Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011
27.7.2011 | 19:54
Plástur á ofalið svín
Það er fyrir mestu að Nordælan skuli vera svona yfir sig ánæggð með það sem hún og hennar líkar kalla í lágkúrukenndri fávísi sinni ,,frumvarp að stjórnarskrá" þrátt fyrir að hitt sé mála sannast að þetta óhrjálega plagg er ekki einusinni brúklegt í skeini, einkum sökum tilgerðarinnar og slepjuskaparins sem prýða síður þess.
Um væntanlegar umræður í þjóðfélaginu um stjórnlagapappír frú Nordal, og væntingar hennar í þá veru, er víst best að hafa sem fæst orð. En ljóst er að sú umræða mun að öllu leyti verða borin uppi af skaðmenntuðum uppskafningum, sem aldrei hafa dýft hendi í kalt vatn, hvað þá mígið í saltan sjó, og inntak hennar eftir því.
Hrossalækningar efri-millistéttaraðalsins á hinu þrautpínda kapítalíska óeðli á Íslandi með einhverju stjórnarskrárföndri mun að sjálfsögðu ekki skila neinu, nema ef til vill dálitlu af ryki í augu almennings. Plástur á ofalið svín með kransæðastíflu mun ekki forða því frá hjartaáfalli með tilheyrandi heiladauða.
Ánægð með samhljóm í ráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2011 | 18:38
Píkupopp
Almenn ánægja ríkir meðal landsmanna með að losna loksins við hið svokallaða ,,stjórnlagaráð" af fórðum ríkissjóðs, enda ótækt að láta 25 manna hóp öfgafullra kverúlanta stunda sumarlangt föndur fyrir blábjána á fullu kaupi.
Afrakstur stjórnlagaþingsins er svo eins og við mátti búast: Þurrkuntulegt ölæðisþrugl í píkupoppsstíl, sem ekki er einusinni hægt að hlægja að, hvað þá meir.
Þar með er ljóst að stjórnlagaráðsgönuhlaup ríkisstjórnarinnar er álíka rýrt og útgangsköttur sem drepist hefur úr ófeiti.
Hinsvegar skil ég ekki í ríkisstjórninni, sem skipuð er flokkum sem eiga það sameiginlegt að vera sósíalískir að langfeðgatali, að hafa ekki fremur skipað sósíalískt byltingarráð fremur en þetta lapþunna, hlandþefjandi stjórnlagaþing efri-millistéttarelítunnar.
Stjórnarskrárfrumvarp samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.7.2011 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2011 | 09:41
Skelfileg þróun
Eftir að hafa grandskoðað ,,fyrir og eftir" myndirnar af henni Ágústu Ósk, aumingjanum svorna, hefi ég komist að þeirri niðurstöðu, að með áframhaldandi þróun í þá átt, sem hún hefur stefnt undanfarnar vikur, sé helst til góðum bita í hundskjaft kastað.
Miðað við ,,fyrir" myndirnar af henni, er ekki annað að sjá en hún hafi verið á góðri leið með að komast í það ástand sem vel hæfir þriflegri prestmaddömu eða myndarlegri banka- eða leikskólastýru.
En því miður hefur Ágústu Ósk þrotið örendið í þeirri viðleitni sinni að verða að holdarfari boðleg prestsfrú eða bankastýra og tekið þess í stað stefnuna á líkjast fremur fullstaðinni skreið hvað útlit og áferð varðar. Þetta er að sönnu skelfileg þróun og alls ekki til nokkurrar eftirbreytni fyrir kynsystur hennar á öllum aldri.
Þess ber þó að geta í þessu sambandi, að viðleitni karlmanna og kvenmanna í þá átt að fara í hundana er býsna fjölbreytileg og að sama skapi öfugsnúin: Á meðan sumum þykir hag sínum best borgið með því að innbyrða sem mest af alkóhóli og öðrum efnum í þeim dúr, taka aðrir þann pól í hæðina stunda vofeiflegan meinlætalifnað, byggðan á sulti og fjörefnaskoti, til að verða það sem nútíminn kallar ,,fit" og er að sögn afar eftirsóknarvert ástand, þrátt fyrir því ástandi fylgi oftar en ekki útlit sem minnir á vindþurkaðan þorsk eða trénaðan njóla í nóvembermánuði.
Fyrir og eftir myndir af Ágústu Ósk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.7.2011 | 22:10
Leynigestur og leynivopn Bjarkar í Hörpunni mun slá í gegn
Fjarska er nú dægilegt að Íslendingar ætli að fjölmenna á tómleika Bjarkar í Hörpunni í október og nóvember. Mest er þó varið í að sjálfur guðfaðir Hörpunnar, sjálfur Björgólfur Guðmundsson kaupsýslumaður, mun koma fram með Björk á öllum tómleikunum og syngja með henni kunna standarda eins og Austan kaldinn á oss blés, Kindur jarma í kofunum, Gleðibankann og Áfram kristsmenn krossmenn. Það er því eftir miklu að slægjast fyrir þá sem voru svo heppnir að næla sér í miða á tómleikana.
Við upphaf hverra tómleika mun áðurnefndur Björgólfur lesa uppúr bókinni Glæpur og Refsing eftir Fjodor Dostojevski, en sögusvið þeirrar ágætu bókar er sem kunnugt Pétursborg í Rússíá, hvar sumir bestu synir íslenku þjóðarinnar brugguðu bjór forðum daga.
Uppselt á Björk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.7.2011 kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2011 | 21:43
Nauðsynlegt að Ísland nýti sér aðstoð Europol
Sjáum nú til: "Europol hefur boðið Norðurlöndunum aðstoð við að kortleggja (og væntanlega haldleggja) öfgahópa í löndunum."
Þetta er sannarlega afar freistandi tilboð fyrir Norðurlöndin, ekki síst Ísland. Einboðið er að íslenska ríkisstjórnin nýti sér fagnandi þessa aðstoð og láti þar með loks til skarar skríða gegn þessum eina öfga-hægriflokki, sem hér starfar, og undirdeildum hans.
Það er ekki amalegt, að mega búast við því á næstu dögum, að þrautþjálfuð sérsveit Europol geri eldsnögga innrás í alla bækistöðvar íslenska öfga-hægriflokksins samtímis og hreinsi þar allt útúr dyrum.
Mest verður þó gaman þegar europólarnir taka til við að aflúsa helstu öfgapersónur öfga-hægriflokksins, því þær skepnur eru útvaðandi í alskonar auðvalds- og frjáshyggjupöddum, bæði innvortis og útvortis.
Vill skoða norræna öfgahópa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2011 | 13:06
Frygðarhlaup uppí Öskjuhlíð
Sko minn kall, að láta á reyna hvort hann sé kvensterkur í friðarhlaupi. Honum er sannarlega ekki fisjað saman. Þó held ég að útilokað sé, að blessaður fjármálaráðherrann komist klakklaust frá Valsvellinum að Ráðhúsinu. Það er nefnilega svo, að Steingrímur karl leitar ójálfrátt til hægri í gönuhlaupum sínum og því mun sennilegra að hann ljúki friðarhlaupi sínu inní Karfavogi en niður við Ráðhús.
Þó gæti ef til vill slysast svo til, að Steingrímur okkar fái augastað á hlaupadrottningunni Teglu og tækist að elta hana niðrí bæ og þaðan uppí Öskjuhlíð, ef því væri að skipta, en þá væri hlaupið góða líka orðið að frygðarhlaupi í stað friðarhlaups.
Fjármálaráðherra hleypur í þágu friðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.7.2011 | 10:24
Máría er fagurt dæmi um konu með aukna kynhvöt
Kenningin um að kynhvöt kvenna aukist með aldrinum hefur sannast margfaldlega á þeirri konu, sem í daglegu tali manna, gengur undir nafninu Máría borgargagn. Um þessar mundir er talið, að Máría borgargagn standi á hátindi ferils síns sem framúrskarandi kynvera.
Ekki þókti Máría efnilegur unglingur og alls ekki til fyrirmyndar. En að hún myndi færast í aukanna með ári hverju óraði engann fyrir. Það hefur þó verið raunin, og má segja að þessi frækna kona hafi á hverju ári slegið þau met sem hún hafði sett árið þar á undan.
Þegar Máría borgargagn gekk í sambýlingsbandalag við Indriða handreð, þann fræga nautnabelg, fór hrollur um flesta sem til þekktu. En þó keyrði um þverbak þegar þessi kynlegu hjú tóku upp vinskap við sæmdarhjónin frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson.
Og þrátt fyrir að Máría borgargang sé farin að nálgast sextugt, má berlega sjá á umsvifum hennar að kynhvöt hennar fer enn vaxandi svo ekki sér fyrir endann á.
Kynhvöt kvenna eykst með aldrinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2011 | 23:45
Misheppnuð skrif ölvaðra kvenna eru sorginni merkt
Æji, ég verð alltaf sorgmæddur þegar ég les misheppnuð spaugaraskrif drukkinna kvenna, jafnvel þó að vikomandi kvendi hafi misst 11 kílógrömm af spiki, sé löðrandi af svita og þefji samkvæmt því. Þá verður það seint talið til afreka að flækja hárlufsurnar á sér á snaga í mátunarklega í ölæði og rífa þær af hausnum.
Katrín Eyvindsdóttir lenti í svipuðu þegar hún skreið gegnum gaddavírsgirðingu í náttmyrkri eftir að hafa tekið þátt í óviðjafnanlegri jörvagleði þar sem koníjakk, hvítvín og kókaín voru á boðstólum. Að leikslokum var Karín öll klóruð um maga og lær eftir gaddavírinn og allmörgum hárum fátækari. Daginn eftir hélt hún því blákalt fram að hún hefði komist í kast við afturgöngu eða ójarðneskt villidýr á leið sinni heim.
Þá man ég eftir annarri konu, sem kvartaði sáran undan abelsínuhúð og marglyttumaga í hvert sinn sem hún var við skál. Það var leiðinleg kona.
Kófsveitt í baðfatamyndatöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2011 | 22:17
Það er margt jákvætt að gerast í þjóðlífinu
Það er afskaplega mikið í það varið, að kvikmyndaleikkonan Hayden Penettiere skuli hrósa Barrakki Ó. Bama fyrir beita sér gegn skrælingjum á Íslandi, sem hafa gerst sekir um að myrða hvali og éta þá í þokkabót í staðinn fyrir að horfa bara á þá og dást að mannviti þeirra og fegurð með kjökrandi tári.
Þaðheldégnú að Glámurogskrámur, Kolbrún Halldórs og fleiri slíkar brekkur fái unaðslegan fiðring innanum sig við að meðtaka boðskap Haydenar og sjái nú hag sínum betur borgið en áður.
Og það er fleira sem fer batnandi í þjóðlífi voru: Nú rétt í þessu var viðtal við Hönnu Birnu í sjónvarpinu, sem sýnir svo ekki verður um villst, að hún er aftur komin í sinn gamla skapvonskugír, andlitssvipurinn þrungin eilífðarfýlu og fasið allt ólundarlegt og pirringslegt.
Og ekki var hin fúllynda Hanna Birna horfin af vettvangi þegar ásjóna hrunböðulsins Einars Kr. Guðfinnssonar birtist á skjánum, bólgin af hræsni og spillingu. Og hver var boðskapur Einars Kr.? Jú, að gæta arðránshagsmuna LÍÚ-klíkunnar gegn fólkinu í landinu.
Já, það er svo sannarlega afskaplega mikið í allt þetta varið.
Ánægð með aðgerðir gegn Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.7.2011 kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.7.2011 | 20:49
Þegar dómkirkjupresturinn gaf saman frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson
Þeir láta sig ekki muna um að tala um drottinsumgjarðir, fossa og fjöll blessaðir pokaprestarnir okkar. Já, og gefa saman hjón útum allar koppagrundir af sömu hugsjón og bændur hleypa hrútum á ær á jólaföstunni.
Það var líka mikið um dýrðir þegar dómkirkjupresturinn gaf saman frú Ingveldi og Kolbein Kolbeinsson hér um árið. Áður en athöfnin hófst í Dómkirkjunni fundaði presturinn með veðandi hjónum og meðhjálparanum í skrúðhúsinu og veitti óspart messuvín, sem hann hafði endurbætt með spíritusi frá apótekaranum vini sínum. Kolbeinn Kolbeinsson, sem aldrei hefur látið letja sig til drykkju, fór slíku offari í messuvíninu að hann stóð varla í lappirnar á eftir fyrir altarinu. Í sjálfri brúðkaupsveislunni fór allt í handaskolum: Presturinn og meðhjálparinn gjörðust nærgöngulir við frú Ingveldi, en Kolbeini tókst að laumast afsíðis með Máríu borgargagni þegar þegar sambýlingur hennar, Indriði handriði, sá ekki til. Í veislulok slógust dómkirkjupresturinn og meðhjálparinn opiberlega um hylli frú Ingveldar meðan Kolbeinn Kolbeinsson svaf úr sér vímuna með buxurnar á hælunum í einhverjum afkima eftir einkar velheppnað trall með borgargagninu.
Segið þið svo að brúðkaupsveislur geti ekki verið dramatískar og stórbrotnar þegar vel er í þær lagt.
Gefin saman við Seljalandsfoss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 19
- Sl. sólarhring: 173
- Sl. viku: 1259
- Frá upphafi: 1542519
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 1112
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007