Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
31.3.2010 | 09:34
Auðvelt fyrir Steingrím J. að skipta um ráðherra
Það ætti að vera auðvelt fyrir Steingrím J. að skipta um ráðherra VG í ríkisstjórninni. Hann á vitaskuld að vísa undirmálsráðherrum sínum, þeim Álfheiði Ingadóttur, Svandísi Svavarsdóttur og Katrínu Jakobsdóttur á dyr og taka í þeirra stað inní ríkisstjórnina þau Ögmund Jónasson, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Lilju Mósesdóttur. Þar með væri komið fólk til starfa sem hefði í fullu tré við gamla gráa kattarláfujafninginn í Samfylkingunni.
Ekkert verið rætt um að víkja úr ráðherrastólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2010 | 23:00
Sem minnir á að nauðsynlegt er ...
Hraunið verður afgirt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2010 | 22:42
Það eru ekki bara samkynhneigðir sem koma útúr skápum
Kolbeini Kolbeinssyni mun aldrei líða úr minni nóttin sem hann dvaldi í svefnherbergisskápnum hjá Elísabetu Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru eignasviðs Frónsbanka. Tildrög málsins voru á þá leið, að Kolbeinn var staddur í hjónaherbergi Elísabetar þegar eiginmaður hennar kom óvænt heim. Morguninn eftir, þegar karlhólkurinn Elísbetar var horfinn á braut til vinnu sinnar, kom Kolbeinn útúr skápnum og tók til við sömu iðju með framkvæmdastýrunni og hann hvarf frá kvöldið áður, þegar eiginmaður hennar kom heim.
Hér verður ekki sagt frá upplifun Kolbeins í skápnum og er lesendum því bent á að leita annað ef þeir vilja verða sér útum fróðleik í klámi.
Ricky Martin kominn út úr skápnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.3.2010 | 22:38
Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða fram í Garðabæ ???
Það er hreint með ólíkindum að Sjálftæðisflokkurinn skuli voga sér bjóða fram lista í hinum og þessum sveitarfélögum í vor; raunar er óskiljanlegt að þessi illræmdu samtök hafi starfsleyfi hér á landi eftir það sem á undan er gengið. Það verður æ áleitnari spurning hvað Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að gera mikið af sér svo að hann verði bannaður með lögum, rétt eins og þjófnaður og nektardans eru bönnuð með lögum.
Hinsvegar er ekki hægt að gera kröfu til svokallaðra ,,sjálfstæðismanna" að þeir hafi nægilegt vit og siðferðisvitund til að draga sig orðalaust í hlé og leggja félagsskap sinn niður. Siðblindir fá ekki sjón nema fyrir kraftaverk og slík kraftaverk eru því miður ekki í boði nú til dags.
Það vekur því vissulega mikla furðu, að ,,sjálfstæðismenn" í Garðabæ skuli vera svo bíræfnir að leggja fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Auðvitað eru það sár vonbrigði, að horfa uppá að fólk geti ekki séð að sér. En mannlegri ófullkomnun eru í blindu sinni fá takmörk sett þegar yfirgangur, græðgi og forheimskun eru annarsvegar.
Vel getur verið að það hljómi sakleysilega að stilla 33 ára aðstoðarframkvæmdastjóra og kennara, 48 ára framkvæmdastjóra og 51 árs framkvæmdastjóra upp hlið við hlið á framboðslista. En þegar þess er gætt að umrætt framkvæmdastjóratríó stendur fyrir auðvald, frjálshyggjuóra og ójöfnuð fer gamanið að kárna. Sjálfstæðisflokkurinn er að sönnu þjóðfélagssjúkdómur, illkynja krabbameinsæxli í þjóðarlíkamanum, sem var hérumbil búinn að sálga landi og þjóð fyrir rúmu ári síðan.
Það kýs sér enginn að fá krabbamein, - slíkt hið sama ætti að eiga við um Sjálfstæðisflokkinn, ef allt væri með felldu.
Áslaug Hulda leiðir listann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
24.3.2010 | 16:18
Blaða- og fréttamenn hafðir af fíflum
Vilja endurskoða samstarfið við AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.3.2010 | 14:57
Skörungar bera fram þjófasátt úr búri Maddömunnar
Framsókn boðar þjóðarsátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2010 | 13:00
Fróðleikur um trébelli fyrri tíðar
Óhollusta kynlífsleikfanga er síður en svo nýtt vandamál. Hér fyrr meir voru fryggðargandar ævinlega smíðaðir úr tré og báru oft á tíðum vitni um listrænt handbragð og gott auga fyrir útskurði þeirra er framleiddu gripina. Einn var þó heldur hvimleiður fylgifiskur trégandanna, en það voru flísarnar. Til dæmis voru furubellir varhugaverðir í því sambandi, en fura er afar flísagjörn trjátegund og vandmeð farin í kynlífsiðnaði. Í læknaskýrslu frá því fyrir miðja síðustu öld, má lesa ófargrar frásagir um glímu samviskusamra lækna við fjarlægja furuflísar úr viðkvæmustu stöðum mannslíkamans.
Eikin þótti skárri en furan sem efni í gerfilóka, bæði sterkari og flísaminni, auk þess sem auðveldlega mátti rota karla jafnt sem konur með því verkfæri. Þó átti eikin til að springa þegar minnst varð og var þá ekki óalgengt að notandinn fengi langa og grófa flís í sig sem erfitt var að fjarlægja.
Árið 1959 voru fryggðargandar úr tré bannaðir á Íslandi. Bannið var nokkuð umdeilt á sínum tíma, því kvenfélagskonum þótti það höggva full nærri því frelsi sem hverri konu væri nauðsynlegt að hafa á líkama sínum. En svo tók plastið við og síðan hafa allir verið sáttir.
Görótt kynlífsleikföng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2010 | 21:52
Síra Baldvin sakaður um kynvillu er hann sókti um brauð
Þegar síra Baldvin sókti um Barmahlíðarprestakall á sínum tíma, sóktu Bjarni Björnsson cand. theol og séra Jórunn Ösp Friðfinnsdóttir líka um sama brauð, þannig að kjósa þurfti á milli þeirra þriggja. Í prestskosningarbáráttunni bar helst til tíðinda, að stuðningsmenn og konur séra Jórunnar Aspar komu þeim orðrómi af stað innan prestakallsins, að síra Baldvin væri kynvilltur og rökstuddu þá kenningu með þeirri staðreynd að hann væri ógiftur og ekki í tygjum nokkurn kvenmann svo vitað væri. Fyrir tilviljun eina barst síra Baldvini þessi óviðkunnanlegi rymtur til eyrna. Hann hófst þegar handa við að komast að uppruna svívirðunnar og bárust böndin fljótlega að séra Jórunni Ösp og hennar postulum. Þegar hið sanna lá ljóst fyrir lagðist síra Baldvin á bæn og bað Drottinn himinhæða að hjálpa sér við að leita að séra Jórunni Ösp. Og Drottinn brást fljótt og vel við bón síns elskaða þjóns og vísaði honum beint á séra Jórunni Ösp þar sem hún sat yfir kaffibolla á bænum Þverholti og fræddi heimilisfólkið þar á ónáttúrlegum kynlífskenndum síra Baldvins. Og síra Baldvin var ekkert að tvítóla við það sem hann hafði í huga. Hann teymdi séra Jórunni Ösp bæ frá bæ, hús úr húsi og léta hana kunngera fólki, að hún völd að orðrómnum um meinta kynvillu síra Baldvins; og að tilgangurinn með róginum hefði átt fæla sóknarbörn Barmahlíðarprestakalls frá því kjósa slíkan öfugugga til prestsstarfa.
Eftir snöfurmannlega framgöngu sína í kynvillingsmálinu sigraði síra Baldvin prestskosninguna með fáheyrðum yfirburðum.
Nokkrum mánuðum síðar var séra Jórunni Ösp veitt gott brauð í prestakalli þar sem sjálfstæðisflokksmenn eru afar fjölmennir.
Sex sækja um brauð á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2010 | 19:14
LÍÚ-elskandi þingskörungur slekkur í dónalegum ráðherrum
Það er fram úr máta gleðilegt, að vér Íslendingar skulum eiga annan eins þingskörung og Unni Brá Konráðsdóttur, sem er svo mikill þingskörungur að hún slagar hátt uppí Vígdísi Hauksdóttur hvað þinskörungsskap áhrærir. Ekki undrar mig, að það hafi snert hjartað í mörgum, þegar féttist að áminnst Unnur Brá hafi blásið til utandagskrárumræðu á Alþingi í dag útaf bölvaðri skötuselsófreskjunni, sem eyðilagði sjálfann ,,stöðugleikasáttmálann" í gær. Að sjálfsögðu mæltist Unni Brá einkar vel, enda innblásin af þeirri heift sem einkennt hefur orðræður forystumanna LÍÚ undanfarið, svo ekki sé minnst á vemmilega grátstafi Vilhjálms Egilssonar og auðvaldskjökur Gylfa Arnbjörnssonar. Með vel heppnaðri ræðu sinni tókst Unni Brá að kveða bæði Jóhönnu Sig. og Steingrím J. í kútinn á sannfærandi hátt. Vissulega reyndi Jóhanna að brúka kjaft og Steingrímur líka, en Unnur Brá slökkti jafnhraðan í ráðherrum forsætis og fjármála eins og sígarettustubbum og naut við það liðsinni LÍÚ elskandi flokkssystkyna sinna.
Hvetur SA til áframhaldandi samstarfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.3.2010 | 19:51
Afar umdeilt ákvæði, segir mbl.is
Það má svo sem vel vera, að þeim sem hringsnúast alla daga í meltingarfærum LÍÚ og innsta kjarna Sjálfstæðiflokksins, finnist bráðabirgðaákæðið, sem heimilar sjávarútvegsráðherra að auka skötuselskvóta og úthluta þeirri aukningu til útgerða með gjaldi, vera umdeilt. Sannleikurinn er hinsvegar sá, að þorri landsmanna tekur þessu ákvæði fagnandi, en sem kunnugt er vilja um það bil 80% þeirra að núverandi kvótakerfi verði lagt af.
Þó svo að auðvaldsvillingarnir í LÍÚ hafi gert allt sem þeir hafa getað til að stöðva að ,,skötuselsfrumvarpið" svokallaða verði að lögum og meðal annars fengið nytsama sakleysingja í sveitarstjórnum og verkalýðsfélögum til lið við sig, þá lætur þjóðin sér þessháttar rassborureyk sem vind um eyru þjóta. Mulningsvélin, sem ætlað er að mala niður kerfi kvótaböðlanna, er komin í gang og lögð af stað. Það verða eflaust einhver öskur og vein í velunnurum kvótakerfisins í þann mund og þeir steypast eins og vængstýfðir þúfutittlingar ofan í mulningsvélina, en það tekur enginn vitiborin maður tillit til þessháttar hávaða.
Skötuselsfrumvarp að lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 3
- Sl. sólarhring: 63
- Sl. viku: 1475
- Frá upphafi: 1542345
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 1298
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007