjarabylting í landbúnaði.

Það er ekki annað að sjá en síðasta ár hafi verið bændum í Eyja- og Miklaholtshreppi óvenju gjöfult og blessunarríkst, ef marka má lista yfir hæstu greiðendur opinbera gjalda í Vesturlandsumdæmi. Þó að ég búi í næsta nágrenni við áðurnefndan Eyja- og MIklholtshrepp, er mér ekki kunnugt um hvaða búskap þessir tekjuháu bændur stunda, en ég sé fyrir mér stórar breiður af sauðfé og nautpeningi. Ekki kæmi mér á óvart þó Ingibjörg bóndi, sem trónir á toppi gjaldenda, hafi á sínum snærum 10.000 ær og 1000 mjólkandi kýr, auk slæðings af hænsnum, hrossum og svínum.

Það er mjög gleðilegt, að eftir áratugi magurra ára í landbúnaði, þá hafi greinin tekið svo hressilega við sér, að bestu bændur eru farnir að greiða 20 - 30 milljónir í opinber gjöld á ári. Af þessu sést að Guðni Ágústsson, Framsóknarflokkurinn og gjörvöll fyrrverandi ríkisstjórn hafa lyft sannkölluðu grettistaki í landbúnaðarmálum. Það er því engin goðgá, að spá því, að innan örfárra ára verði reist a.m.k. 450 metra há stytta af Guðna á góðum stað í miðri Árnessýslu, en minni styttur af sama kraftaverkamanni víðsvegar um land, til að mynda í Eyja- og Miklholtshreppi. 


mbl.is Ingibjörg Kristjánsdóttir greiðir hæstu gjöldin í Vesturlandsumdæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir Haarde heillaði Halifaxbúa

Það er ég viss um að Halífaxbúar hafa rekið upp stór augu þegar sáu auðvaldsþjóninn Geir Haarde, gaddfreðinn að vanda, koma skjögrandi út úr frystigeymslu Eimskips. Það er ekki á hverjum degi sem slíkt gersemi heimsækir útnára á borð við Halífax, svo þetta hefur að líkindum verið mikil tímamótaheimsókn. Svo er ég alveg viss um að margir íbúar Halífax hafa haldið að þetta viðundur væri Halldór Ásgrímsson kvótaforingi, en þessir tveir eru svo líkir í sjón og reynd, að engu er líkara en þeim sé báðurm snýtt út úr annarri og sömu nösinni á auðvaldsguðinum Mammón.

En verði Halíföxurum að góðu, að hafa fengið Geirinn Horde í heimsókn. 


mbl.is Forsætisráðherra kynnti sér starfsemi Eimskips í Halifax í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meydómurinn - enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

Upp úr fimmtugu fór frú Ingveldur að hafa uppi stór orð um gildi meydómsins. " Aunginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur" var viðlagsstef hennar þegar hún lét gamminn geysa. - Ja heyr á endemi, sögðu Meðal-Jónurnar í hálfum hljóðum hver við aðra. Í stórbrotinni grein í Morgunblaðinu hélt frú Ingveldur því ótrauð fram, að þær telpur, sem fallið hefðu fyrir freistingu lostans og glatað meydómi sínum innan við sextán ára aldur, væru Djöflinum á vald gefnar, en tuttugu ára skírlífi væri meydómsígildi. (Þegar Þorgarður skipstjóri las greinina, velti hann því lengi fyrir sér hve mörg þorskígildi væru í einu meydómsígildi.) Í sömu grein reifaði frú Ingveldur þá skoðun sína, að Íslenska ríkið ætti að gefa út meydómsskýrteini, sem endurnýjað væri á þriggja mánaða fresti með læknisuppáskrift. Og niðurlag greinarinnar hljóðaði svo: ,,Í hinum vestræna heimi hefur það tíðkst síðustu tvo áratugina, að fólk  lætur sér fátt um finnast þó að ungar stúlkur verði hórnum að bráð, gefið sig girndinni á vald, og eigi sjaldnast aftukvæmt úr þeim ógöngum, því löng er leiðin til aftur til óspjallaðs ástands, og sannast þar hið fornkveðna, að aunginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur."  

Að moka miljörðum í blóðbað og mannhatur.

Það setur ævilega að mér kaldan hroll þegar ég les frétt sem þessa, þar sem greint er frá svo miklu mannhatri og fyrirlitningu í garð heimsins sem raun ber vitni. Hvernig í djöflinum stendur eiginlega á að bandaríkjamenn skuli ítrekað voga sér að storka heimsbyggðinn, hvað eftir annað á herfilegasta máta - og komast upp með það? Hvernig ber eiginlega að túlka athæfi eins og að dæla 30 milljörðum bandaríkjadala til hernaðaruppbyggingar hryðjuverkaríkisins Ísrael ? Er markmiðið að aðstoða Ísraelsmenn til að útrýma palestínufólki í eitt skipti fyir öll? Er þetta ef til vill framlag glæpamafíunnar í Hvíta húsinu til að vinna að hinni ,,endanlegu lausn á palestínuvandamálinu?"

Það er hræðilegt til að vita, að íslensk stjórnvöld skuli alltaf boðin og búin, nótt sem nýtan dag, að styðja siðlaust glæpafólk og hryðjuverkamenn eins og Georg Bush og Kondólessu Ræs. Við erum enn hnýtt á klafa hinna viljugu þjóða gagnvart blóðbaðinu í Írak. Þar um hafa bólfarir Samfylkingarinnar við Íhaldið engu breytt.

Það heitir víst óraunsæi, eða eitthvað þaðan af verra, gera kröfu til þess að íslendingar fari að stunda sjálfstæða utanríkisstefnu, óháða auðvaldinu í heiminum. En hvað sem því óraunsæi lýður, geri ég slíka kröfu og veit að ég er ekki einn á báti hvað það varðar. 


mbl.is Bandamönnum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum veitt fjárhagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kókaínhundarnir og tómu jakkafötin.

Hvenær ætli þeir fari að fara með kókaínhundana á morgunverðarfundi Verslunarráðs og aðrar ámóta samkomur þar sem peningageðsjúka manntegundin sem kennd er við ,,tóm jakkaföt" er á sveimi? 

 Það gerast ýmsir skandalarnir í Edens fínum rann, eins og dæmin sanna.


mbl.is Öflugt fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sægreifi nær drukknaður í rotþró.

Um helgina varð sá fáheyrði atburður, að frægur kvótagróssér féll ofan í opna rotþró við sumarbústað og var nær drukknaður þar niðrí. Erfiðlega gekk að bjarga manninum því þróin er mjög djúp og sá hinn niðurfallni og þeir sem reyndu björgunaraðgerðir uppi á bakkanum áttu það sammerkt að vera mjög ölvaðir. Eftir nær tveggja tíma veru í rotþrónni, bar að þrjá alsgáða menn sem tókst að bjarga sægreifanum upp úr, en hann var þá mjög aðfram kominn, enda náði innihald þróarinnar honum upp fyrir geirvörtur og hann búinn að súpa af kræsingunum.

Tildrög hrakfara sægreifans voru, að hann var gestkomandi í sumarbústað þar sem nýbúið var að grafa upp rotþró sem til stendur að endurnýja. Í sumarbústaðnum var glatt á hjalla með sumbli og gítarspili. Eitthvað mun sægreifinn hafa þurft að draga að sér hreint loft, því hann stóð upp í miðjum fjöldasöng og ráfaði bak við hús með fyrrgreindum afleiðingum.

Hefði allt farið á versta veg í þessu tilfelli og sægreifinn beðið bana í rotþrónni, væru nokkur þúsund tonn af kvóta í uppnámi sem og sjávarþorpið sem sægreifinn gerir báta sína út frá.

Þess ber þó að geta, að það er mál manna, að farið hafi fé betra þó sægreifinn hefði borið beinin í þrónni; það hefði í mesta lagi orðið mannslát en ekki mannsskaði.  


Þvagdaunn í stigagangi.

Árum saman hafði þvagdaunn í stigaganginum valdið íbúum fjölbýlishússins ómældri raun og búsifjum. Hvernig sem skúrað var og skrúbbað upp úr serkustu sápum, gaus óþefurinn að skammri stund liðinni upp aftur, stundum tvíelleftur og erti lyktarskyn fólks, súr og svakalegur. Fór og að lokum, að hún húsið fékk eigi staðist hlutverk sitt og urðu örlög þess, að stórvélaður vinnuflokkur frá í þjónustu borgaryfirvalda braut það í mola og keyrði í brott til urðunar. Íbúarnir, sem skömmu áður höfðu lagt á flótta, var komið fyrir hist og her út um alla borg í allrahanda grenjum og rottuholum og varð mögum vistin þar daufleg og vond. Áratugum síðar játaði Arinbjörn nokkur Kolbeinsson, á banabeði, að vera valdur að óláni þessa húss og óhamingju íbúanna.

Usher og útjaskaða skækjan.

Það setti að mér óumræðilega sorg og aðkenningu að ekka þegar ég frétti í síðustu viku að hinn afbragðsfallegi og hjartahlýji söngvari Usher ætlaði að kvænast Tameku Foster, hræðilegri kerlingarafmán og útjaskaðri skækju, sem auk þess er ólétt eftir einhvern ótýndan gradda, sem hún lét barna sig meðan Usher, mannsefni hennar, var úti að syngja. Til marks um hverskonar rudda hlandfrussa þessi Tameka Forster er, þá hefur henni tekist að koma á ósætti milli Ushers og móður hans, sem allir vita að er góð kona og gegn.

Það var því eins og mörgum tonnum af múrsteinum væri létt af hjarta mínu þegar ég heyrði þær gleðifréttir, að brúðkaupi Ushers og syndakvinnurnar Tameku hefði verið aflýst á síðustu stundu. Og nú standa vonir til, að sá drenglyndi Usher muni sættast við móður sína og í framhaldi af því fara að líta í kringum sig eftir sér samboðinni gæðakonu.


mbl.is Usher aflýsir brúðkaupi
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband