Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2018
13.1.2018 | 21:07
Sjúkdómseinkennin voru ofuráhugi á skriðuföllum
Þegar Ólafur bóndi varð galinn lýstu sjúkdómseinkennin sér í ofuráhuga á skriðuföllum af öllu tagi. Hann hlustaði grant eftir fréttum af skriðuföllum og var iðulega mættur á vettvang svo fljótt sem auðið var til að flækjast fyrir björgunarmönnum og halda þeim óheilbrigðan selskap miðað við aðstæður. En heldur þókti þó skörin færast upp í bekkinn þegar Ólafur bóndi varð so gúgú og gaga, að hann fór að berjast við að framkalla snjóflóð og önnur skriðuföll með skelfilegum afleiðingum.
Einn snjóavetur bar vel í veiði með snjóflóð í hreppnum hans Ólafs og hann kom hræðilegri snjódyngu af stað langt uppi í brattri hlíð; það snjóflóð hreif með sér tvo bæi ásamt með gripahúsum. Um sumarið sprengdi hann drang nokkurn, sem staðsettur var í hamrabelti, með þeim afleiðingum að helmingurinn af hamrabeltinu varð laust og hrundi með ógnarhraða yfir þjóðveginn og varð mönnum og skepnum að bana og eyðilagði fjórar bifreiðar, þar af eina sextíumanna áætlunarrútu. Efir þetta afrek lagðist Ólafur bóndi á fjöll, því að honum læddist grunur að honum mundir ekki eftirleiðis verða vært í byggð.
Um haustið tóku svo bændur, sveitungar Ólafs bónda, sig til og hugðust ná hinum uppvaxandi skriðuskelfi dauðum eða lifandi. Þeir komust svo í kast við hinn geggjaða bónda í svokallaðri Dauðahyrnu, sem skagar í meir en 1000 meðtra hæð út úr fjallgarðinum Garra. Og víst er um það, að Ólafur bóndi var seinunninn, því þegar bændur gáfust upp var hann búinn að fella rúmlega helming þeirra með skotvopnum sínu, sem samanstóðu af einu riffilræxni en þó aðallega grjóti sem hann velti ósmeykur fram af brúnum og lét gossa beint í skallann á köllunum, sem komu aungvum vörnum við. Síðan þá hafa menn þóst verða varir við skriðugerð Ólafs bónda, sem orðinn er fullkominn útilegumaður, og hefir byggð nú öll lagst af í sveit Ólafs og sveitunga hans.
![]() |
Bjuggust ekki við slíkum skriðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Æ, ætlar nú Samfylkingin að fara að standa í framboðsstússi einu sinni enn. Hvað á sona helvítis fíflagangur að þýða? Ég og fleiri vorum að gera okkur vonir um, að þeir sem haldið hafa Samfylkingunni úti væru búnir að koma auga á hversu skelfilega tilgangslaust það er að halda halda þessu vemmilega flokksóféti að fólki. En nei, bölvuð hænsnin ætla að reyna eins ferðina enn, þó svo að í hverri ferð verði flokkstuskan til háborinnar skammar og krataeðlið æ ómerkilegra í hugum hugsandi einstaklinga.
Og hvaða frambjóðendur þykist krataþýið hafa til að keppa um sæti á framboðslistum? Jú, væntanlega gefa Dagur og litli ljóti skuggabaldurinn kost á sér, en varla fleiri. Sennilega verður Samfylkingin að fá lánaða frambjóðendur frá flugvallavinum, sem ekki eiga í hús að venda eftir að gamla Framsóknarmaddaman kastaði þeim út. Já, og Gwöðfenna og Sveinbjörg eru aldeilis alveg fullgóðar á lista með Degi og þeim ljóta. Verst er þó að læknavísindunum hefir ekki enn tekist að finna upp nægilega gott sprautumeðal við kratavírusnum. Gottfreð læknir reyndi sína eigin efnablöndu á nokkra krata, sem komu á stofuna til hans. Það var ágæt blanda og virkaði býsna vel; en því miður dóu allir kratarnir sem tilraunin var gerð á tveimur og þremur dögum eftir að hafa fengið sprautuna. Hinsvegar virkaði efnið hans Gottfreðs talsvert betur á fólk með krónískan framsóknarvírus: Tíu prósent fengu bót meina sinna en afgangurinn varð geggjaður og er geymdur í búrum inni á Kleppi.
Nú síðast er kominn upp þungur rymtur þess efnis, að það sé Samfylkingin sem standi fyrir þeim hinum óútskýrðu mannahægðum á gangbrautum og í undirgöngum í Grafarvogi. Leikurinn er að sögn gerður til þess, að þegar Grafarvogsbúar verða farir að bera sig nógu aumlega undan skítastandinu, þá komi Dagur sjálfur og sá litli ljóti í eigin persónu um miðjan dag, með herskara af fréttamönnum og myndavélum á eftir sér, og hreinsi upp hægðirnar og sýni þar með borgarbúum í eitt skipti fyrir öll, að ef þeir nái ekki kjöri í borgarstjórn í vor þá muni Sjálfstæðisflokkurinn fylla borgina af hægðum og rottum so að hvurgi verði þverfótað um innan borgarmarkanna.
Meðfylgjandi mynd er af samfylkingarstúlku við iðju sína í Grafarvogi.
![]() |
Samfylkingin með flokksval í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.1.2018 | 19:16
Grunuð um hægðahryðjuverk í Grafarvogi
Ekki er ýkja langt síðan hrapparnir Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður sammæltust um að fara inn í hús náunga síns að næturþeli og kúka þar báðir á elhúsgólfið. Þegar náunginn kom á fætur um morguninn ærðist hann þegar hann gekk fram á kúkana á eldhúsgólfinu. Þetta þókti þeim Vondulyktinni ákaflega spennandi og fóru þeir upp úr þessu að gera sér sona skítverk sér að leik. Og einusinni komust þeir félagar í hann krappann við þessa þokkaiðju sína; þá kom húsbóndinn á heimilinu að þeim á hækjum sínum og hugðist myrða þá er honum varð ljóst hvað þessir andstyggilegu óboðnu gestir voru að bauka. Þá stukku Vondalyktin og Handreðurinn út um eldhúsgluggann og fengu lífi sínu borgið.
Nú, þegar fréttir berast af mannaskítshrúgum með reglulegu millibili í undirgöngum í Grafarvogi, er ekki örgrannt um að grunur vakni í þá veru, að Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður séu aftur komnir á kreik, og ekki ólíklegt að Máría Borgargagn hafi slegist í hópinn. Frú Ingveldi var að vonum mjög brugðið er hún frétti af mannakukksveislunni í Grafavogi, því hún veit sem er, að Vondalyktin, Handreðurinn og Borgargagnið eru réttdræp ef upp um þau kemst. Og satt að segja finnst frú Ingveldi ansi óviðfeldin tilhugsun að þessir hennar kæru vinir verði hengdir eins og rottur fyrir að ganga örna sinna á gangstígum og í undirgöngum. Þegar hún gekk á þau vildu þau hvorki játa né neita og Vondalyktin glotti meira að segja djöfullega við það tækifæri.
En þó að skítverk af þessu tagi, ein og sér, séu harðla einkennileg, þá er hitt þó eilítið einkennilegra, að dóninn, eða dónarnir, gangi um með alla vasa fulla af notuðum salernispappír og dreifi snifsunum, öllum útötuðum, hist og her þar sem þeir eiga leið um. Frú Ingveldur trúir vinkonu sinni, Máríu Borgargagni, vel til að stunda þá ósiðlegu og ógeðslegu iðju að lauma útsvínuðum skeinisblöðum hér og þar til að hrella saklausa borgara. Og frú Ingveldur er að komast á fremsta hlunn með að láta lóga vinum sínum, ef í ljós kemur að þau séu völd að skítahryðjuverkunum í Grafarvogi.
![]() |
Virðist nota göng sem klósett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2018 | 18:36
Eins og gæsastegg
Þar eð Ásdís Hjálmardóttir er vel af manni hefði hún auðvitað átt að leyfa sér þann munað, að taka helvítis nuddpervertinn og snúa hann úr hálsliðnum eins og gæsastegg. Það hefði til dæmis frú Ingveldur gert í hennar sporum. Hér áður fyrr á árunum var frú Ingveldur gríðarlegur íþróttagarpur, evrópumeistari í sleggjukasti og kringlukasti, svo fátt eitt sé nefnt, þar til hún var svipt öllum titlum og dæmd í ævilangt íþróttabann vegna óíþróttamannslegrar hegðunnar og neyslu ólöglegra efna.
Ekki svo að skilja, að frú Ingveldur hafi ekki komist í kast við pervertíska sjúkraþjálfara og nuddara. Hún hefir meðal annars sagt svo frá, að einhverju sinni hafi groddalegt nuddaragerpi, hvers kyns var ósvíst, gerst afar nærgöngult og það svo að um þverbak keyrði að mati frú Ingveldar. Þetta nuddarasvín var borið út í sjúkrabíl, sem ók því með hraði á slysavarðstofu. Stuttu síðar fór frú Ingveldur í eilífðar keppnis- og æfingabann. Hún vill meina að það hafa verið samsæri aumingja, sem ekki hafi þolað kjarnorkukvendi sem sló öllum kalladjöflunum við á íþróttavellinum.
En hvað sem öðru líður, þá slapp bölvaður pervertinn, sem misbauð blygðunarkennd Ásdísar, helst til vel frá óþokkarbragði sínu. Ekki hefði nokkur áfellst Ásdísi þó hún hefði kastað spjótinu í gegnum mannfjandann, eða, eins og áður segir, snúið hann úr hálsliðnum eins og gæsastegg.
![]() |
Nuddarinn gekk of langt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2018 | 22:32
Ferð Kolbeins til kvensjúkdómalæknisins
Á sínum tíma olli það frú Ingveldi heilmiklum heilabrotum hvernig í andskotanum gæti staðið á því að Kolbeinn eiginmaður hennar Kolbeinsson mældist vanfær eftir að hafa mígið á einhverskonar óléttuprófspinna. Við endurtekningu kom aftur sama niðurstaða og þá fór frú Ingveldur með helvískan kallgepilinn til kvensjúkdómalæknis til að fá botn í þetta óhuggulega mál. Nú, kvensjúkdómalæknirinn gerði sig sérstaklega alvarlegan í andlitinu meðan hann skoðaði Kolbein, en frú Ingveldur sat á stóli og fylgdist gaumgæfilega með rannsókninni. Þetta var mjög vel af sér vikið hjá lækninum, því sannast sagna var hann að springa úr hlátri allan tíman meðan hann skoðaði sjúklinginn og spjallaði við hann. Að lokum kvað kvensjúkdómalækninirnn upp þann úrskurð, að hér væri um svo sjaldgæft tilfelli að ræða, að hann sæi sig nauðbeigðan til að senda Kolbein í tékk og eftirlit hjá Gottfreði Gottfreðssyni lækni.
Og Gottfreð Gottfreðsson var í fjarska góðu skapi þegar hann tók á móti þeim hjónum, frú Ingveldi og Kolbeini manni hennar. Enda var hann fljótur að úrskurða, etir að hafa potað löngutöng þéttingsfast í belginn á Kolbeini, að hann var vanfær, einhver andskoti hefði barnað hann og næsta vers væri að tilnefna hugsanlegan faðir að þunganum. Kolbeinn leit ráðaleysislega á eiginkonu sína og muldri upp, að honum kæmu helst í hug Brynjar Vondalykt, Óli Apaköttur og Indriði Hnadreður, en sá hængur væri samt á, að nefndir heiðursmenn væru allir ófrjóir. En Gottfreð sagði Kolbeini að leysa ofan um sig og leggjast á magann, það væri nauðsynlegt að kíkja ögn betur á herlegheitin.
Eftir að hafa rýnt stíft inn í iður Kolbeins, sagði Gottfreð læknir og glotti við tönn, að mikið mætti vera ef Kolbeinn væri ekki hvolpafullur. - Ja, hvur djöfullinn sjálfur, varð frú Ingveldi að orði, en Kolbeinn rak upp hrygluvæl. - Það þýðir ekkert að væla, Kolbeinsrass, sagði Gottfreð, - þú mátt þakka fyrir að hafa ekki fengið hundaæði líka, bölvaður umskiptingurinn þinn. Frú Ingveldur stóð upp af stólnum og steytti hnefann framan í Gottfreð og heimtaði fóstureyðingu. En læknirinn svaraði því til, að þá yrði hún að tala við dýralækni. Lengri varð þessi læknisheimsókn ekki, því Gottfreð mátti taka til fótanna undan frú Ingveldi, sem komin var í manndrápsham. En Kolbeinn, auminginn sá arni, dró upp um sig brækurnar og spennti beltið.
![]() |
Fá afslátt fyrir þvagblauta auglýsingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2018 | 19:04
Og verður það að teljast hin mesta Guðs-blessun
Þegar leiðtogakjör fer fram ber að tryggja, að einungis fólk með leiðtogahæfileika séu í kjöri. Þessa gullvægu reglu brutu sjálfstæðismenn í Reykjavík um leið og þeir tilkynntu hvaða persónur verða í kjöri í ,,leiðtogakjörinu" sem þeir kalla svo. Að vísu eru fimm einstaklingar í kjöri, sem út af fyrir sig er gott og blessað, ef ekki væri sá hængur á, að allir eru þessir fimm frambjóðendur svo innilega lausir við leiðtogahæfileika að lengra verður ekki komist í þá veru. Þar með er ljóst að ,,leiðtogakjör" Sjálfstæðisflokksins er andvana fætt og þegar komið undir græna torfu. Það horfir því dauflega fyrir Stjálfstæðisflokknum í Reykjavík, fylgið komið niður í 10-12% og á aðeins eftir að færast enn neðar. Þegar við bætist að borgarstjórnarlisti þessa fornfræga flokks hefir fyrir leiðtoga einhvern náunga sem ekki hefir snefil að leiðtogahæfileikum er hætt við að kjörfylgið verði vel fyrir neðan svokallað pilsnerfylgi.
Í gær var vitað um þrjár gufur úr Gufudalssveit Sjálfstæðisflokksins sem ætluðu að gefa kost á sér til leiðtoga, og í dag bættust tveir áttaviltir gufustrókar við, þannig að þegar framboðsfrestur rann út, rann upp fyrir mönnum að það voru hvorki fleiri né færri en fimm jókerar í spilunum. Því er ljóst að leiðtogakjör Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórarkosninga í Reykjavík næsta vor verður brjóstumkennanlegur skrípaleikur. Þess vegna væri best fyrir margnefndan Sjálfstæðisflokk að pakka saman og láta sig hverfa af sviðinu, orðalaust.
En hvernig skal standa á því, að fimm hæfileikavana einstaklingar skuli láta etja sér út í leiðtogaframboð? Eru einhverjir illa artaðir spaugarar að gera gys að þeim með því að hvetja þá í framboð? Hvernig mun þjóðin taka því að verið sé að spila með fimm poletisk grey fyrir framan nefið á henni? Að vísu kunna þessi fimm flesta frasana úr Valhöll og hafa tamið sér veruleikafirrt orðbragð gráðugra frjálshyggjumanna. En í þetta sinn mun talsmáti á þeim nótum skila litlum árangri, því bæði er þjóðin búin að fá ógeð á valhallarfrösum og moggalýgi sem og spjátrungslegum rindilmennum, sem eru ámóta innihaldsríkir og tóm jakkaföt. Þar með eru öll sund tryggilega fyrirfram lokuð fyrir Sjálfstæðisflokkinn að komast til valda í Reykjavík, og verður það að teljast hin mesta Guðs-blessun.
![]() |
Fimm framboð bárust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2018 | 20:42
14 sjálfstæðismenn smána Akureyri
Ekki eru þeir vandir að virðingu sinni Akureyringarnir þetta árið. Heil 14 stykki af tegundinni gefa kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins þar í bæ! Heil 14 stykki! En þegar málið er ígrundað nánar, kemur auðvitað í ljós, að þessi 14 hljóta að vera utanbæjarmenn, ekki raunverulegir Akureyringar. Hvernig í ósköpunum dettur þessu fólki svo í hug að svívirða Akureyri og gjöra lítið úr Eyjafirði með því að þykjast vilja vera í framboði fyrir annan eins hóp og Sjálfstæðisflokksinn. Sem betur fer rann framboðsfrestur út í gær, svo lítil hætta er á að fleiri utanbæjarmenn sláist í hópinn með þessum 14.
Einhverju sinni vóru Akureyringar svo léttir á bárunni, að þeim kom til hugar, í fullri alvöru, að banna Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og gjöra hann brottrækan úr öllum Eyjafirði. En so féll loftsteinn beint ofan í hausinn á frú nokkurri á Svalbarðsströnd og þá gleymdu Akureyringar hugsjón sinni og fóru allir að leita að frúnni, sem fannst aldrei, því loftsteinninn flatti hana svo rækileg út að hún var óþekkjanleg upp frá því. Mörgum árum síðar, þegar Akureyringar voru minntir á að þeir hefðu ætlað að eyða Sjálfstæðisflokknum, brugðust þeir reiðir við og sögðu að einhver helvítis fyllibytta úr Reykjavík heði logið þessu upp á þá. Og þegar minnst var á frúnna á Svalbarðsströnd og lofsteininn, þá mundu Akureyringar akkúrat ekki neitt og kváðust ekki skyldugir til að svara svívirðingum og dáraskap í þeirra garð.
Nú á eftir að koma á daginn hvernig Akureyringar bregðast við jafn válegum tíðindum og þessu 14 manna framboði Sjálfstæðisflokksins. Munu þeir láta 14 utanbæjarfugla komast upp með að koma óafturkræfu óorði á höfuðstað Norðurlands? Taka norðanmenn máske á sig rögg og sópa fjórtánmenningunum á haf út? Eða niður í klóakið eins og hvurri annarri nagdýraplágu? Eða yfirtaka hin fjórtán fræknu Akureyri og breyta henni í eina grængolandi klámbúllu?
Já, drengir mínir, það eru spennandi tímar framundan, eins og Thorgerður Katrín segir stundum þegar oflætisgállinn er á henni. Og aungvu að treysta, enn sem komið er.
![]() |
14 á lista Sjálfstæðisflokks á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2018 | 18:19
Það eru erfiðir tímar ...
Þá er komið upp úr dúrnum, að herra E. Arnalds vill endilega leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík beint á næsta ljósastaur.
Þessi einkennilega ákvörðun Eyþórs kemur beint í kjölfar álits frú Ingveldar, sem dæmdi Eyþór gjörsamlega óhæfan til borgarstjóraembættis í Reykjavík. Að fara þannig í blóra við vilja og dóm frú Ingveldar er bein ávísun á hlálegar ófarir í árferði eins og nú ríkir, því vitað er að kjósendur í Reyjkavík brenna í skinninu eftir að fá að rassskella Sjálfstæðisflokkinn einusinni enni í borgarstjórnarkosningum.
Tímarnir eru erfiðir og leið Sjálfstæðisflokksins liggur hér eftir aðeins niður á við. Fólk er víst, upp til hópa, búið að fá yfir sig nóg af þessum andskotans krimmasamtökum og eiga þá ósk heitasta þurfa aldrei að heyra nafn Sjálfstæðisflokksins nefnt á nafn meir.
Þekkið þið hann Giljagaur,
greyið sem ók á ljósastaur?
Hann hyggur í raun og verunni,
að það sé saur í perunni.
![]() |
Eyþór vill leiða í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.1.2018 | 17:56
Skyldmenni O.G. Hansen
Mikilvægast er þó að velta því upp hvort ekki sé rétt og affarasælast að Sjálfstæðisflokkurinn verði aftengdur öllu dómsvaldi, dómararáðningum og fyrirkomulagi dómskerfisins. Þar af leiðandi ætti að festa í stjórnarskrá, að ekki komi til mála að Sjálfstæðisflokkurinn og handlangarar hans komi nálægt dómsmálum og sjálfstæðismaður geti aldrei gengt embætti dómsmálaráðherra eða setts dómsmálaráðherra. Hins vegar sé fullkomlega eðlilegt að dómskerfið dæmi sem flesta sjálfstæðismenn til hámarksrefsingar fyrir glæpi þeirra umfangsmikla.
Það kemur því eins og klóakdemba í andlit fólks, að settur dómsmálaráðherra, Guðlaugur Þór, steyti opinberlega görn út af reglum um veitingu embætta dómara. Hvað þessi apakattarlæti eiga að þýða af hálfu Guðlaugs má Fjandinn vita, en þetta rugl í manninum virðist vera einhverskonar sáluhjálparatriði fyrir hann, almenningur vill hinsvegar ekkert vita af þvílíku bænastagli af hálfu setts dómsmálaráðherra.
En mikið minnir orðalagið ,,settur dómsmálaráðherra" mikið á O.G. Hansen, sem um skeið var settur sýslumaður í Öldurdal. Það er hinsvegar hlutverk mannfræðinga að rannsaka skyldleika G.Þ. Þórðarsonar og O.G. Hansen og líkindi þeirra við Bör Börson kaupmanns í sjón og reynd.
![]() |
Gagnrýnir dómnefnd harðlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2018 | 17:16
Og hún lagði fyrir hann próf
Því meira líkur sem verða á framboði hr. E. Arnald, þeim mun meiri hlátur setur að kjósendum í Reykjavík. Þetta gæti sem sé endað með því að Sjálfstæðisflokkurinn, hr. Arnalds og allt það lið verður híað niður með hlátrasköllum, jafnvel fyrir kjördag í vor. Þó að Dagur borgarstjóri sé allt að því yfirnáttúrlega leiðinlegur, kolómögulegur og án nikkurs kjörþokka, þá segja kjósendur hann mestu hátíð miðað við grýlurnar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að máta við borgarstjórastólinn; og þegar sjallagarmarnir prufuðu að setja Eyþórinn Arnalds inn í stólsjöfnuna sprungu kjósendur hreinlega úr hlátri.
Fyrir skömmu boðaði frú Ingveldur hr. Arnalds á sinn fund til að kanna hvort hann væri borgarstjórahæfur. Því miður frestaðist fundurinn um sólarhring, því hugsanlegu borgarstjóraefni varð það á á leið sinn til frú Ingveldar að keyra niður ljósastaur. En loks komst þó piltur í prófið hjá frú Ingveldi og var býsna borubrattur fyrst í stað. Svo fór að kárna gamanið þegar frú Ingveldur bauð borgarstjórnarefninu að gyrða niður um sig og setjast á kopp, sem frú Ingveldur hafði komið fyrir á miðju elhúsgólfinu. Þegar drengurinn var sestur á koppinn, sgaði frú Ingveldur -Kukk-kukk, og átti við að nú ætti hann að verpa í koppinn. Til að gera lengri sögu stutta, þá fór allt í handaskolum hjá hr. Arnalds á næturgagninu, hann missti jafnvægið, koppurinn fór á hliðina og hann sjálfur veltist um á gólfinu eins og blautkálfur í fjósflór. Þegar þarna var komið sögu, skipaði frú Ingveldur Brynjari Vondulykt og Indriða Handreði, sem vóru prófvottar, að kasta borgarstjóraefninu öfugu út, troða honum helst ofan í sorptunnuna.
Með hverjum degi sem líður héðan í frá verður útlitið svartara og svartara hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Sumir málsmetandi flokksmenn eru þegar orðnir svo örvæntingarfullir, að þeir eru farnir í fullri alvöru að velta fyrir sér örþrifaráðinu að tefla Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fram sem borgarstjóraefni. Aðrir eru þeirrar skoðunnar að ekkert þýði að tefla Hannesi fram, það væri bara til að skemmta Skrattanum; betra væri að freista þess að vekja einhvern dauðan íhaldskurf upp frá dauðum og láta hann bjóða sig fram. Þeir hafa svo sem reynt uppvakningu áður þeir sjálfstæðismenn, en það fór nú sona og sona; í stað þess að fá upp mikla íhaldskempu fengu þeir margdæmdan glæpamann í fangið, sem umsvifalaust gerðist fylgja helstu framámanna Sjálfstæðisflokksins.
![]() |
Vaxandi líkur á framboði Eyþórs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 1546286
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007