Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2020
30.11.2020 | 13:08
Elliær framsóknarsauðurinn fór hallloka fyrir hundkvikindi
Framsóknarmaðurinn Bíden, ástmögur Samfylkingarinnar, er orðinn svo hrumur, að hann hefir ekki roð við hundinum sínum, sem er mesta illyrmi. Hundurinn Kampur er mesta djöfuls villudýr, hefnigjarn og harðskeyttur og ekki fyrir örvasa gamalmenni að eiga við það kvikindi. Nú er Bíden gamli mölbrotinn eftir Kamp og mun þurfa að skjögra um með aðstoð göngugrindar þegar hann tekur við við forsetaembættinu eftir áramót.
Um ætterni hundsins Kamps er það að segja, að hann er undan úlfi í móðurætt en fjallaljóni í föðurætt, svo ekki er að furða þótt gerpið sé grimmt, ljótt og hættulegt. Bíden, verðandi bandaríkjaforseti, er aftur á móti elliær og af þeim sökum mjög svo dómgreindarsljór að jaðrar við hreinan dómgreindarbrest. Til dæmis heldur hann, karlanginn, að Kampur sé köttur, eða öllu heldur kettlingur, og því varð hann steinhissa þegar Kampur flaug á hann, hrinti honum og braut hann. Það eina sem Bíden gat lagt til málanna var þetta: - Æi, látt´ekki sona kisikis.
Fyrir nokkrum dögum síðan, þegar frændur Bídens komu í heimsókn til hans, sagði karlinn, og stóð á því fastar en fótunum, að hann hafi átt átt í kosningaslag við lóðabeg og haft frækinn sigur, - eða svo hélt hann að minnsta kosti daginn þann. Bíden bætti síðan við að lóðabelgurinn hefði verið með semmentsgrá dragtkerlingu í eftirdragi, sem áreiðanlega væri fólsk í skapi og ekki öll þar sem hún er séð. Þetta er nú garmurinn sem Bandaríkjamenn voru látnir kjósa sér fyrir forseta. Hvað Bíden tekst að dansa lengi á grafarbakkanum, elliær og örvasa sem hann er, er öllum hulið, nema spákonum, en margir telja þó að hann verði dottinn ofan í fyrir næstu páska og hann muni alls ekki upp rísa eins og Frelsarinn gerði, enda er Bíden aunginn asskotans frelsari. Hann er bara eldgamall framsóknarsauður og er vist voða vinstrisinnaður í augum samfylkingamanna og annarra krataeðlisfáraðlinga. Það held ég nú.
Slasaðist er hann lék við hundinn sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.12.2020 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2020 | 20:37
Bíðum óþolinmóð eftir að garparnir berjist eins og heljarmennum sæmir og falli báðir
Nú eru skrifuð bréfin og menn bornir brigslyrðum meðan aðalleikendurnir berast í átt að banaspjótum. Allt mun koma fyrir ekki, örlögin hafa nú þegar tekið ákvörðun, og öldungarnir munu falla, hvor fyrir öðrum. Umfram allt hvílir sú skylda á hinum bardagafúsu körlum, að þeir berjist eins og heljarmennum sæmir og falla báðir. Þá væri það eins og þegar skipstjórinn fleygði kokknum út af sjoppunni hér um árið, en kokkurinn var fullur við það tækifæri og var með múður og pex og neitaði að mæta til skips. Það sakar ekki að geta þess, við þetta einstæða tækifæri, að geta þess að kokkurinn var ölvaður af kogaraspritti, sem var heldur í ætt við bönvað handsprittið sem nú til dags er ausið á bæði borð í hreinlætisskyni.
En andskoti væri nú gaman ef Ríkisútvarpið sæi sér fært að sýna beint í sjónvarpi þegar griðungarnir Kári og Þórólfur renna saman. Og að þeir skuli bera þessi nöfn okkar ástsælustu fornkappa úr Íslendingasögunum, þeirra Kára Sölmundarsonar, Þórólfs Skallagrímssonar og Þórólfs Bægifótar, er svo upplífgandi að oss svellur móður af tilhlökkun að sjá þá brytja hvurn annan niður eins og spægipylsur. Og þegar þeir eru fallnir, þá munum vér hugsa í þökk og lofa Drotinn fyrir að þeir urðu þó ekki kóvíð nítjánda að bráð, nema ef til vill í óbeinum skilningi. En auðvitað tökum vér ekkert mark á óbeinu kjaftæði.
Þegar Kári og Þórólfur veða horfnir til ása og fallinna garpa fornaldar í Valhöllu og Víðir úr leik fyrir kóvíðnum nítjánda, verður grey kerlíngin hún Alma, sem heitir í þokkabót Múúller, ein eftir. En úti bíða úrtöluseggir, hagvaxtarþrælar og atvinnulífs, eftir að hafa höndur í hári Ölmu og setja hana úr leik. Þá frú Múúller verður líka úr leik þá verður leiðin fyrst greið fyrir frelsið, en því mun náttúrlega kóvíðurinn nítjándi fagna mest af öllum og hafa á leifturhraða endaskipti á íslensku þjóðinni og skilja hana eftir eins og bólusóttin gjörði, sællar minninga á átjándu öld.
Kári sendir Þórólfi opið bréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2020 | 20:51
Eru Akureyringar virkilega farnir að veiða sér fálka í jólamatinn?
Svo Akureyringarnir eru þá aftur farnir að leggjast á fálkastofninn. Það er sérkennilegur matarsmekkur. Vitað er að rjúpan er uppáhaldsmálsverður fálkans og til er það mannfólk á Íslandi sem leggur sér rjúpukjöt til munns. Getur verið, miðað við þá rjúpnaþurrð á fjöllum, sem sagt er að sé algerð, ekki síst á Norðurlandi, að örvæntingarfullur Akureyringur hafi gripið til þess óyndisúrræðis að jaga sér fálka til að hafa í jólamatinn á aðfangadagskvöld? Í ljósi þess að fálkinn lifir á rjúpum þá hefir Akureyringnum ef til vill flogið í hug að gott rjúpnabragð sé af fálkakjöti. Ugglaust er það skýringin.
Hinum grunnhyggna veiðimanni í höfuðstað Norðurlands hefir líklega þókt liggja best við að flæma fálkana að andapollinum og taka þá þar af lífi. Nú veit aunginn hvað maðurinn hefir veitt mikið af fálkum með þessari aðferð, en varlega áætlað eru þeir varla færri en fimmtán til tuttugu, þannig að þetta verða stór kjötjól hjá fjölskyldu hans. Það er ætíð gleðilegt þegar menn deyja ekki ráðalausir og ná að sækja það er þá vanhagar um.
En vestur á fjörðu átu þeir einusinni hrafnakjöt á jólunum, því fannfergi var með þeim hætti að ófært var í kaupstað til að ná sér í aðföng. Á Þolláksmessu rofaði svo til í veðri, að bændur gátu litið kringum sig eftir bráð til hátíðanna. Þeir drógu því fram byssur sínar, riffla og tvíhleypur og einn kom með framhlaðning, sem afi hans hafði átt á öndverðri nítjándu öld. En því miður voru aungvir fuglar nær aðrir en hrafnarnir og þá skutu bændurnir, reyttu og steiktu ofni á aðfangadag. Öllum í sveitinni bar saman um að þetta hefði verið sú alversta jólasteik sem þeir mundu til. Og þó að ketið af hröfnunum hafi verið bragðvont, seigt undir tönn og ógeðslegt, þá hafi sósan af illfyglunum verið enn verri. Allir fengu niðurgang af hrafnakrásunum og það var barist um kamarsetuna á bæjunum það aðfangadagskvöld. Á jóladag var svo soðinn saltaður steinbítur og saltkeila og drukkið með því forláta landabrugg; og enn fékk fólkið í magann, svæsnar innantökur með hörðum verkjum og óstöðvandi skitu. Þegar aftur hlánaði og fært varð til byggða voru allir í sveitinni orðnir heilsulausir. Næsta haust kom í ljós á manntalsþingi, að hreppsbúum hafði fækkað um helming; helmingurinn hokraði á einhverjum af bæjunum, en hinn helmingurinn var kominn út í garð.
Annar dauður fálki fannst á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2020 | 12:15
Gríðarlegt afrek unnið - og vex nú frami unglingstelpunnar sem aldregi fyrr
Þá hefir Áslaugu Örnu tekist að vinna það afrek að fá samþykkt lög á verkfall; hún gjörflengdi soleiðis verkfallspaurana eins og ókyttadrengi að þeir munu fá íllt í afturendann ef þeim verður það á að hugsa um verkfall aftur. En það er ekki á hvurjum degi unglingstelpu auðnast að ná þetta langt í tiltektum. Hinsvegar erum vér ekki jafnviss um, hvort tilgreint afrek teljist gott og til fyrirmyndar eða til endema. Það er sagt að dómsmálaráðherra hafi klappað Stjörnusýslumanninum í horninu á kollinn eins og undirgefnum flækingshundi þegar hún kom aftur í ráðuneytið eftir að hafa fengið uppáskrift ríkisstjórnarinnar fyrir afreki sínu.
Svo er annað í sambandi við landhelgisþyrlurnar og það hin einfalda staðreynd, að ef þyrlufólkið er í verkfalli eru hverfandi líkur á að Áslaug Arna geti það til að skutla sér bæjarleið ef henni býður svo við að horfa. Af þessari augljósu ástæðu eru lög telpunnar á verkfallið meir en skiljanleg. Já. Enda brosir hún gleiðilega í dag og hugsar sér gott til glóðarinnar.
Já, kæru vinir, frami Áslaugar Örnu vex hratt þessa dagana og aðeins tímaspursmál hvunær hún ryður þeim arma skálki, Bjarnaben, til hliðar og tekur hæsta sess Flokksins undir sinn eigin gerðarlega rass. Og soleiðis frama fylgir meiri humar og meira hvítvín ásamt gríðarlegum grillveislum á kvöldin. Og fyrst grillveislu á kvöldin eru til tals, þá er vert að minnast þess þegar meginpáfagaukur nýfrjálshyggjunnar hér á landi fór offari við kvöldgrillið og át ofan í sig þau kynstur af humri, hundaskönkum og rauðu og hvítu að hann gerði í buxurnar á staðnum og allt fór í handaskolum. Það endaði með því að garmarnir voru skornir og klipptir utan af nýfrjálshyggjuskarfinum og óhreinindin sprautuð af honum með garðslöngunni. Nú pestin af endeminu var slík meðan verið var að verka það með slöngunni og sköfu, að fólk í næstu húsum vaknaði upp til að gubba. Svo vöfðu viðstaddir í grillveislunni nýfrjálshyggjustrípalinginn reyfum og lögðu hann við hliðina á heimilishundinum, sem fitjaði upp á trýnið og hafði sig á brott.
Lög sett á verkfall flugvirkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2020 | 23:13
Fólk af betri borgarastétt ræddi Ara Trausta og ,,þingferil" hans
Upp á síðkastið hefir ákaflega lítið fréttnæmt gjörst í lífi Máría Borgargagns og Indriða Handreðs og að sama skapi fátt um fína drætti hjá þeim hjónum. Þau hafa að mestu haldið til heima hjá sér, auk þess að skreppa út að vinna á daginn til að græða pénínga; en þau eru fólk sem kunna best við að græða á daginn og grilla á kvöldin. Seinnipart dags í síðustu viku hittust þeir fyrir tilviljun á götu, þeir Indriði Handreður og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður og tóku tal saman.
Þegar þeir þeir Handreður höfðu hjalað litla stund saman voru þeir alt í einu komnir inn í vínbúðina og búnir að kaupa sér nokkuð ríflega hressingu í alkóhóli og var auðséð að þar fóru menn sem ekki voru vanir að tjalda til einnar nætur. Svo stikluðu þeir upp í Öskjuhlíð, því veður var nokkuð sæmilegt, og fundu sér friðsælan stað. Þar fengu þeir sér í staupinu og síðan leyfðu þeir sér einn fínan drátt, og er sá dráttur hinn eini sem Indriða Handreði hefir áskotnast í margar herrans vikur. Á meðan þeir félagar slöguðu heldur illa gyrtir niður Öskjuhlíðina spjölluðu þeir um Ara Trausta Guðmundsson þingmann og kættust þeir ákaflega við það umræðuefni.
Þegar Kolbeinn skjögraði loks heim til sín var komin hánótt og hann illa til reika. Hann mætti konu sinni, frú Ingveldi, strax í forstofunni, og áður en hún fengi ráðrúm til að slá sinn heittelskaða í rot fór hann aftur að tala um Ara Trausta. Frú Ingveldur varð gjörsamlega hlessa að heyra eiginmann sinn nefna nafn annarrar eins liðleskju upp í opið geðið á sér og klukkan farin að ganga fjögur að nóttu, að hún lét höndina síga og ákvað að fresta barsmíðum lítið eitt. Og nú tilkynnti Kolbeinn henni, að hann Ari Trausti væri búinn að ákveða sig í að fara ekki í framboð meir til Alþingis. - Það er þá bættur skaðinn, urraði frú Ingveldur á móti, - annað eins fúasprek og landeyðu hefi ég heldur ekki vitað á þingi en þann kálf. Nú klóraði frú Ingveldur sér þóttafull í náranum með löngutöng þeirrar handar er hún hafði upphaflega ætlað sér að reka Kolbeini á trantinn með. Svo hélt hún áfram: - Hafi ég nokkru sinni vitað fyrirbæri, þá er það þessi Ari Steinbítskjaftur, eða hvað þeir kalla hann. Mér er sagt að hann sé enn litlausara vandræðaskáld en þessi McCarthy Píroti og hún Heiða þarna í borgarstjórninni. Og er þá mikið sagt! orgaði frú Ingveldur framan í mann sinn, en hann lyppaðist niður á stól, samfallinn eins og slægður þorskur, og fór að bisa við að hneppa frá sér buxunum, sem reyndar voru illa, eða alveg, óhnepptar þegar til kom.
Ari Trausti hættir á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2020 | 20:53
Hún kisa mín gamla var stólpagripur og gleypti fleiri fugla og mýs en tölu varð á komið
Það þarf ekki frekar vitanna við: Kattarandskotinn atarna hefir gleypt músina áður en henni tókst að hlaupa inn á skrifstofuna. Það er auðséð á kettinum, vambmikill sem hann er, að hann er nýbúinn að gleypa fleiri en eina mús og fleiri en tvær; ég mundi giska á tylft músa í belgnum á helvískum.
Svo er það skelmissvipurinn á dýrinu, hann er blátt áfram uggvænlegur og glampinn í augunum er sannur morðglampi, - þekki ég þann glampa rétt, sem ég þekki. Ég man kött, glæsilega læðu sem ekki var allra, sem frá vori og fram á haust á hvurju ári, jagaði fugla af slíkri elju, að á hvurjum morgni var þvottahúsgólfið þakið fiðri. Ljóst var að kisa gat étið nokkra farfugla yfir nóttina, en var samt alltaf jafn liðug og rennileg. Spóar, stelkar, hrossagaukar, þúfutittlingar, kríur, hettumávar, óðinshanar og andarungar, allir hurfu þeir ljúft ofan í gin læðunnar okkar. Á haustin, þá farfuglarnir, sem sluppu undan kisu gömlu, voru flúnir til annarra landa og heimsálfa, hófst músavertíðin. Og það segi ég satt og get ekki sannara orð talað, en að þá fór kisa hamförum og veiddi og át þvílíkt magn músa, að sá ágæti músastofn hefir ekki enn borið sitt barr eftir þau strandhögg. Eitt sinn, síðsumars, náði hún að fella sjö næstum fleyga stokkandarunga í einum rykk; hún komst í veg fyrir þá þegar andamamma hugðist fara með hjörð sína út á vatn, en var svo seinheppin að leiðin lá einmitt um hlaðið á bænum.
Já, hún kisa gamla var forkur til verka, sumir segja hún hafi verið morðóð, aðrir að hún hafi verið óseðjandi og enn aðrir að hún hafi verið sælkeri í mat og sókt í fjölbreytta fæðu. Minnst fjórum sinnum jagaði hún fullorðna hrafna, en það er vandi að veiða þann fugl. Mér er minnisstætt þegar hún kom á miklum hraða innum þvottahússgluggann með gargandi hrafn í kjaftinum. Á þvottahúsgólfinu reyndi krummi að berjast á móti, en allt kom fyrir ekki, og kisa lógaði þeim svarta og át hann þar til einungis vængirnir og goggurinn voru eftir. En það var lengi vond lykt út úr kettinum í kjölfar þeirrar máltíðar. Minka og melrakka, sem nálguðust bæinn, drap kisa miskunnarlaust; ennfremur krækti hún sér í silunga úr gilinu á fögrum sólskinsdögum. Já, hún kunni sko að gleypa mýs og fugla hún kisa mín gamla, enda var hún stólpagripur, og fiskmeti þókti henni sælgæti. Löngu síðar réði þessi annálaði veiðiköttur sig til hennar Grýlu, móður jólasveinanna, í embætti jólakattar og eru nokkrar harðla óþægilegar sögur, sem ekki verða sagðar nú, til veiðum kisu eftir það.
Dularfulla músahvarfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2020 | 18:09
Þá eru þeir allir fallnir, félagarnir, og farnir til Hymmna
Þá eru þeir allir fallnir, hinir miklu meistarar í suðvestrinu, þeir félagi Che, félagi Húgó, félagi Fídel og nú félagi Díegó Armandó, allir fyrrum fráir á velli og mestir afreksmenn í þeirra heimshluta. Ekki er að efa að þeir félagi Fídel og félagi Húgó og félagi Che hafa teki vel á móti félaga Díegói Armandó á Hymmnum Hátt og vísast sitja þeir nú til vinstri handar Guðs Almáttugs og ræða hvurnig þeir geti sem best stutt byltinguna í Suðuramríku og hinu Karabíska hafi.
Að vísu er vandkvæðum bundið að koma skilaboðum og stuðningi frá Hymmnum niður til Jarðarinnar; til þess þarf einstaka sérfræðikunnáttu og byltingaranda, því Jarðarbúar eru heimskir, lýgnir og ágjarnir, en þessháttar eðlislæg villa hefir löngum sett strik í reikning Hins Mikla Alheimsanda og viðleitni hans til að gjöra þursana á jörðinni að háleitum vitsmunaverum. Að vísu fara verstu úrþvættin og glæpahundarnir til langvarandi vistar í Helvíti eftir dauðann og sleppa þaðan ekki, því þókt æðstaráð í Helvíti, Djöfullinn Sjálfur, sé slæmur þá má treysta því að hann lætur ekki af hendi þá óþokka sem honum falla í skaut.
En innblásnir guðsandar á borð við félagana Che, Húgó, Fídel og Díegó Armandó láta deigan aldregi síga, eða gefa byltingarstarfann frá sér, þókt þeir hafi tekið sér ferð á höndur yfrum móðuna miklu. Þeir munu berjast til þrautar, þaðan frá Hymmnum Hátt, að blása sósíalískri byltingarhugsjón með lagni í brjóst suðuramrískrar alþýðu. Og um síður mun erfiði þeirra fjórmenninganna bera ávöxt þegar rauði fáninn blaktir stoltur yfir gjörvallri Amríku og pótentátar af sömu tegund og Trump og Bíden verða allir horfnir út í hafsauga, eða farnir í vist hjá Djöfli karlinum í Helvíti.
Maradona látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún er kræf kérlíng og hraust hún Áslaug Arna og frekar skulu einhverjir liggja óbættir hjá garði en hún æði út í þá ofboðslegu reginheimsku að hækka kaupið hjá einhverjum ekkisins frekum þyrlukörlum, sem eru, eins og dæmin sanna, ekkert nema péníngagræðgin. Áslaug Arna er auðvitað ekki öfundsverð fyrir að þurfa að eiga við og umbera kaupgjaldsóðar frekjur og villumenn allan ársins hring, um það erum vér öll sammála. Og nú er hún orðin eins og barnapía í dómsmálaráðuneytinu yfir Stjörnusýslumanninum Stones, sem hún tók að sér til sérverkefnis í ráðuneytinu.
Já, þau eru snautleg örlögin Stjörnusýslumannsins Stones. Hjá kirkjunni eru viðsjárverðir og kyndugir klerkar leiddir til byskubbsstofu og hafðir þar einir og sér í skammarkrók embættisins þar til þeir verða úr heimi hallir eða fara á eftirlaun. Það er víst mikil raun fyrir bysskubb að hafa þessháttar dela og ólátabelgi hjá sér í horninu. Á sama hátt tekur Áslaug Arna ákaflega út fyrir, að hafa Stjörnusýslumanninn alla daga spriklandi í gemlingastíunni í dómsmálaráðuneytinu, því karlskröggurinn er mikill á lofti, en það er sem hann hækki um tvo metra þegar hann er kominn í lúðrasveitarbúninginn sinn og setja upp sýslumannskórónuna og gnæfir þá eins og ókleyfur fjallgarður yfir blessaðan ráðherranna.
Auðvitað vonum vér öll að dómsmálaráðherra gangi allt í haginn í viðureign sinni við bölvaða flugdólgana, sem eru að reyna að vaða yfrum hana á forugum rosabullum. Frú Ingveldur, og eignmaður hennar, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, hafa í morgun gefið Áslaugu Örnu skærgrænt ljós á leggja flugdólgana að velli með snarpri lagasetningu. Einnig hafa þau hjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn, reynt af fremsta megni að stappa stálinu í Áslaugu Örnu og espa hana til að taka helvíska dólgana aungvum vettlingatökum, meðal annars hafa hjónin hvatt ráðherra til, ef allt um þrýtur, að siga Stjörnusýslumanninum Stones á flugdólgana og bíta þá svo afgerandi í bakhlutann að þeir hlaupi í einu rykskýi upp í þyrlurnar og fljúgi þegar í stað út í buskann til að bjarga veiku fólki og rjúpnaskyttum. Og hvur veit nema Áslaug Arna geti skroppið með þeim í dulitla flugferð, sér til afþreyingar og afslöppunar, í því hefir hún reynsluna og æfinguna.
Ekki hægt að koma í veg fyrir þyrluleysið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2020 | 21:43
Freyjólfur kaffibollaberi út úr myndinni
Hann hefir áhuga á að taka við landsliðinu. Auðvitað hefir pjakkurinn áhuga. En því miður er sá áhugi ekki gagnkvæmur. Aldeilis ekki. Þeir hjá KSÍ vilja alvöruþjálfara en ekki drengstaula á fermingabuxunum; formaðurinn segir, að hugsanlega geti Freysarinn fengið jobb við að þvo búninga og sokkaplögg landsliðsmanna eftir leiki, þurrka þá og strauja. Meira fær hann heldur ekki. Alls ekki. Þeir vilja alltso ekki vikadreng, sem starfaði það fyrir KSÍ að færa landsliðsþjálfaranum kaffi og tóbakslús á æfingum, eða fá Eiríki Hamri koppinn þegar honum þóknaðist að pissa.
En svona er lífið, tóm vonbrigði, vesöld og óréttlæti, á því hefir Freyjarinn fengið að kenna á svo um munar. Jú, hann fékk að þjálfa telpurnar dulítið á sínum tíma og fékk að launum háðsglósur og hlátrasköll. Stelpurnar voru allaf að grínast að honum, ekki síst þegar heyrði ekki til. Svo stömpuðu telpurnar honum og hann starf hjá KSÍ sem kaffibollaberi og hélt þeirri vinnu þar til hann missti í þriðja sinn úr bollanum.
En hvað mun KSÍ að gjöra? Það er engan veginn víst þeir gjöri nokkuð. Hvurn fjandann sjálfan eiga þeir að gera með það að ráða þjálfara í þessu árferði þegar drepsóttin stendur sem hæst og mannfallið er í slíkum veldisvexti að við liggur að heilu þjóðirnar þurrkist út. Þá væri betur viðeigandi að KSÍ mundi ráða sér útfararstjóra til að syngja sálumessu yfir þessu ekkisinns KSÍ og sökkva að svo búnu hræinu í jörð. Af þessu öllu má leiða getu að því, að útilokað er að Freyjólfur kaffiberi verði landsliðsþjálfari á næstunni.
Hefur áhuga á að taka við landsliðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2020 | 16:30
Blessuð gamla konan
Æ er hún orðin amma, blessuð gamla konan. Svona er þetta víst og aungvum svo sem um að kenna. Nei nei. Næsta skrefið er að komast inn á dvalarheimili aldraðra fljótlega eftir áramót og ganga í barndóm. Það er ægileg skelfing að plampa gegnum lífið án þess að hafa gert sér grein fyrir hvílíkt skaðræði Sjálfstæðisflokkurinn er og hafa farið á mis við að gera sér grein fyrir hvað hann er og hefir verið í raun og veru.
Þegar kona verður amma er hún orðin svo hrum að hún er vart í húsum hæf. Sumar verða ærar af elli og taka upp grimmdarlegt augnaráð og láta höndur skipta til að hafa fram vilja sinn. Ein kérlíngin lét ekki við sitja að berja dóttur sína og taka af henni eiginmann hennar til eigin brúks; dóttirin og tengdasonurinn voru sem sé nýbúin að gjöra þá eld-gömlu að ömmu þegar ógæfan skall á. Það er þannig, elsku vinir mínir, að viðlíka dæmi eru mýmörg og sum þeirra hreint ótrúlega og óhugnanlega svæsin.
Svo svo komu þeir með bandvitlausa og nýgengna ömmu á hælið sem geymir tryllt og ágjörn gamalmenni. Ekki var konugarmurinn fyrr komin inn á hælið en hún náði konunni af forstöðumanninum. Þetta var því sorglegra sem forstöðumaðurinn hafði lagt harðar að sér við að ná sér í eiginkvinnu; hann hafði vaðið eld og brennistein og verið lúlaminn af andstyggilegum eiginmanni konunnar áður en honum lánaðist að lokka hana til sín. Svo kom þessi bandvitlausa amma í lögreglufylgd á hælið og tekur fyrirvaralaust konuna af forstöðumanninum! Er virkilega aunginn andskotans regla á neinu lengur og aunginn agi?
Ásdís Halla orðin amma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 23
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 1495
- Frá upphafi: 1542365
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 1317
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007