Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012
31.1.2012 | 14:10
Talandi dæmi um stjórnlausa ESB-fíkn
Pistill Bryndísar Ísafoldar sannar kenningar Ögmundar Jónassonar um að ESB virki eins og sterkt eiturlyf á heila fólks sem lætur það eftir sér að byrja á að fikta með ESB og aðra þvílíka landsöluóra.
Á sínum tíma gerðust margir fársjúkir þrælar bandaríska hernámsins á Keflavíkurflugvelli með hræðilegum afleiðingum og er enn langt í land að öll sár grói sem tengdust kanafíkninni þar suðurfrá.
Og ekki var her morðvarganna frá Bandaríkjunum fyrr farinn frá Keflavík, en móralskar dreggjar þjóðfélagsins drífa annað baneitrað fíkniefni á markaðinn. Sem sé: ESB. Er nema von að sómakærum almenningi blöskri aðfarirnar?
Það er þyngra en tárum taki, að horfa á eftir efnilegu æskufólki að gefa sig ESB-eiturlyfjafíkninni á vald og fara í hundana. Við þessum erfiða sjúkdómi eru enn sem komið er engar nothæfar lækningar og sökum fjárskorts hins opinbera hefur enn ekki verið ráðist í að opna sérstaka geð- og fíknideild fyrir ESB-sjúklinga. Á meðan verður að notast við vatnslækningar, óðsmannsskyrtur, magadælur og ibrufen til að slá á verstu einkenni sjúklinganna.
Vissulega er pistill Bryndísar Ísafoldar talandi dæmi um stjórnlausa ESB-fíkn, sem eyðileggur útfrá sér meir en orð fá lýst. Tel ég einboðið, að téða Bryndísi Ísafold eigi tafarlaust að færa undir læknishendur, í spennitreyju ef ekki vill betur, því ekki kæmi mér á óvart að hún sé bráðsmitandi tilfelli sem nauðsynlegt sé að hafa í einangrun.
Hlupu út í búðirnar í Brussel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.1.2012 | 10:34
Heitar ástríður, hórdómsbrot og særð blygðunarkennd
Mér er nær að halda, að nú hafi átt að láta til skarar skríða og sprengja stjórnarráðið ásamt ráðherrum og öðrum fylgihlutum í loft upp með torkennilegum hlut. Það hefði orðið saga til næsta bæjar, hefði það tekist.
Þegar svona gerist verður að leggja alla áherslu á að finna þá er ódæðið ætluðu að fremja, en í því sambandi koma ýmsir í hug, en hyggilegast er samt að nefna engin nöfn að svo stöddu. En þarna eru eflaust á ferð einbeittir stórglæpamenn með hugsjón.
Nú þykir ekki lengur tiltökumál þótt ein ríkisstjórnarnefna sé sprengd í loft upp, javfnvel með tilþrifum, og með öllu óvíst slíkt uppátæki vekti mikla eftirtekt hjá öðrum þjóðum. En ef ein sprungin ríkisstjórn vekur áhuga ferðamanna á að heimsækja Ísland, mætti með góðri samvisku kalla það góða sprengingu. En okkur vantar, sem kunnugt er, meiri gjaldeyri inní landið.
Þó ætla ég samt í lengstu lög að vona, að þarna hafi þeir Kolbeinn Kolbeinsson og Indriði handreður verið að verki. En þeim liggur þungur hugur þessi dægrin til ríkisstjórnarinnar af fleiri en einni ástæðu, meðal annars blandast inní heift þeirra hlutir eins og ástríður, meint hórdómsbrot og særð blygðunarkennd.
Hús rýmt við Hverfisgötu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2012 | 09:03
Eldvatn, hóruhús og steikur á kostnað skattgreiðenda
Til hvers er maðurinn að biðja útjaskað möppudýralið afsökunar á því að hafa sagt því til syndanna? Það er satt að segja fáránlegt í meira lagi, svo vægt sé til orða tekið, og það svo að ætla mætt að kviknað hafi í höfðinu á manninum. Það kvað nefnilega vera margsannað, að viss tegund prumhænsna er sérlega sólgin í að liggja á hótelum á kostnað skattgreiðenda og er alltaf á höttunum eftir ferðum sem innihalda þessháttar lúxus.
En sérstaklega eru þó einstaklingar með kratablóð í æðunum æstir í svona ferðir, ekki síst til Brussel, þar sem þeir drepa tímann með því að innbyrða eldvatn, fara á hóruhús og éta steikur, - allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda.
Að biðja svona fénað afsökunnar, er sem fyrr segir fáránlegt, og ætti Ögmundur því að gera bragarbót á ráði sínu og biðja skattgreiðendur afsökunnar á því að hafa beðið hið hótelliggjandi möppudýralið afsökunar.
Og í gær sagði glöggur kunningi mér frá því, að hann fyndi ævinlega sérlega hvimleiða hlandlykt af brusselferðalöngunum alræmdu og tæki sú pest kattarhlandslykt fram hvað varðar klígjulegan óþef.
Ögmundur biðst afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.1.2012 | 20:36
Greip ítrekað í klofið
Það er trúlega mikill kostur fyrir eina grátvolaða knattspyrnukvennsu að vera útbúin með haus sem hringsnýst eins og þyrluspaði. Þessi góði kostur nýtist vel í skallaeinvígum og þá ekki síður í sturtunni á eftir leik.
Á sínum yngri árum lék frú Ingveldur knattspyrnu af þó nokkrum myndarbrag og gat hún samt ekki snúið höfði sínu nema einar 180 gráður. Síðasta verk hennar á knattspyrnuvellinum var að misþyrma dómaranum eftir að hann gaf henni gula spjaldið fyrir að klípa mótherjana ítrekað í klofið með lostabros á vör. Eftir það atvik var frú Ingveldur dæmd í ævilangt keppnisbann.
En boltasúlkan með hausinn sem hringsnýst þarf sam ekki að örvænta, svo framarlega sem hún grípur ekki til sömu ráða og urðu frú Ingveldi að falli á leikvellinum á sínum tíma.
Hólmfríður: Hausinn á mér hringsnýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2012 | 20:00
Einfalt ráð gegn íslenskum tannlæknum
Það sem bera gera í því máli er: 1.) Setja Guðbjart Hannesson af sem ráðherra. Það er nóg að silkihúfum á fóðrum hjá ríkinu og óþarfi að bæta Guðbjarti við þann mannsöfnun. 2.) Tannlækningar verði samfélagsvæddar undir eins. Sem þýðir að tannlæknastofur verða reknar af ríkinu og tannlæknar verða starfsmenn ríkisins. Ef hinir peningagráðugu íslensku tannlæknar neita að gerast stafsmenn á vegum almennings þá skal finna fyrir þá einhver önnur störf, en fá þess í stað tannlækna erlendis frá, sem ekki hafa orðið einkagróðahyggjunni og sérhagsmunasýkinni að bráð.
Einn veikasti hlekkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.1.2012 | 20:26
Dýragarðssaga í myndum
Það er sérstök ástæða til að benda fólki á að fletta myndasyrpunni, sem fylgir þessari frétt. Á meðan ég renndi í gegnum myndirnar leið mér eins og ég væri á gangi í dýragarði, - hveimleiðum dýragarði reyndar.
Þess má þó geta, öðrum til glöggvunar, að í venjulegum dýragörðum kemur fólk og skoðar ýmiskonar kvikindi sem geymd eru í búrum, en á sýningunni ,,Tízka í Þjóðminjasafni Íslands" er þessu öfugt farið, því þar koma skepnurnar og að skoða gamla kjóla, hnusa hugsandi utaní þá og klóra sér um lendarnar.
Myndasyrpan er sem sagt, mjög áhugaverð og fræðandi, og þeir sem þar koma fyrir hrukkóttir og toginleitir eins og gæflyndar fornaldareðlur.
Vigdís Finnbogadóttir skoðaði tízkuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2012 | 19:04
Við viljum Ólaf Helga sem byskubb!
Miðað við þær veimiltítur og sótrafta sem hyggjast gefa kost á sér í byskubskjöri í sumar, er ljóst að þetta merka málefni er að verða ein allsherjar hringavitleysa og galskapur. Þá er ennfremur ljóst, að ef ekki á illa að fara verða aðrir og myndugri frambjóðendur að koma fram á sjónarsviðið. Í þeim efnum er mjög horft til Ólafs Helga Stones, sýslumans í Árnessýslu og Óttars Proppé, borgarfulltrúa í Reykjavík, en hann mun að margra áliti hafa mjög byskubslegt útlit. Þá hafa ýmsir nefnt Ólínu Þorvarðardóttur, alþingismann, til sögunnar, en helsta tromp hennar er innistæðulaus frekjugangur og rautt fax.
Er það von mín og meirihluta landsmanna, að herra Ólafur Helgi láti til leiðast að gerast byskub Íslands, því á þessum viðsjárverðu tímum ríður á að kirkjan hafi þungavigtarmann í forsvari.
Gefur kost á sér í biskupskjöri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.1.2012 | 18:41
Og viðhenginu stungið á haus oní plómapott
Jújú, mikið rétt, sá gamli góði Gunnar I, Birgisson, fyrrum borgarstjóri í Kópavogi, hefur notað helgina til að hita upp bólið sitt fyrir Gwöðrýði vinkonu hans og hið álappalega viðhengi hennar, Ólaf Góða. Planið er, að þegar Gunnsi verður aftur orðin borgarstjóri og Gwöðrýður mjaltakerling hjá honum ætla þau í sameiningu að kæfa viðhengið í mjólkursýru innanum sláturkeppi og hrússpunga.
Auðvitað er þetta fjarska gott plan hjá þeim Gunnari og Gwöðrýði og áreiðanlega til mikilla hagsbóta fyrir Kópavogsbúa, enda bara óþrif og kjánaleg leiðindi af viðhenginu.
Sem sagt: Hinum últra róttæka kommonísta, Ólafi Góða, verður stungið á haus ofaní blómapott fyrir utan bæjarskrifstofu Kópavogs öðrum pólitískum spjátrungum og undanrennubesefum til viðvörunnar.
Reynt að útkljá mál í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2012 | 22:32
Hroðalegar tónlistarmisþyrmingar
Ég veit að ég tala fyrir munn flestra landsmanna, að Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld keyrði algjörleg um þverbak. Annað eins andskotans nágól held ég að hafi aldrei heyrst í gjörvallri sjónvarpssögu Íslands á einni kvöldstund.
Nú væri sök sér, að þessi ósköp væru glömruð og orguð í lítt þekktu neðanjarðarbyrgi þar sem enginn er nær. En að blása jafn óviðjafnanlegum óþverra eins og klóakholskeflu framan í landsmenn er ófeyrirgefanlegt.
Hvern fjandann á þetta að þýða?
Heldur Páll Magnússon að við séum að borga afnotagjald til Ríkisútvarpsins til þess að hann geti umgengist okkur eins og fífl og fávita í staðinn?
Andskotans ekkisens hlandpétraútfyrmi og íllyrmi geta þessir fjölmiðlapaurar verið.
Af öllu vondu í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld var þó framlag Magna Ásgeirssonar langverst: Sjá þennan volaða manngarm liggjandi argandi og kveinandi á hnjánum í einum kegng, eins og verið væri að urga með vírbusta í innýflunum áhonum, er einhver hryllilegasta upplifun sem nokkur maður getur upplifað. Þar var sannalega um að ræða mestu og hroðalegustu tónlistarmisþyrmingu Íslandssögunnar. Og svo kemur til greina að senda þessa eyðileggjandi tónmengun í söngkeppni sem send er út um víða veröld! Þvílík og önnur eins niðurlæging, smekkleysa og guðlast verður ekki fundin á byggðu bóli, - sem betur fer myndi margur segja.
Með svona áframhaldi verða allir Íslendingar fluttir til Noregs fyrir næstu áramót og enginn eftir á Íslandi nema nokkrar pólskar eftirlegukindur sem ekki vóru með á nótunum.
Þrjú lög komust áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
25.1.2012 | 08:08
Moldryk og blekkingarspil málaliða auðvaldsins
Það er engum vafa undirorpið að VG undir forystu Steingríms J. og Álfheiðar hefur enganveginn tekist á við Hrunið, aðeins afleiðingar þess sen snúa að endurreisn fjármálafyrirtækja og annarra auðvaldshelgidóma í þeim dúr. Aftur á móti hefur enginn heyrt Steingrím og Álfheiði minnast á nauðsyn þess að bjarga heimilum landsins sem fóru flatt á Hruninu. Þessi tvo vesalmenni, ásamt búrtíkum sínum og kratastóðinu í Samfylkingunni, er sannkallað íhald og auðvaldsþjónar í hvívetna og ég efast um að sjálft Erkiíhaldið hefði gert betur í að hygla auðvaldinu ef það hefði verið við völd.
Því kom dálítið furðuleg afstaða Ögmundar og Guðfríðar Lilju í Gjeirsmálinu eins og himnasending fyrir svikula foringja ríkisstjórnarinnar, sem hafa séð sér leik á borði að þyrla upp moldvirði sem beint hefur augum almennings um stund frá þeirra eigin svikum og skepnuskap.
En eitt er víst: Málarekstur gegn Gjeir Haaarde fyrir Landsdómi, er auðvitað ekkert uppgjör eitt og sér við Hrunið, sérstaklega í ljósi þess að svokölluð vinstristjórn hefur í engu gert upp við Hrunið að öðru leyti. Rannsóknarskýrsla Alþingis og embætti sérstaks saksóknara eru ekki verk núverandi ríksstjórnar, svo ekki geta Jóhanna og Steingrímur slegið sér upp á þeim atriðum varðandi uppgjör á Hruninu.
Stál í stál á VG-fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 49
- Sl. sólarhring: 124
- Sl. viku: 207
- Frá upphafi: 1539490
Annað
- Innlit í dag: 44
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 44
- IP-tölur í dag: 43
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007