Bloggfærslur mánaðarins, október 2011
30.10.2011 | 13:38
Sorrý, - það er heldur seint, karl minn, að grípa fyrir rassinn þegar ,,the shit" er kominn í buxurnar.
Það er heldur lítið gefandi fyrir landsfundarályktanir í syndaaflausnarstíl, sem ekki stendur til að fylgja eftir á nokkurn hátt nema með steingrímískum orðavaðli til þess eins að blekkja fólk.
Eftir það sem á undan er gengið, ætti flestum að vera ljóst, að VG er mjög veikburða stjórnmálaflokkur, hrjáður af innanmeinum, óheiðarleika og ógeðfelldu foringjaræði. Það er t.d. með ólíkindum, að rúmlega 70% þeirra landsfundarfulltrúa, sem þátt tóku í formannskosningu, skuli hafa haft lyst á að greiða sitjandi formanni atkvæði sitt þegar þeim stóð til boða að skila auðu eða kjósa aðra frambjóðendur.
Hvað um VG verður í framtíðinni, er harla óljóst á þessari stundu, en sitthvað bendir til að erfitt verði fyrir kjaftaskana þar á bæ að stöðva hrörnun flokksins. Því þó svo að Vinstrihreyfingunni grænu framboði takist að sleppa lifandi frá helst til fámennum landsfund á Akureyri, mun það ef að líkum lætur verða skammgóður vermir.
Orðalag vegna Nató mildað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.10.2011 | 20:55
Af erindi frú Ingveldar um virði meydómsins
Á síðasta aðalfundi Sjálfstæðismannafélags Garðabæjar flutti frú Ingveldur erindi sem hún kallaði ,,Hvers virði er meydómurinn." Í þessu frábæra erindi sínu gerði frú Ingveldur nauðsyn á varðveislu meydómsins að þungamiðju máls síns annarsvegar, en hinsvegar ríka áherslu á gildi þess að verða ekki hórnum að bráð. Þá vék hún máli sínu að sérstöku sálarástandi, sem á það til að grípa fólk, ,,hinni ótímabæru kynvillu" en það ku verka á þá er fyrir verða eins og þeir hafi étið gangstéttarhellu.
Í lokakafla erindis síns vék frú Ingveldur að hlálegum meydómsmissi Máríu borgargagns, sem varð þess valdandi að Máría hefur mátt sæta þeim örlögum að verða náttúrulegur brókarsóttargemlingur, kjaftatífa og trunta. En frú Ingveldur hafði kvöldið áður en hún flutti Sjálfstæðismönnum í Garðabæ erindi sitt, komið að Kolbeini, eiginmanni sínum, í óforskömmuðum ástarlífsmökum með Máríu borgargagni um kvöldmatarleytið undir borði í bílskúr frú Ingveldar og Kolbeins.
Niðurstaða erindis frú Ingveldar var því sem sé, að meydómurinn væri í raun einskis virði í nútíma þjóðfélagi og það væri fremur heimskulegt að reyna að halda í hann til þess eins að halda árunni hreinni. Hinsvegar bæri kallmönnum að sniðganga hórinn eins og hverja aðra drepsóttarplágu og leggja sig ávallt í líma við að halda krumlum sínum og öðrum líkamsöngum frá nærbuxum kvenna til að fá ekki það orð á sig að vera nærbuxnafémínístar.
Reyndi að selja meydóm dóttur sinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.10.2011 | 20:00
Flokksbróðir fjármálaráðherra
Hohohojjjj ... auðvitað er Steingrímur hörmum sleginn, að ekki sé sagt þörmum veginn, yfir því að ráðning flokksbróður hans í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hefur leitt til þess að stjórn Bankasýslunnar greip til þess óyndisúrræðis að segja af sér.
Nú, fyrst stjórn Bankasýslunnar er hlaupin fyrir björg, má reikna með því að Páll Magnússon, framsóknarmaður og flokksbróðir fjármálaráðherra, hlaupi fyrir líka fyrir sömu björg. En fjármálaráðherra er séður fugl og á, ef að líkum lætur, fáein fullmektug dekurdýr uppí erminni til að manna stjórn Bankasýslu ríkisins.
En þó að Páll Magnússon framsóknarmaður falli milli skips og bryggju með öllum þeim hörmungum sem slíkum atburði fylgir, er björninn síður en svo unninn. Eftir er að taka í hnakkdrambið á Páli Magnússyni útvarpsstjóra og auðvaldsdindli og sparka honum veg allrar veraldar úrúr húsakynnum Ríkisútvarpsins, áður en honum tekst að vinna fleiri spjöll þar innandyra.
En það er líklega heldur mikið fyrir harma og þarma framsóknarmannsins í forstjórastóli Vinstri grænna að missa tvo Pála Magnússyni úr elítuhirð Gamla Íslands, sem Steingrími hefur tekist, góðu heilli, að endurreisa af gífurlegri harðfengi og dugnaði.
Harmar afsögn stjórnarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2011 | 18:43
Hinir huglausu nískupúkar í Skotvíshernum
Það er ekki nóg með að vargarnir í Skotvís séu sólgnir í að myrða fugla, heldur eru þeir slíkar andskotans nánasir og nískupúkar að þeir tíma ekki ekki einusinni að borga dálitla peningaupphæð fyrir að fá að svala fuglamorðfýsn sinni. Útaf þessum nánasarhætti ætti að svipta gjörvalla Skotvíshersveitina leyfi til að bera skotvopn; taka byssuleyfið að hverjum einum og einasta þessara dáta og dæma þá uppá vatn og brauð í kaupbæti fyrir nísku og frekjugang.
Í fyrra komu tveir óboðnir Skotvísdelar, gráir fyrir járnum, inná landareign Björns bónda hins gráa og hófu þegar í stað mikla skothríð. Birni gráa líkaði þetta háttalag mannanna afar illa og skaut af riffli sínum í móti komumönnum og hæfði húfuderið á öðrum. Þá kom í ljós að hermenn Skotvís voru einhverjir huglausustu angurgapar, sem tekið hafa sér byssu í hönd frá því menn lærðu að búa til púður, því þeir köstuðu frá sér vopnum sínum, töskum og öðrum búnaði og lögðu á brjálæðislegan flótta. Auðvitað villtust þessi kvikindi á flóttanum og fundust ekki fyrr en tveimur sólarhringum síðar, þá nötrandi inní hraungjótu, búnir að gera í buxurnar og hágrátandi.
Mótmæla sölu veiðileyfa í afrétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.10.2011 | 15:20
Ó sú náð að eiga Álfheiði ...
Mikið mega Íslendingar vera þakklátir fyrir að eiga metfé eins og Álfheiði Ingadóttur flokkseiganda, pólitískan loddara og vandræðaskáld. Álfheiður má eiga það, að hún hefur margsinnis fyllt brjóst landsmanna af fölskvalausri gleði og tærri lífshamingju. Þá stundaði frú Álfheiður gifturíkt fiskeldi í Ólafsvík, það var fögur saga og fallegt vitni um hveskonar afburðarsósíalisti þessi stórmerka kona er.
Þá hefur innilegt hatur frú Álfheiðar í garð félaga Ólafs Ragnars Grímsonar lengi verið rómað, einnig á því plani hefur hún sannað yfirburði sína. Og nú er hún strax byrjuð að hlakka yfir því að skipt verði um forseta á næsta ári. Líklega ætlar hún sjálf að bjóða sig fram til forseta og velta hinum hataða Ó.R. Grímssyni úr sessi. - Og þó. - Það hefur nefnilega verið mjög í umræðunni hjá hinu jarðbundna flokkseigendafélagi VG að leiða frú Guðrúnu Ágústsdóttur, ektakvinnu Svavars Sendiherra, fram á völlinn í forsetaframboð, en frú Guðrún er að ýmsu leyti jafningi frú Álfheiðar að sálargáfum og atgerfi öllu.
Það má gera ráð fyrir að málefni forseta Íslands verði mikið rætt á landsfundi VG, sem háður verður um næstu helgi, af þeim fáu sem þar mæta. En helsta vandamál VG um þessar mundir eru hræðilegir erfiðleikar forystumanna flokksins að nudda kjörnum fulltrúum á fyrirhugaðan landsfund, en áhugi kjörinna flulltrúa er einhverra hluta vegna í algjöru lágmarki.
Eigum kost á að skipta um forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2011 | 10:03
Ekki veiðileyfi á rjúpur
Selja veiðileyfi í afrétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2011 | 09:47
Máría borgargagn ók lika á ljósastaur
Ók hann á ljósastaur, bölvaður þorparinn? Ja, þessir geta leyft sér það sem þeim þóknast. Og ók undir áhrifum lyfja eða fíkniefna, - alltaf batnar það. Þetta hefur verið frjálshyggjumaður, það bregst mér ekki, þeir keyra oft á ljósastaura þegar sá gállinn er á þeim: þeir þola ekki að sjá ljós, vesalingarnir atarna.
Og nú ku frjálshyggjumennirnir vera farnir að samfnast saman í Samfylkingunni, enda ekkert ljós þar utan villuljósið í nösunum á Össuri okkar hérna Skarphéðinssyni. En einhversstaðar verða vondir að vera; meira að segja frjálshyggjumenn þurfa að eiga sér athvarf.
Í hitteðfyrra ók Máría borgargagn á ljósastaur, sem sambýlingur hennar, Indriði handreður, hafði mígið utaní fyrr um kvöldið. Hvort um tilviljun var að ræða er ekki vitað, en hitt er víst, að Máría borgargagn var í mikilli geðshræringu þegar hún ók af stað frá heimili sínu, af því að hana grunaði að handreðurinn hefði verið að sýsla eitthvað frámunalega skuggalegt með Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra: sem sé að þeir stunduðu holdlegar ástir þegar þeir væru saman undir áhrifum lyfja, fíkniefna eða áfengis. Og því fór sem fór.
Ók á ljósastaur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2011 | 08:50
Loksins er Brandur minn kominn í leitirnar
Hann er sannarlega öfundsverður dýraeftirlitsmaðurinn á Akranesi, að fá að elta ketti hvar og hvenær sem er úti um allan bæ án þess að vera álitinn snargeðbilaður vitfirringur af samborgurum sínum. Ef venjulegur borgari tæki á eigin spýtur uppá svona iðju, er hætt við að fólk yrði hrætt og kallaði á lögregluna, sem tæki venjulega borgarann, sem væri að elta ketti, og færi orðalaust með hann beint á geðveikrahæli. En af því að það eru hreppsnefndarmenn á Skaganum sem standa að eltingarleiknum við kettina dettur engum manni í hug vitfirringar og vitlausraspítalar. Svona er nú mannkynið komið hátt á þroskabrautinni.
En víkjum nú ögn að myndinni, sem fær að fljóta með frétt mbl.is, af dýraeftirlitsmanninum á Skipaskaga og afbrotafressinu sem hann heldur á: Ég fæ nefnilega ekki betur séð en þar sé kominn í leitirnar minn fyrrverandi heimilisköttur, Brandur, sem varpað var á dyr heima hjá sér fyrir nokkrum árum eftir að hafa pissað af fullkomnum skepnuskap á sæng eiganda síns. En eftir það afrek hefur þessi ódámur ekki sést nálægt heimili sínu. En nú má ljóst vera, að félagi Brandur er ekki jafn steindauður og haldið hefur verið fram að þessu. Helvískur þrjóturinn hefur sem sé flust búferlum suðrá Akranes, eftir að ósætti kom upp á milli hans og húsbóndans, og sest þar að hjá einhverju vandalausu fólki sem hann hefur fengið að pissa í sængurnar hjá án athugasemda.
En úr því sem komið er get ég ekki annað en óskað djöflinum honum Brandi allra heilla í vistinni hjá dýraeftirlitsmanninum á Akranesi og vona að bráðlega fái hann makleg málagjöld fyrir að hafa svikið sinn húsbónda, útsvínað sængurföt hans og hlaupist að heiman.
Auglýst eftir eigendum katta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2011 | 23:49
Seinheppnir glimmerpaurar úr Hreppunum.
Það er auðsjánlegt að þessir glimmerpaurar þarna í Hreppunum þekkja ekki Ungverja og vita þar af leiðandi ekki að þeir eru dýr en ekki menn. Ef þeir hefðu haft einhverja hugmynd um hvern mann þessi úfna og háskalega austurevrópuþjóð hefur að geyma hefðu Hrepparar látið ógert að halda söngskemmtum tileinkaða einum að þessum hræðilegu mönnum. Ég hefi nefnilega lesið á frægri bók allt um innræti Ungverja og það er ófögur lesning, vægast sagt.
Þá hefði hinum söngelsku taðgöltum fyrir austan fjall verið nær að setja upp konsert byggðan á söngstefjum Árna Johnsen, sem verið hefur þingmaður og hjálparhella Sunnlendinga í áratugi. Þessháttar prógramm væri þjóðlegt, upplífgandi og sálarhreinsandi, en þó samt umfram allt fögur þökk Hreppamanna til Alföðurs á hymmnum og ættjarðarinnar fyrir að gefa þeim slíkan afbragðsþingmann sem Árni Johnsen svo sannarlega er.
Hreppamenn minnast Liszts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2011 | 20:52
Er það ekki dásamlegt?
Það er mjög mikilvægt að uppskafningahyskið og menningarskrípalingarnir láti sig ekki vanta á Töfraflautuna í Hörpunni. Af myndunum að dæma, sem fylgja þessari frétt, er ekki annað að sjá en fyrrnefndir þjóðfélagshópar hafi svarað kallinu af skörungsskap með því að fjölmenna á óperuöskrin, sem Diddú og hennar nótar ætla að bjóða uppá í kvöld.
Er það ekki annars dásamlegt, hve úrkynjuð borgarastéttin hefur mikið dálæti á andstyggilegri hljóðmengun og fávitaskap eins og óperum? En óperur eru sem kunnugt er jafn nytsamar mannkyninu og krabbamein. Svo kórónar þessi lýður andlega fátækt sína og undirmálsheilastarfsemi með því að klappa saman lófum, blístra og bravóa fyrir óperulátunum og láta með því líta út að hann hafi ómælda ánægju af kattarbreimi og útburðarkveini lánleysingjanna á sviðinu.
En eitt er víst: Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og frú Ingveldur eiginkona hans voru mætt tímanlega til að hlýða á frumflutning Íslensku óperunnar á Töfraflautunnni eptir Mósart. Með þeim heiðurshjónum eru sambýlingarnir Máría borgargagn og Indriði handreður, öll frábærir fulltrúar borgarastéttarinnar í Reykjavík. Ef ég þekki þetta hrífandi fólk rétt, mun það láta að sér kveða að leik loknum, þegar gestirnir fara að kryfja sýninguna til mergjar eftir menntuðum kúnstarinnar reglum.
Mikið um að vera í Hörpu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 23
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 1495
- Frá upphafi: 1542365
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 1317
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007