Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
16.9.2009 | 16:04
Frú Swandees leyfir rjúpnamorð - rjúpnavinir munu grípa til vopna

![]() |
Breytingar gerðar á veiðitímabili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.9.2009 | 13:35
Ætlaði að heimsækja kvenmann en fór húsavillt
Ekki efa ég að fólki líði hræðilega að þurfa að búa við hliðina á mönnum sem heita Wernersson, Welding, Ármannsson eða Gissurarson. Það segir sig sjálft að nágrannar slíkra manna fá sjálfkrafa óorð á sig, af ástæðum sem mér eru að vísu ókunnar. Þá væri ekki beint geðslegt fyrir nágrannana ef skemmdarvargarnir með málninguna færu húsavillt og djöfluðu og rauðu og svörtu uppá veggi hjá bráðsaklausu fólki; ég get bara ekki hugsað þá hugsun til enda ógrátandi.
Einusinni kom það fyrir í Laugarneshverfinu, að maður, sem ætlaði að heimsækja kvenmann um hánótt, fór húsavillt. Hann skreið innum gluggann á hjónaherberginu í næsta húsi og tókst áður en yfir lauk að vinna þar hræðileg spjöll, svo sem eiginmanni konunnar í því húsi ætti að vera best kunnugt um. Það var nefnilega ekki nóg með að villumaðurinn tæki feil á húsum þessa nótt, heldur fór hann kynjavillt þegar inn var komið og tók áðurnefndan eiginmann, sem lá í fasta svefni við hlið konu sinnar, svo ærlega í bakaríið að hann vissi ekki á hvorum endanaum hann ætti að standa í tvo sólarhringa á eftir. Af þessu má sjá að mistök geta verið dýrkeypt og menn ættu að einsetja sér, sem boðorð eitt, tvö og þrjú, á undan þessum 10 boðorðum í Biflíunni, að gera aldrei mistök.
Svo er náttúrlega einn möguleiki í þessu málnigarmáli öllu, sem Geir Jón lögregluforingi ætti að rannsaka sérstaklega, en það er hvort þessir werners- og weldingssynir allir saman hafi ekki sjálfir verið að dunda sér við að mála húsin sín á síðkvöldum og að næturþeli. Það er t.d. alþekkt að sumt fólk á það til að ganga í svefni og taka sér, undir þeim kringumstæðum, eitt og annað smáskrítið fyrir hendur.
![]() |
Nágrönnum auðmanna líður illa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2009 | 09:50
Djöfullegt innræti og tvíelleft skemmdarvargafýsn
Það þarf meira en djöfullegt innræti og tvíellftan skammt af skemmdarvargafýsn að leggjast svo lágt að ráðast að hýbýlum guðsengla eins og Wernersbræðra og útata allt og fordjarfa með rauðri málningu, máske skipalakki eða botnfarva. Guðsenglar á borð við bræðurnar Wernersson eiga annað og betra skilið af almúgahyskinu, sem þeir af einstakri fórnfýsi hafa reynt hvað þeir geta að gera bjargálna.
Svona skemmdarvarga, sem vaða um borg og bý og eyðileggja eignir góðra manna, að verður að uppræta og í eldsofninn kasta, svo notað sé hákristilegt orðalag úr sjálfri Biflíunni. Ég man eftir drenghelvíti einu, þrettán ára gömlu, sem tók uppá þeim ljóta sið að dæla tjöru úr einhverskonar vatnsbyssu, sem faðir hans hafði keypt í útlöndum og gefið honum, innum glugga hjá saklausu fólki, einkum innum svefnherbergisglugga að næturþeli. Þessi drengur var upprættur. Og það var til þess tekið að hvað sóknarprestinum var ljúft að jarðsyngja þennan pilt - enda var talið að sóknarpresturinn sjálfur hafi átt hvað drýgstan þátt í að uppræta óbermið.
Ég legg að minnsta kosti til, svo að ég leggi nú eitthvað til, að Stjörnusýslumanninum Stones á Selfossi og hans vösku varðsveit verði falið að leggja til atlögu við hina málningarglöðu skemmdarvarga og ganga milli bols og höfuðs á þeim áður en þeir hætta að láta sér nægja að útsvína veggi góðra manna og fara að mála Wernersbræður sjálfa uppúr hárauðu vélarlakki.
![]() |
Hús Wernerssona máluð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.9.2009 | 16:47
Þegar Geiri gamli lumbraði á kerruþjófnum
Andskoti er að heyra þetta með búðarþjófana ofaná allrar fréttirnar af bankaræningjunum. En þetta grunaði mig alltaf. Við búum í þjófafélagi en ekki þjóðfélagi. Og nú eru þeir farnir að mæta á jeppum af Nissan Patrol gerð og hafa á brott með sér kerrur uppá eina og hálfa milljón per stykkið og það um hábjartan dag. Það er ekki nema von að heiðurspiltinum Drésa Magg hjá Samtökum verslunar og þjónustu fallist höndur andspænis þessháttar óganarbíræfni.
Ef mér skjátlast ekki því meir, þá hafa þessir þarna á Nissan Patrólnum verið allt í senn: frjálshyggjumenn, súsarar og heimdellingar, því þeirra höfuðdyggð er nú einusinni að fara um á jeppum og stela kerrum, hvernig sem á því stendur. Það er ekki lengra síðan en í fyrra að Geiri gamli í Tungu lumbraði eftirminnilega á svona heimdellingssúsara sem ætlaði að stela traktorskerru frá honum. Sú barsmíð kostaði Geira gamla þriggja ára fangelsisvist að Litla-Hrauni auk þess að greiða heimdellingssúsaranaum 12 milljónir í skaðabætur fyrir líkamstjón sem ófétið þóttist hafa orðið fyrir.
![]() |
Bíræfnir búðarþjófar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2009 | 16:12
Örlög Kjartans grábrókar háskólastúdents
Ekki verður annað sagt en háskólatúdentarnir sem sviku milljónir á milljónir ofan útúr Atvinnuleysistryggingasjóði séu einstaklega vel heppnaðir einstaklingar og stórefnilegir framtíðarembættismenn. Það er áreiðanlega mörgum tilhlökkunarefni að geta sagt um sóknarprestinn sinn: ,,Hann er einn af þessum sem rændu aurum af atvinnulausum þegar hann var að læra."
Svo er líka spurning hvar andskotans börnin lærðu að haga sér með þessum hætti þegar þau voru farin að nema fræði við æðstu menntastofnanir. Ég gæti best trúað, að svona ungar komi af vel græðgisvæddum íhalds- og fframsóknarheimilum og á þeim sannist hið fornkveðna, ,,að eftir höfðinu dansi limirnir."
Í gamla daga þekktum við félagarnir Kjartan grábrók háskólastúdent. Ég vil taka það fram að hann var ekki vinur okkar í neinum skilningi þó að við þekktum kauða ágætlega. Kjartan grábrók var undan vellríkum og gráðugum foreldrum, sem bæði hafa, áratugum saman, verið frammáfólk í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfur var Kjartan í Heimdalli og talaði sjaldnast um annað auðvirðilegt gróðabrall, sem hann kallaði samkvæmt innræti sínu ,,eftirsóknarvert frelsi í viðskiptum." Hluti af þessu margumtalaða eftirsóknarverða frelsi í viðskiptum Kjartans grábrókar fólst m.a. í því að selja rosknum konum, sem hann hitti í danshúsinu Glæsibæ, blíðu sína. Talið var að minnsta kosti fimm svona kerlingar hafi verið fastakúnnar hjá Kjartani á námsárum hans. Og auðvitað gerðist Kjartan grábrók mikill höfðingi að háskólanámi loknu; sigldi bókstaflega með himinskautum á sviði farsældar og auðlegðar.
En fyrir tæpu ári síðan steytti veraldarfley Kjartans á einu ægilegu blindskeri. Það var eins og karlgarmurinn hefði keyrt á þúsundfaldan vegg; hræðilegur leki kom að fjárhirslum hans og allt fór óforvandis útum læri og maga eins og sagt er. Síðan þá hefur Kjartan grábrók verið í felum og á flótta undan öllu og öllum, utan hvað hann hefur komið tvisvar eða þrisvar fram í fjölmiðlum til lýsa því yfir að hann sé alsaklaus af bankahruninu og þjóðargjaldþrotinu. Nú segja mér vísir menn, að aðeins kraftaverk geti komið í veg fyrir að Kjartan okkar grábrók, og ýmsir fleiri af hans sauðahúsi, lendi í fangelsi til margra ára fyrir hluti sem hann þó hefur svarið oftar en einusinni af sér fyrir framan alþjóð.
Það má me sanni segja, að það hafi verið ógæfa Kjartans að: 1.) fæðast með gullskeið í trantinum. 2.) læra ,,eftirsóknarvert frelsi í viðskiptum" sem æðri vísindi við háskóla. 3.) éta yfir sig af frjálshyggjukjaftæði framreiddu af H. H. Gissurarsyni prófessor.
![]() |
Skoða frekari bótasvik námsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2009 | 13:30
Glæpajurtirnar eru lúsiðnar og unna sér engrar hvíldar
Hinar sjúku glæpajurtir, illgresið mikla í Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarklíkunni, - já, og Samfylkingunni, sem sótt hafa næringu sína fyrst og fremst í dauníllt frjálshyggjuskólpið sem runnið hefur frá samfélagsfjandsamlegum eiturpöddum eins og Miltóni Fríedman og öðrum ámóta skítakleprum, eru ennþá að í íslensku samfélagi.
Þrátt fyrir að hafa hrundið af stað þjóðargjaldþroti með herfilegum uppátækjum sínum, halda frjálshyggjuómennin áfram hvað þau geta að grafa undan samfélaginu, sjálfstæði þess og framtíð. Nú skal öllu til kostað í að svíkja sameign þjóðarinnar sem felst í orkulindum landsins í hendur einkaaðila og það meira að segja erlendra einkaaðila.
Framganga af þessu tagi er ekki aðeins framúrskarandi lítilmennska heldur fyrst og fremst forhert glæpamennska af síðustu sort. Hvað verðskulda þær aumu persónur sem hafa dregið allt sem hönd á festir á Íslandi ofan í svaðið? Af hverju eru þessar skepnur ekki stoppaðar af í eitt skipti fyrir öll? Af hverju eru illkynja meinvörp eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn ekki bannaðir með lögum eins og hverjar aðrar hættulegar glæpaklíkur? Íslendingum stafar nefnilega ógn af fleiri glæpasamtökum en Hells Angels og öðrum þvíumlíkum.
![]() |
Endurskoðendur í svaðið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.9.2009 | 16:40
Með hvaða líkamsparti er Margrét vön að anda?
Hún ætlar að anda með nefinu, þingskörungurinn Margrét Tryggvadóttir, áður en hún segir af eða á með hvort hún segir óbreyttum dátum í Borgarahreyfingunni að fara til andskotans eða ekki. Þessi áhugaverða afstaða þingskörungsins vekur upp þá áleitnu spurningu hvort hann sé vanur að anda með einhverjum öðrum líkamsparti en nefinu og þá nákvæmlega hvaða líkamsparti. Það má svo sem vera að stjórnmálaljónynjan Margrét hafi vanið sig á að anda með munninum, jafnvel frá frumbernsku, og standi þá gjarnan á öndinni, másandi og blásandi útum munnsöfnuðinn með tunguna útúr og augun í kross. Slíkur framgangsmáti er ekki þingmanni sæmandi, svo mikið er víst. En hvað sem því líður, hefi ég samt illan og ísmeygilegan grun um að öndunarmál þingskörunga Borgaraflokksins séu í argasta ólestri og fari hvorki fram um munn eða nef. Enda er andi þessara merku borgara ekki þess eðlis að hann fari fram um hefðbundin öndunarfæri. Ónei, þar eru einhver önnur lögmál í gangi en gengur og gerist.
Eina ráðið sem ég get gefið borgarflokksþingmönnum er að hætta öllum fíflagangi og drífa sig strax heim í Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkinn og hafa Þráinn með sér. Og það vill saman sem saman á og við því er ekkert að gera.
![]() |
Tíðinda að vænta í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.9.2009 | 12:14
Ættu að finna upp lyf gegn öðrum og verri óþverrapestum
Það má vel vera að einn skammtur af GlaxóSmithKline bóluefni drepi niður svínaflensu og geri jafnvel örgustu fola vita náttúrulausa í leiðinni. Ég held ég muni nú þegar Villi vinur minn, sem var ærður af ást til allra kvenna, lét sprauta sig við inflúensunni hér um árið; hann missti ekki bara getuna til kvenna, heldur umpólaðist hann gjörsamlega og varð jafn elskur að karlmönnum og hann var ástfanginn af konum áður enn hann fékk sprautuna.
Hinsvegar ættu þeir hjá GlaxóSmithKline og öðrum stöffbruggsfabikkum, að hunskast til að einhenda sér í að finna upp bóluefni gegn óþverrapestum eins og framsóknarmennsku og sjálfstæðisflokksmeinvörpum, sem eru, eins og alþjóð veit, þjóðarógæfa íslendinga. Það væri mikið kærleiksverk og mannúðarmál af hálfu lyfjafyrirtækja ef þau sæju sér fært að framleiða sterka lyfjablöndu sem virkaði á fyrrnefnda sjúkdóma áður en þeir ná að verða að heimsfaraldri með tilheyrandi skakkaföllum fyrir allt mannkyn.
![]() |
Einn skammtur af bóluefni nóg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.9.2009 | 10:55
Fikt með últratón rafmagn er ekkert grín
Aumingja blessaðar manneskjurnar orðnar leiðar á að vera heima! Það er merkilegur andskoti hvað sumt fólk er blint á hvar það sé best geymt. Og hvað var svona herfilega leiðinlegt heima hjá þessum vesaling konum? Uppvaskið? ... ryksugan? ... skúringafatan? Og hver fjandinn sjálfur er þetta sem þær kalla ,,ultratone rafbylgjumeðferð? Er það máske einhverskonar nýmóðins BDSM-dæmi? Það muna víst flestir hvernig fór þegar kerlingin tengdi rafgeymi úr toyota landcruiser bifreið þeirra hjóna við rassinn á eiginmanni sínum. Það sprakk allt í loft upp, hjónaherbergið, hjónarúmið og hjónin sjálf, að ógleymdum geyminum sem þoldi engann veginn að komast í beint samband við bláendann á hinum óhamingjusama eiginmanni.
Mín skoðun er sú, að frænkurnar, Margrét og Erla Hanna, eigi að halda sig í eldhúskróknum heima hjá sér því að þá eru minnstar líkur á að þær geri eitthvað af sér. Fikt með últratón rafmagn er ekkert grín í höndunum á svona kerlingum. Þessháttar spaug getur auðveldlega endað með stórslysi, jafnvel tvíburaturnasprengingu ef þannig háttar til.
![]() |
Orðnar leiðar á að vera heima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.9.2009 | 13:37
Óráðskallinn Askinaski mærir yfirspenntan snobbismaviðbjóð
Helvítis rugludallur getur þessi ekkisens Askinaski verið, segist hafa fengið ,,innblástur" við að tipla um um hið afkáralega minnismerki um vitfirringu frjálshyggjugræðgisáranna í Austurhöfn Reykjavíkur, tónlistarhöllina miklu sem til stendur að henda meira en 30 milljörðum í áður en yfir lýkur. Það væri gaman að vita hverskonar trekkvindur það var sem blés anda sínum inní rörið á Askinaski. Þó að Askinaski sé þrautseigur píanóglamrari og víðfrægur sem slíkur á Íslandi, þá er ekki þar með sagt að fjölmiðlar eigi birta óráðshjalið í karlskepnunni ómelt.
Að mæla með tugmilljarða tónlistarhúsi á sama tíma og þjóðin liggur hryggbrotin í blóði sínu eftir aðfarir allrahanda frjálshyggjubrjálæðinga er raun og sannleika ekkert annað últrafáránlegt óráðshjal. Það er með algjörum endemum að Ríkið og Reykjavíkurborg séu látin ausa ótrúlegum fjárhæðum í slíkan yfirspenntan snobbismaviðbjóð. Það etur andskotann ekki annað verið, en að þeir sem standa fyrir þessum ósköpum eigi við alvarleg geðræn vandamál að stríða, sennilega geðkrabba eða stökkbreytt geðfár.
![]() |
Agndofa og þakklátur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 63
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007