Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2020
5.8.2020 | 13:31
Ófrægt fólk sagt frægt og birtar af þeim kjánalegar myndir.
Síðan hvunær eru þeir Íslendingar frægir sem tilteknir eru í fréttinni: ,,Frægir Íslendingar ferðast með stíl"? Aldregi hefi ég heyrt minnst á nokkurn af þessu fólki og fylgist ég þó allvel með fréttum og soleiðis. Með sílíkónvarir og brjóst og vörurnar fram í dulítinn stút liggja þessir sérkennilegu ferðalangar nær berrassaðir úti á túni og þykjast vera að ferðast; að minnsta kosti er verið að reyna telja okkur trú um að þessar strípikindur séu á ferðalagi. Og meðal annarra orða: ferðuðust þessi frægðarmenni með stíl í rassinum? Ef svo var: hvurnig stíl? stíl í stílabók?
Þegar frú Ingveldur og Máría Borgargagn ferðast ásamt fylginautum sínum eru þær ætíð siðlega klæddar og haga sér í hvívetna til fyrirmyndar. Og þó þau hafi endrum og sinnum í staupinu á ferðum sínum um sveitir landsins láta þau ekki taka af sér hálfgildings klámmyndir inni á bæjunum eða úti á hlaði með bændum og búaliði. Þó urðu dálítil vandræði austur í Rangárvallasýslu, er þau frú Ingveldur voru þar á ferð, þegar Brynjar Vondalykt lét sig hafa það að gera sér ósiðlega dælt við eina kúna á bænum þar sem þau voru stödd. Bóndakurfurinn í kotinu snöggreiddist er hann sá á aðfarir Vondulyktarinnar og hljóp af stað með heyhvísl á lofti og hugðist reka þennan óknyttaskarf í gegn með henni.Á margrómuðum ferðum sínum um landið hafa frú Ingveldur og Máría Borgargagn lagt bændakonunum lið í eldhúsinu, því þær eru laghentar og duglegar. Í leiðinni hafa þær spillt húsfreyjunum með gálausu tali þannig að sumar þeirra hafa ekki fundið frið í sálu sinni langan tíma á eftir. Eina af þessum freyjum gekk svo langt eftir að hafa hlýtt á mál frú Ingveldar og Borgargagnsins að drýja hór með fullum slordána, nýkomum af vertíð, í einni fjárhúsjötunni á bænum. Skömmu síðar andaðist bóndi hennar úr ókennilegum krankleik og var talið fullvíst að kérlíngarskrattinn hefði byrlað honum eitur á svívirðilegan hátt, en það var aldrei gert neitt úr því.
![]() |
Frægir Íslendingar ferðast með stíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.8.2020 | 21:44
Þeir potuðu með löngutöng í rassinn ...
Það má nú með sanni segja að erfitt sé að halda tveggja métra reglunni þegar ferðafélagarnir eru sí og að að pota með löngutöng í rassinn á hvurjum öðrum meðan þeir bíða eftir að komast út í flugvél. Þeir elta meira að segja suma inn á klosétt með löngutöngina á lofti, helvítis melirnir.
Svo var það Kolbeinn auminginn. Hann sat í flugvél sem var að fljúga á milli landa. Þetta var leiðinlegt flug og þreytandi svo upp úr aungvu varð honum á í ráðaleysinu að smokra sinni löngutöng hérum bil í bláboruna á stífmálaðri flugfreyju sem þeyttist framhjá honum í vélinni með frekjulegum vængjaslætti. Nú, freyjan snarstoppaði og sló illyrmislega til Kolbeins hæfði hann milli augnanna. Þegar Kolbeinn komst til meðvitundar aftur var allt á tjá og tundri í flugvélinni. Frú Ingveldi hafði runnið blóðið til skyldunnar við að horfa upp á eiginmann sinn rotaðan í sætinu af glyðrulegri pjattrófu í flugfreyjubúningi, og Máría Borgargagn lét sitt ekki eftir liggja og hélt til orrustu af vaskleik og hugprýði.
Í þessari flugferð lögðu þær frú Ingveldur tvær flugfreyjur og tvo geldingslega flugþjóna að velli með glæsibrag og þegar flugstjórinn kom æðandi á vettvang notaði Kolbeinn tækifærið, ný kominn úr rotinu, og boraði löngu töng millum þjóhnappa stjórans sem varð svo um, að hann steyptist froðufellandi í gólfið og skreið síðan kveinandi fram í stjórnklefann og tilkynnti hásri og stynjandi röddu um uppreisn um borð og krafist þess að fá að lenda á næsta tagltækum flugvelli. Það er stundum eitt og annað spaugilegt, gét ég sagt ukkur, sem gjörist í flugferðum.
![]() |
Erfitt að halda tveggja metra reglu í Leifsstöð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2020 | 20:40
Hún hefir lengi haft sérstakar áhyggjur af honum
Gamla Framsóknarmaddaman er lengi búin að hafa áhyggjur að ráðsmanni sínum í Framsóknarfjósinu, þessum Sigurði Inga sem sú gamla hefir aldrei þekkt haus né sporð á. Þegar hún sá og heyrði manninn í fyrsta skipti spurði hún griðkonu sína hvort þetta manntetur væri ljósrit af Halldóri Ásgrímssyni. Og marga nótt hefir gamla konan legið andvaka og velt fyrir sér hvurt erindi Sigurðar Inga væri í Framsóknarfjósið og í politíkina. Það eina sem gamla Maddaman hefir haft upp úr hugleiðingum sínum um Sigurð Inga er að það eina sem vakað hafi fyrir manninum hafi verið að ráða vinkonu sína og starfssystur sem Vegamálastjóra, þar með væru afrek ráðsmannsins með öllu upp talin.
Að vísu var Sigurður Ingi neyddur upp á Framsóknarmaddömuna; daginn sem hún réði karlskepnuna hafði hún farið offari í ákavítinu og samþykkt hann í ölæði og svörtu minnisleysi. Þegar kérlíngin rankaði við sér, þremur eða fjórum dögum síðar, komst hún að því að nýr ráðsmaður var kominn að Framsóknarfjósinu, en Sigmund litla Davíð höfðu eineltishrottar flæmt grátandi burt úr Fjósinu. Skömmu síðar tók gamla Framsóknarmaddaman Miðflokk Sigmundar upp á sinn eigin eyk á laun og bjó honum aðstöðu í forarvilpuhúsinu, sem er stokkur yfir svæsnasta óþverrann sem lekur af Fjóshaugnum.Nú er svo komið, að Framsóknarmaddömunni er skapi næst að dreka sig ofurölvi í ákavíti, taka öxina ofan af veggnum og stökkva Sigurði Inga á braut, því gömlu konunni þykir sem Framsóknarfjósið hafi farið halloka í tíð núverandi ráðsmanns og hann hafi gjört æru Framsóknar til skammar með durgslegu sleifarlagi og þumalputtavinnubrögðum. Já, sú gamla hefir hugsað sér, að eftir að hafa rekið Sigurð Inga með reiddri exi út fyrir garð, að leiða Sigmund og hans ágætu klausturbræður og systur út úr forarvilpuhúsinu og inn í Fjósið og fá þeim þar góða bása með rennisléttum flór fyrir aftan. Og Litla Gula Hænan skal í skammarkrókinn og fá að þola þar píslir og kröm.
![]() |
Undirbúa takmörk á ferðamannafjölda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2020 | 13:38
Hneykslisverk fullra manna og kvenna ætíð jafn áhugaverð
Mikið óskaplega er gaman að lesa um hneykslisverk fullra manna og kvenna í fréttamiðlunum. Ég veit um mannaumingja sem bókstaflega rær í skininu af hreinni og tærri Þórðargleði þegar krassandi skammalegar sögur af ölvuðu fólki reka á fjörur hans. Hinsvegar vantar alltaf tilfinnanlega nöfn og heimilisföng raftanna sem skandalíséruðu; það ætti að vera skylda fjölmiðla og lögreglu að upplýsa almenning um nöfn fólks sem kemst í fréttir út af áfengiseitrun og ósæmilegu framferði henni tengdri.
Sjáið nú kvinnuna sem sagðist hafa læst sig inni á klósetti og ekki komist út. Það er eitthvað mjök so grunsamlegt við það mál allt. Getur ekki verið að kvinnan hafi skakklappast blindfull heim til sín, jafnvel skríðandi, ekki séð til að stinga lyklinum í skráargatið sökum ofneyslu áfengis og troðið sjálfri sér inn um klósettgluggann í staðinn og komið þar að læstum salernisdyrum? Jú, það gæti bara vel verið. Og hvað með ljóta karlinn í austurborginni sem sparkaði í lögregluprjóninn sem þóktist ætla að aðstoða hann? Getur ekki vel hugsast að hjálpsami lögregluprjónninn hafi líka verið þéttkenndur og ætlað að berja ljóta karlinn en sá ljóti hafi orðið fyrri til? Allt um það, þá var ljóti karlinn færður á stöðina og í höndur Hálfdáns Varðstjóra sem kenndi honum lífsreglunar.
Eitt sinn villtist frú Ingveldur í kafaldsbyl og kófi út á Seltjarnarnes, en þar vippaði hún sér innum klósettglugga á fallegu einbýlishúsi í eigu góðs fólks af Nesinu. Þannig háttið til þar á taðhúsinu að dyrnar voru læstar, en frú Ingveldur sparkaði þeim upp á augabragði og vóð síðan af hendingu inn í svefnhús hjónanna á bænum og þar hafði nú heldur verið galsagangur um nóttina. En þá frú Ingveldi bar þar að garði var svefnherbergisumsvifum hjónanna lokið og lágu þau berrössuð þvers og kruss í bælinu ásamt Kolbeini Kolbeinssyni, eiginmanni frú Ingveldar, í einkar athyglisverðri stellingu og línulegri afstöðu til hinna brennivínsdauðu hjóna. Síðar sagði frú Ingveldur um þennan atburð, að skjaldan hefði hún séð jafn andstyggilega afkáraleg hórdómssvín í einni sæng, enda voru bæði hjónin og Kolbeinn lengi að ná sér eftir meðferðina sem frú Ingveldur veitti þeim þar á staðnum, en sú meðferð var ekki fyrir venjulega aumingja.
![]() |
Læstist inni á baðherbergi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.8.2020 | 17:34
Sá armi þrjótur í handsprittsvímu
Rafturinn sem vóð um víðan völl í kóvíð- og handspíritusvímu í gærkvöldi var vitanleg góðvinur okkar allra, Óli Apaköttur, fóstursonur frú Ingveldar, þeirrar mikilvirku sæmdarkonu og siðferðisfræðings. Jú, vissulega var búið að mæla Óla með gamaldags rassgatsmæli sem sýndi verulegt magn kóvíðs nítjánda í iðrum hans. Hann var þegar í stað færður í einangrun en féll jafnhraðann í handsprittið, ásamt með konu nokkurri og fjórum börnum.
Þegar Hálfdán Varðstjóri kom á sína vakt í morgun varð það hans fyrsta verk að athuga málið í þeim klefa sem honum var sagt að Óli hefði verið vistaður í kvöldið áður. Það var ljót sjón sem blasti við Varðstjóranum þá dýflissan var opnuð því ekki var með öllu runnið af fanganum, hann hortugur í tali og nakinn frá beltisstað og búinn að útsvína allan fangaklefann. Það varð því úr að Hálfdán Varðstjóri klæddi sig sóttvarnarbúninginn sinn og veitti bölvuðum Apakettinum ærlega ráðningu.
Svo bjuggu lögregluprjónar Hálfdáns um skepnuna í sóttvarnarkassa, nokkurskonar lokað hundabúr, og óku honum heim. Nú er lögregluvörður undir stjórn Hálfdáns Varðstjóra við hús það er Óli Apaköttur dvelur í. Hafa verðirnir nú þegar tilkynnt, að um leið og þeir höfðu hvolft þrælnum inn á forstofugólf hafi samstundis hafist glórulaus handsprittsdrykkja á þessu undarlega heimili. Það er því nokkuð ljóst að ráðning Hálfdáns Varðstjóra hefir ekki verið nægilega ærleg. Nú síðast glumdi við hávær samsöngur Óla Apakattar og annarra þeirra er staddir eru innandyra, ,,Látið vella á heiðum hveri, heyrið álftir syngja í veri," upp aftur og aftur, þannig að verðirnir á útidyratröppunum eru við það að ærast.
![]() |
Mikill viðbúnaður vegna rofs á einangrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.8.2020 | 15:20
Nú dugar ekki að halda, Þórólfur minn bægifótur
Það er ekki nóg að halda, Þórólfur minn bægifótur, þú og Björn Ingi Viljanum verðið að vita. Sú er nú krafan í dag laxmaður. Öll þjóðin, ja að undanteknum nokkrum péníngapervertum, ferðavitfirringu og ríkisstjórninni, var einörð á móti því að fara að vilja þessara fáu, en samt voru það við, þegar upp var staðið, sem réðu ferðinni. Nú sitjum við undir látlausri kóðvíð nítjánda dreifingu eins og bjargarlausir sauðir í fjárrétt.
Svo sem áður hefir fram komið, hefir frú Ingveldur og hennar fólk haft afskaplega hægt um sig að undanförnu. Til að mynda fengu Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður sína skammta af kóvíð nítjánda og við sjálft lá að þeir yrðu úr heimi hallir. Vitanlega hefði það verið hinn mesti mannskaði ef við hefðum mátt horfa á eftir slíkum gulldrengjum fyrir ætternisstapa langt fyrir aldur fram.
Þegar Vonalyktin lá í kóvíðinu skipaði frú Ingveldur svo fyrir að hann gerði sín stykki í fötu og var síðan borið frá honum á og sturtað í sjóinn úti í Effersey. Síðan hefur ekki orðið lífs vart í margra mína radíus frá þeim stað er affermingin fór fram. Fyrst í stað rak talsvert af dauðum fiski á við Grandann og inn um öll Sund, sem og á strendur Engeyjar og Viðeyjar. Fengu Engeyingar þar fáein skippund í sinn hlut. Meira að segja hrokkelsin lögðu á flótta og óþverrafuglar á borð við sílamáfa misstu vitið eftir að bragðað í þeim fiskum er dóu af að hafa lent í seyru Vondulyktarinnar. Í versta tilfellinu flaug vitskertur sílamáfur inn um eldhúsglugg í Hlíðunum og smitaði alla fjölskylduna. Eftir að Indriði Handreður komst til einhverrar heilsu á ný hefir hann knúið konu sína, Máríu Borgargagn, svo ákaft að hún er næstum úrbrædd orðin og farin að pumpa með.
![]() |
Held að við séum í nokkuð góðum málum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2020 | 13:14
Norðmenn gjöra aðför að frjálsu framtaki og nýfrjálshyggju
Hér hofum við dásamlegt dæmi frá Noregi um frjálst einkaframtak, nýfrjálshyggju og skapandi frumkvöðlastarf. Maður verður hrærður af að setja sér fyrir hugskotssjónir athafnasemi, útsjónarsemi og elju hinna norsku hjóna sem hafa haslað sér völl í Sartor verslunarmiðstöðinni í Björgvin. Svo kom lögregluhelvítið, rammmarxíst, óþjóðlegt og skammarlegt, knúið áfram af öfundsýki og hóf afskipti af hinum vinnandi hjónum, sem hófu feril sinn með tvær höndur tómar, en vóru komin í góðar álnir, sona álíka og meðalkvótagreifi á Íslandi. Nú er hún Snorrabúð stekkur, hið opinbera lét sendisveina sína einkennisklæddar gjöra eignir hinna duglegu og góðu hjóna upptækar en lokaði þau sjálf inni einni af þessum svínastíum sem það kallar fangageymslur þar í Norðvegi.
Sem betur fer er ástandið ekki jafn djöfullegt á Íslandi eins og hjá Nossurunum. Hér sá talin mestur maður sem stolið hefir mestu á svínslegasta og lævíslegasta hátt; slíkir menn eru taldir sosialistar, jafnaðarmenn og félagshyggju- og samvinnumenn á Íslandi, því þeir leggja saman krafta sína til að ráða öllu, eiga allt og mega allt. Auðlindir, dómstóla, alþingi, ríkisstjórn og banka ásamt fjölmiðlum og fleira smálegu eiga þessar kempur skuldlaust; og þegar öfundsjúk misyndismenni kæra þá fyrir eitthvað lýkur soleiðis málum aðeins á einn veg: kærandinn er gerður ærulaus, auralaus og settur í fangelsi við fyrsta tækifæri. Í þokkabót hafa Íslendingar bætt þeirri rós í hnappagatið sitt að gjörast Trumpistar, sem auðveldar þeim mjög að rífa kjaft og halda fram staðleysum og heimskurugli eins og um heilagan sannleika sé að ræða. Á Íslandi ráða sannir Íslendingar ríkjum en ekki írski þrælalýðurinn, sem illu heilli fylgdu forfeðrum okkar til landsins á landnámsöld.
Það er gott að búa á Íslandi og til marks um það þá hafa þeir hleypt pestargemlingum með kóvíð nítjánda í stórum flugvélaförmum á landsmenn til að sýna þeim hvað Davíð keypti ölið og í leiða þeim fyrir sjónir hvur það er sem ræður Íslandi og á þennan hrjóstruga hólma norður í rassi. Á meðan við höfum það svona gott drepa frændur okkar í Noregi allt heilbrigt framtak og samkeppni niður með bros á vör; þeir munu uppskera eins og þeir hafa sáð til og það mun fara herfilega fyrir þeim áður en lýkur. Meiri bölvaður niðurrifslýðurinn atarna fyrir austan haf.
![]() |
Stórtækir búðaþjófar í Bergen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Frú Sæland, frú Andersen - og síðust en ekki síst: Frú Ingveldur
- Baráttumál kvenna á ýmsum aldri fyrr og nú.
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 2
- Sl. sólarhring: 144
- Sl. viku: 1189
- Frá upphafi: 1549275
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 1081
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007