Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
15.6.2007 | 18:27
Tunglsjúkir öfuguggar hjá AmEx.
Bölvaðir ekkisens ódámar eru þessir skrattar sem stjórna Amérícan Expréss. Hvernig í ósköpunum dettur þessum tunglsjúku öfuguggum í hug að ljúga kortum, sem ekki er hægt að nota á nektardansstöðum í Danmörku, inn á fólk? Það mætti halda að þessir aumingjar séu uppvakningar frá miðöldum, svo hryllilega forpokaðir eru þeir.
En fátt er svo með öllu íllt: Í fréttinni atarna kemur fram, að taki Danskur klámdansstaður við korti frá Amérícan Expréss taki dansstaðurinn kostnaðinn á sig, ekki kúnninn. Þess vegna ætlar Guðmundur vinur minn, að fá sér svona kort frá Amérícan Expréss, steðja að svo búnu beina leið til Kaupmannahafnar og gera þar almenilegt strandhögg á nektardansstöðum, sér að kostnaðarlausu.
American Express sniðgengur danska nektardansstaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2007 | 17:58
Saga af sægarpi.
,,Ekki má gleyma að geta um vertíð mína. Allt útræði var með róðrabátum frá Sauðárkróki þá. Ég réðst strax sem háseti á bát með sjö manna áhöfn, þrír menn réru á hvert borð, en formaðurinn sat við stýrið. Orðbragð bátsmanna, klám og þess háttar, ofbauð mér þegar í upphafi. Var róið meðfram Reykjaströndunni og, að mig minnir, norður fyrir hana. Ég held, að lóðin hafi verið lögð ekki allfjarri Tindastóli og Drangey, í sundi því sem ber nafn af eyju þessari.Róið gat ég að nafninu að miðunum. Þá gerðist ég sjóveikur og lagðist fyrir í skutnum. Er lagt var af stað til Sauðárkróks aftur, rénaði sjóveikin að mun og ég held, að ég hafi róið allmikið af þeirri leið. Ég var ekki fyrr kominn í land en ég var rekinn. Annar formaður gaf mér kost á því að fara í róður með sér með svipuðum árangri og sömu endalokum. Þriðji formaðurinn féllst á að ,,reyna þolrifin" í mér. Sjóveiki og löðurmennska sameinuðu átökin um mig eins og í hinum tveimur róðrunum, enda fékk ég síst betri útreið en hin fyrri skiptin. Hafði ,,hróður" minn borist rækilega um ,,Krókinn" þegar hér var komið sögu."
(Úr ,,Harmsögu ævi minnar" eftir Jóhannes Birkiland)
14.6.2007 | 22:18
Að kneyfa öl og gilja konur.
Stemmning á Víkingahátíð á Sauðárkróki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2007 | 21:55
Nauðsynlegt að leyfa tóbaks- og áfengisauglýsingar.
Auðvitað eru það hræðileg heimskupör og óviðunandi forræðishyggja, að banna að auglýsa spíritusinnihaldandi drykkjarföng. Öll boð og bönn varðandi brennivín, bjór og rauðvínsgutl eru ekki bara mannskemmandi, heldur koma þau algjörlega í veg fyrir aðlaðandi og vingjarnlega vínmenningu. Þannig vínmenning er sem betur fer víða til. Á Ítalíu og á Spáni, já og víðar, þar sem brennd og óbrennd vín eru hluti af matarmenningu fólks, er órjúfanlegur hluti hins daglega brauðs, er drykkjuskapur með öllu óþekktur, að maður tali nú ekki um fyllirí. Á Spáni, Frakklandi og á Ítalíu hefur fólk aðlagað sig svo gjörsamlega að vínmenningunni, að því fleiri glös sem innbyggjarar þessara landa hvolfa ofan í sig, því alsgáðari verða þeir. Það er einmitt svona menning sem Íslendingar verða að koma sér upp, svo að þeir geti með gildum rökum talið sig til siðmenntaðra þjóða. En til að það megi gerast, verður afnema öll bönn við áfengisauglýsingum og leyfa sölu á þessum matarvarningi í öllum verslunum sem það vilja.
Og svo er það tóbakið og tóbaksauglýsingar. Auðvitað er fasisminn gegn reyktóbaksfólki af sömu rót runninn og bannið við brennivíns og bjórauglýsingunum. Hjá siðmenntuðum þjóðum þykir sjálfsagt og nota og auglýsa tóbak, t.d. eru kappakstursbílar gjarnan skreyttir með sígarettuauglýsingum, og hefur það gefið góða raun. Sígarettur, píputóbak og vindlar eru eins og hver annar vinsæll neysluvarningur, sem siðað fólk notar að lokinni máltíð, með glasi af góðu öli eða kaffibolla og er þar með hluti af boðlegri matarmenningu. Hér á landi hefur pólitískum fíflum og sálsjúkum grilluföngurum haldist uppi að banna tóbaksauglýsingar árum saman; banna að hafa tóbak í hillum verslana; og nú síðast, að banna reykingar hér um bil alstaðar. Þvílík andskotans forræðishyggja og fasismi !
Það ber því algjöra nauðsyn til, að leyfa innflytjendum tóbaks að auglýsa varning sinn að vild sinni, hvar og hvenær sem þeim þóknast. Enn fremur verður að afnema, í eitt skipti fyrir öll, hverskonar hömlur á sölu og neyslu tóbaks.
Dæmdur í sekt fyrir að láta birta áfengisauglýsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2007 | 12:51
Ofþornuð París hætt að skíta og míga.
Ég hef oft furðað mig á, hvað síbyljufréttaflutningur af fólki á borð við Parísu Hiltón á yfirleitt að þýða og hvaða erindi hann á við almenning. Þetta hyski hefur yfirleitt þeð eitt sér til ágætis af hafa nóg af peningum til að rugla með, og getur hver af því séð hvert merkisfólk er þar á ferð. Hvað er t.d. fréttnæmt við það, þó að gerpi eins og Parísa þessi hætti að éta og drekka til þess að þurfa ekki að skíta og míga?
Og svo segir einhver heimildamaður, að kvikindið hafi ofþornað !!!
París þorir ekki á salernið í fangelsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2007 | 22:38
Framsóknarofnæmi er hættulegur kvilli.
Ætli langvarandi ofnæmi fyrir framsóknarmönnum og svikulum samfylkingardindlum verði líka úr sögunni eftir 10 - 15 ár? Ef svo verður, má með sanni segja að prófessor Jan Lötvall hjá Sahlgrenska Akademin verði settur á bekk með mestu velgjörðarmönnum mannkyns, fyrr og síðar.
Ég þekkti mann, sem á efri árum, þurfti að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi. Þegar læknarnir voru að undirbúa þennann mikla sómamann, spurðu þeir hann hvort hann hefði ofnæmi fyrir einhverju. Sjúklingurinn hugsaði sig um stundarkorn, en sagði að svo búnu, að hann vissi ekki til að henn hefði ofnæmi fyrir neinu, nema ef til vill framsóknarmönnum. Auðvitað þyngdist brúnin á læknunum og þeir fóru að tala saman á latínu. Eftir heilmiklar bollaleggingar kom læknunum saman um, að þó útlitið væri slæmt, væri þó áhættunar virði að svæfa sjúklinginn og skera, en bættu þó við, að framsóknarmannaofnæmi væri hættulegur kvilli sem við vissar aðstæður gæti auðveldlega riðið fólki að fullu.
Nú verðum við bara að treysta á að herra prófessor Jan finni viðeigandi lausn á framsóknarvandamálinu.
Eftir áratug verður ofnæmi úr sögunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2007 | 18:28
Hvolparnir sem grétu krókódílatárum fyrir vestan.
Ef að líkum lætur, hefur ekki verið töluð vitleysan á fundi ísafjarðarelítunnar og ríkisstjórnarhvolpana á fundinum á Ísafirði í morgum. Trúlega hafa hvolparnir lýst áhyggjum sínum við heimamenn og grátið fáeinum krókódílatárum ofan í fundarborðið til að sanna samkennd sína með byggðarlagi á fallanda fæti. Og varla þarf að efa að Össur og Einar hafi gert sig traustvekjandi í andlitunum og fullvissað landsbyggðarbúana um að stöðugleiki muni ríkja áfram í fiskveiðistjórnarmálum þjóðarinnar, þannig að kvótaeigandi sægreifar geti haldið áfram að gera gælur við íbúa sjávarbyggðanna.
Að svo búnu hefur hver farið til sín, með vonarglampa í augum.
En síðan gerist auðvitað ekki neitt.
Ráðherrar ræða við heimamenn á Vestfjörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2007 | 16:31
Aðför að vel reknu fyrirtæki meðan saurbrunnar standa opnir.
Hún er aldeilis þokkaleg samþykktin sem bæjarráð Kópavogs samþykkti í gærkvöldi. Mér er svo sannarlega, algjörlega fyrirmunað að skilja hvað blessuðu aumingja bæjarráðsfólkinu gengur yfirleitt til. Það er ekkert smáræðis klámhögg hjá einu útskitnu bæjarráði, að siga lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins á gróið fyrirtæki í fullum reskstri. Það þarf varla að fjölyrða að fyrirtækið Goldfinger hefur fyrir margt löngu sannað tilverurétt sinn, og er raunar skólabókardæmi um vel heppnaða atvinnustarfsemi, sem skilað hefur samfélaginu bæði peningum og menningu. En nú þykist bæjarráð Kópavogs ekki hafa neitt brýnna fyrir stafni en að egna lögregluna upp á móti fyrrnefndu fyrirtæki og forstjóra þess, meðan hroðalegar klósettafurðir vella , eins og ekkert sé sjálfsagðara, upp úr galopnum saurbrunnum bæjarfélagsins.
Ég skil ekkert í þeim merka manni, Gunnari I. Birgissyni, bæjarstjóra Kópavogs, að láta vinnubrögð af þessu tagi viðgangast.
Samþykkt í bæjarráði Kópavogs að láta rannsaka starfsemi Goldfinger | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.6.2007 | 21:10
Getnaðrglampi í glyrnum Bush.
Svei mér þá, ef það skín ekki getnaðarglampi úr augunum á Bush á myndinni atarna. Það má mikið vera ef karlandskotinn er ekki hreinlega að afklæða frú Merkel kanslara með glyrnunum. En ég læt mér ekki detta í hug að Bush hafi farið að stíga í vænginn við kanslarann, svo hugrakkur er hann ekki.
Annars hefði verið gaman að sjá Bússinn andspænis öðrum ágætum þýskalandskeisara sem var upp á sitt besta á síðari helmingi fjórða áratugarins. Ætli hinn hákristilegi repúblikani Georg Bush hefði klætt þann kanslara úr öllum fötum með augunum eins og hann gerði við frú Merkel?
Jú ... ég geri nú frekar ráð fyrir því, já.
Bandaríkin hafna markmiðum Þýskalands í loftslagsmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2007 | 20:32
Samfylkingarhrossin og önnur hross.
Það er náttúrlega skelfilegt, að láta sjö hross valsa í leyfisleysi um þjóðvegi landsins. Ef allt væri með felldu ætti að taka þessi kvikindi og salta þau þegar í stað ofan í tunnu og ef ekki hrossin þá eiganda eða eigendur þeirra, en fátt er víst betra til að bæta sér í munni en spaðsaltaður hrossaprangari.
Þá er nú hlutunum öðruvísi farið með Samfylkingarhrossin. Þau eru tryggilega vistuð innan íhaldsgirðingarinnar og sleppa ekki þaðan út fyrr en húsbændunum á höfuðbólinu þykir tími til kominn að fá sér nýja hækju. Síðast fréttist af Samfylkingastóðinu í óðaönn við að hækka launin hjá seðlabankastjórunum, sem auðvitað er mikið happa- og þjóðþrifaverk.
Sjö hross ganga laus á þjóðveginum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 61
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 219
- Frá upphafi: 1539502
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007