Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2020
23.2.2020 | 21:16
Nákvæm lýsing á afkvæmum Sjálfstæðisflokksins
Sjónvarpsþátturinn ,,Útrás" er nákvæm lýsing á afkvæmum Sjálfstæðisflokksins og öllum þeim ósköpum sem þau hafa látið af þér leiða frá því á tíunda áratug síðustu aldar og til dagsins í dag. Þó að þátturinn sé norskur, þá eru höfundar hans mjög vel kunnugir íslenskum útrásarvíkingum, kvótagreifum og öðrum mikilsmetnum Sjálfstæðismönnum á Íslandi, enda er þáttasyrpan beinlínis ljósrit af þeim skörfum. Reyndar ættu þættir þessir að heita: Allt sem þú villt vita um íslenska útrásarvíkinga og Sjálfstæðisflokkinn.
Þau sátu bergnumin yfir þessu sjónvarpsefni þau frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra vinir. Og það mátt heyra þau tuldra af og til: Hvernig á andskotanum komust þeir að þessu? Það átti ekki nokkur maður að vita þetta. Það hefir eitthvert helvítið kjaftað frá. Sá skal nú fá að finna fyrir því; hann verður hogginn eins og hænsni og látinn hlaupa hauslaus út um víðan völl. Brynjari Vondulykt leið afar illa á meðan hann meðtók þetta ófétislega sjónvarpsefni; nokkrum sinnum leið hann út af náfölur og féll í ómeginn og náði sér ekki á strik aftur fyrr en eftir rúmlega hálfa flösku brennivíns og slurk af kókaíni. Og Indriði Handreður skeit hreinlega í buxurnar undir einu atriðinu, hann kannaðist persónulega ofur vel við; þá barði frú Ingveldur hann og kastaði honum út og hljóp síðan um allt hús og úðaði híbýlailmi út spreybrúsum til að yfirgnæfa pestina af Handreðnum.
Og víst er um það, að bæði Bjarniben og Katrín Stenngrimmsdóttir lögðust í rúmið í viku eftir að hafa horft á Útrásarþættina norsku um íslensku útrásarsjálfstæðismennina. Af hverju þau lögðust er mönnum hulið því bæði eru þekkt fyrir að fá aldrei móral út af nokkrum sköpuðum hlut. Einhver mjög háfleygur og menntaður náungi lagði fram þá kenningu, að þau hefðu lagst í bælið af því þau væru ekki með öllu siðblind, en fólk hló bara að þeirri tilgátu og sópuðu henni óðar út af borðinu og eins og hvurri annarri fásinnu og rugli. Nú stendur til af hálfu ríkisstjórnarinnar að banna með lögum óþverraþættina um útrásarsjálfstæðismennina og ennfremur allt annað efni á sömu nótum.
Nýtt siðblinduviðmið í sjónvarpi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2020 | 18:16
Nýtur stuðnings alls þess versta í íslensku samfélagi, en frú Ingveldur er með á nótunum
Auðvitað verður Bjarniben áfram formaður Sjálfstæðisflokksins, enda nýtur hann stuðnings alls þess sem verst er í íslensku samfélagi. Frú Ingveldur segir við hvurn mann að hún elski Bjarnaben langt umfram eiginmann sinn, Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann. Þá lýkur frú Ingveldur miklu lofsorði á Stjána Samherja Júlíusson, segir hann hann sé skohh maður með púng, ólíkt ýmsum öðrum, og að frú Andersen sé yfirvegað dyggðaljós og fyrirmynd allra efrimillistéttarfémínískra kvenna. Vér tökum öll undir orð frú Ingveldar í þögulli virðinu.
Hinsvegar hefir furðulítið borið á kvenmenninu Máríu Borgargagni síðan bóndinn í Framfarasveit sigaði á hana hundum sínum grimmum, en þeir eru blóðhundar nema einn sem er rottuhundur og það var hann sem var næstum búinn að drepa Borgargagnið. Nú, Máría fékk áfallastreituröskun og í framhaldi af því áfallahjálp og nú síðast hafði einhver fúskarinn, sem fúskar með andlega bágborið fólk, fengið hana til meðferðar. Meðan þessu hefir fram farið hefir eiginmaður Borgargagnsins, Indriði Handreður, vaðið um eins og landafjandi og hótað hvurjum manni og hvurri konu soleiðis nauðgun að allt fari á tjá og tundur í meltingarfærum og meltingarvegi þeirra.
Svo sem sjá má, er komin upplausn í félagahóp frú Ingveldar og því kemur yfirlýsing Bjarnaben um að vera áfram formenni Sjálfstæðisflokksins eins og himnasending og gjörir frú Ingveldi kleyft að endurskipuleggja helgarsamkvæmi sín í anda frægra skipulagðra glæpasamtaka. Reyndar hafði frú Ingveldur á orði í morgun, að Brynjar Vondalykt væri bölvuð helvítis rotta og taðgemlingur og réttast væri að skrubba kjaftinn á honum upp úr vítissóda, sem og afturendann á kvikindinu. Fólki er hulið hvað Vondalyktin hefir af sér gert til að verðskulda jafn afgerandi ummæli úr munni frú Ingveldar, en víst að að eitthvert óþverraverk hefir maðurinn framið. Sumir segja að hann hafi enn einu sinni lagst með Kolbeini, sem kona hann væri, og frú Ingveldur hafi komið að djöflunum við þokkalega iðju sína.
Vill halda áfram að leiða Sjálfstæðisflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2020 | 12:41
Farið að falla á efrimillistéttarfémínístann; úrkynjað og fúlt undanrennugutl er ógeð
Ósköp hreint er nú farið að falla á efrimillistéttarfémínístann Katrínu Jakobsdóttur. Hún er komin í þau spor, þó hún geri sér ekki grein fyrir því, að vera farin að lifa sjálfa sig. Það rennur nú upp fyrir æ fleirum, að efrimillistéttarfémínísminn er ekki þess virði að nokkur lifandi maður sé að eltast við þessháttar öfgagrillur í betri stofum borgarastéttarinnar. Svo snobbar forsætisráðherra Bjarnaben og auðvaldsins niður fyrir sig með því að þakka Eflingu fyrir kjarabaráttu sína til að reyna að telja fólki trú um að hún styðji umrædda kjarabaráttu, sem hún gerir auðvitað alls ekki.
Hinsvegar eru aungvar spurnir að því að forsætisráðherra hafa þakkað Kveik og Stundinni rannsókn þeirra sem leiddi til spennandi umfjöllunar um Samherjana, sem svo sannarlega eru samherjar Katrínar og Stenngrims Johoð. Nei, þessháttar flumbrugangur fjölmiðlunga er ekki skref í ,,jafnréttisátt" í huga Katrínar og rímar ekki við efrimillistéttarfémínísma hennar og borgarastéttarinnar, Bjarnaben og NATO.
Það leynir sér ekki að VG er á útleið í íslenskum stjórnmálum; úrkynjað og fúlt undanrennugutl er óaðlaðandi og gluggaskrautið sjálft er orðið snjáð, upplitað og rytjulegt og óþekkjanlegt frá Samherjanum Stenngrimi. Í næstum kosningum standa vonir manna til þess að þjóðin verði endanlega laust við þetta sérkennilega tilbrigði auðvaldspoletikurinnar.
Brýnt að leiðrétta kynjaskekkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2020 | 20:05
Manni gengur í steinsteypt bjarg
Þá er komið upp úr dúrnum að Manni á heima í stöplinum undir eirlíkneskjunni af honum Jóni sáluga Sigurðssyni frá Hrafnseyri. Það er svo sem allt í lagi, allavega fyrir mína parta, svo fremi að rúmt sé um Manna þarna inni. Í eina tíð var heilmikil trú á Íslandi að huldufólk og álfar ættu heima í klettaborgum og stökum stórum steinum á víðavangi. Og stundum kom fyrir, að krakkar, og í einstaka tilfelli fullorðnir, álpuðust inn í slík björg þá þau stóðu opin. Sumir komust út aftur við illan leik að nokkrum dögum liðnum, en aðrir skiluðu sér aldrei aftur og var mál manna að huldufólkið hefði hneppt þá í ánauð inni í steininum og etið hann að lokum, því huldufólki þykir mannasoðning afar ljúffeng.
Nú er öldin önnur, því nútímahulduálfum nægir ekki að lokka mennska menn inn í grjótkletta, heldur troða þeir þeim, í þessu tilfelli Manna, inn í steinsteyptan klump undir iljum Eir-Jóns forseta á Austurvelli. Hvort Manni á afturkvæmt úr steypudrjólanum verður framtíðin að leiða í ljós, en útlitið er dökkt og dökknar enn meir við hvern dag sem líður. Ekkert bendir til að ljós og hiti séu til staðar innan í stöplinum enda liggja aungvar rafurleiðslur eða hitiveitustokkar að Eir-Jóni. Um há-vetur er hætt við að sá sem þar býr frjósi einfaldlega í hel í næsta frosti, nema forslegi verði hellt ofaní hann.
Vissulega hefði verið betra fyrir Manna að vera sendur í sveit, - til dæmis til Ólafs bónda, sem er akkúrat sonarsonur Ólafs heitins bónda, þess hins sama og Snati hrinti fyrir björg. Ólafur bóndi hinn yngri, býr við góðan kost á erfðajörð sinni við hundarð ær, tvær kýr og fjóra hesta, konan heitir Guðsteina og hundurinn Snati er þar enn við lýði, afgamall en sérlega ern og tönnur hans jafn beittar og fyrir hálfri öld. Ólafur bóndi mundi náttúrlega búa um Manna í hrútakofanum hjá Snata, en hrútakofinn er ekki hrútakofi lengur heldur hundakofi. Og embætti Manna, fyrst í stað, verður, í hvaða veðri sem er, að bera vatn í skjólu úr læknum í fjárhúsin og fjósið til drykkjar fyrir ær og kýr. Það mun styrkja hann.
Maní á heima hér! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2020 | 18:45
Dagur er búinn að vera, bættur sé skaðinn, og aunginn Holuhjallinn meir
Jæja, þá er Dagur og hans fylgitungl búin að vera, bættur sé skaðinn. Nú er sem sé opinbert, það sem margir þrátt fyrir allt vissu, að Samfylkingin er á móti láglaunafólki, verkafólki og öreigum, sömuleiðis vill efrimillistéttarfémínístaflokkurinn VG ekkert af láglaunafólki vita, að ekki sé talað um viðrinisflokka á borð braskaravinina í Viðreisn og Pírata. Trúlega verða Dagur og Holuhjallinn knúðir til að segja af sér, ef ekki með tiltölulega góðu þá með illu. Það er ómögulegt að segja hvað Stenngrimur Johoð gerir við Líf, en sennilega fær hún að sulla áfram í ráðhúsinu, engum til gagns. Um Viðreisn og Pírata er ómögulegt að spá, því það fólk er ekki þekkt fyrir að vita á hvorum endanum það stendur.
Þegar frú Ingveldur var spurð um borgarstjórnarmeirihlutann þá svaraði hún þeirri spurningu að bragði með því að segja, að móðir sín og amma hefðu verið vanar að sópa nagdýraplágum út með strákústi elligar hrísvendi. Fleira hafði frú Ingveldur ekki um málið að segja. Máría Borgargagn frýjaði sig allri ábyrgð á borgarstjórn þar eð Framsóknarflokkurinn ætti ekki borgarfulltrúa. En frú Vigdís Hauksdóttir fór á kostum á borgarstjórnarfundinum í gærkveldi og skildi Dag, aumingjann svorna eftir, í valnum, hálfdauðan af skelfingu. En hún vill heldur ekkert með launahækkun til leikskólafólks að gera, ekki fremur en finngálknin óborganlegu í Sjálfstæðisflokknum. Það eru aldeilis kynleg númer og til einskis góðs líkleg.
Hitt er svo aftur alvarlega mál, að aftur og aftur hefir framkvæmdastjóri Eflingar, mannpeð sem aunginn hefir kosið til eins eða neins, verið dreginn til viðtals í útvörpum og sjónvörpunum í dag til að ræða stöðuna í kjaraslag Eflingar í leikskólum. Auðvitað á formaðurinn að svara fyrir málefni Eflingar á opinberum vettvangi, en ekki einhver náhvít vofa utan úr bæ, sem aldrei hefir komið út fyrir bómullarhjúp háskólalóðarinnar; þessháttar drengur á að vera ofan í skólatöskunni hennar Katrínar Jakobsdóttur en ekki að glamra um stöðuna í kjaramálum þegar aðrir heyra til; hann getur spjallað við sjálfan sig um þessháttar mál sem koma honum ekki við inni á klósetti heima hjá sér.
Vilja ekki horfast í augu við staðreyndir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2020 | 16:39
Ferðalag án erindis eða vitræns tilefnis fyrir morð fjár
Það held ég þessi endemi hafi átt erindi til Nýja Sjálands, eða hitt þá heldur. Getur það virkilega átt sér stað að ríkissjóður, sameiginlegur sjóður almennings, hafa borgað fyrir þessa fáránlegu endaleysum, sem virðist hafa átt sér stað í raun og veru? Ef svo er, þá er það smekkleysa af síðustu sort og sóðalegt og bíræfið bruðl með almannafé, ef ekki eitthvað annað og verra.
Ekki getur heldur verið að hin íslensku þingendemi hafi verið neinir aufúsugestir þarna hinumegin á jarðkringlunni. Fréttir hafa meira segja borist af því, að Nýsjálendingar hafi velt vöngum og grett sig þegar þeim var ljóst hvers kyns sending þetta var frá Íslandi. Sumir vildu snúa þessum kynlegu kvistum við á flugvellinum eins og óvelkomnum flóttamönnum og senda þá af hendi eitthvað út í buskann, en það var einmitt það sem þeir áttu að gera. Þess í stað fékk Stenngrimur Johoð að vaða um víðan völl á Nýja Sjálandi og grobba sig af Munchausenískri áráttu af afrek sín stórmerkileg uppi á Íslandi. En Nýsjálendingar héldu bara áfram að hrista höfuð sínu yfir vitleysunni sem vall eins og hlandforarelfa úr haughúsi.
Svo hypjuðu íslensku viðundrin sig burt af Nýja Sjálandi og heimamenn drógu fána að húni af feginleik yfir því að losna við þennan fjanda sem farið hafði um land þeirra með fettum og brettum, gorti og drýldni. Einhverjir þar syðra eru enn agndofa eftir að hafa leitt hina íslensku sendinefnd augum og hlýtt á boðskap hennar; það fólk telur eitthvað bogið við að þjóðþing fjarlægs lands geri út innantómar senditíkur, án erindis eða nokkurs vitræns tilefnis, og láti þær fljúga yfir hálfann hnöttinn fyrir morð fjár.
Steingrímur stýrði víkingaklappi á Nýja-Sjálandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2020 | 18:34
Yfirvofandi flótti og burtrekstur meirihluta borgarstjórnar
Á meðan Solveig hélt uppi fjörinu í troð- blindfullu Iðnó þar sem mun færri komust að en vildu, sátu Dagur, Líf og hinir snillingarnir náföl og skjálfandi í næsta húsi við Iðnó og dregið fyrir gluggana. Nú eru það ekki braggamál, Vigdís Hauks og önnur ferleg ófarnaðaratriði sem eru að ganga frá taugum og meltingarfærum Dags og kó, heldur hefir Efling bæst við með verkfallsaðgerðum. Svo er flokkurinn, sem Dagur er í og starfar fyrir, sagður jafnaðarmannaflokkur, en með síðustu og verstu atburðum er útséð með að nokkur trúi á þá jafnaðarmennsku lengur. Dagur er sem sé á útleið úr borgarstjórn og allt hans hyski, það fólk verður allt búið að segja af sér löngu fyrir næstu borgarstjórnarkosningar.
Fyrir nokkrum dögum síðan komst upp götustráka sem höfðu uppi ráðagerðir um að sitja fyrir Degi borgarstjóra þegar hann væri á leið til vinnu sinnar og henda honum í Reykjavíkurtjörn. Þessir vondu drengir höfðu enn fremur í hyggju að taka hryðjuverk sitt upp á band og deila því út um allar jarðir á netinu. Þá hefði skömm Dags orðið svo stór að hann hefði orðið að flýja land og biðja um hæli sem misheppnaður stjórnmálakálfur í Namibíu, en sem kunnugt er, þá eru Íslendingar afar vinsælir þar um slóðir.
Útlitið er sem sé svart í ráðhúsinu og yfir því vokir dimmt ský, ásamt með óheillastjörnu innan í sér. Dagarnir eru brátt taldir. Ósamkvæmnin, kæruleysið og spillingin liggur ljós fyrir og ekkert eftir annað en að stugga Degi, Líf og hinum meirihlutarössunum úr húsi og biðja þau vinsamlegast að láta aldrei sjá sig meir í ráðhúsinu eða nágrenni þess. Þá stendur til, að setja lögbann á Samfylkinguna varðandi notkun orðanna ,,jafnaðarflokkur", ,,jafnaðarmaður" og ,,jafnaðarstefna". Einnig verður Samfylkingunni með öllu bannað að kenna sig við ,,vinstri" og allar sósíalískar stefnur yfirleitt. En það verðu gaman þegar Efling, Solveig og leikskólakennararnir gera út af við meirihlutann í borgarstjórn og enn skemmtilegra að sjá garmana lufsast út eins og hálfrotaða svartfuglsunga.
Undanþágur undirstrika mikilvægið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2020 | 13:32
Þjófafélag á leið af þeim gráa yfir á þann svarta
Siðblinda fjárglæfraauðvaldið á Íslandi á náttúrlega ekki heima á neinum gráum lista yfir varhugaverðar spillingarþjóðir; Ísland á heima á kolsvörtum lista sem stafa eins og skipulögð bófasamtök. Á Íslandi búum við ekki í þjóðfélagi heldur forhertu þjófafélagi þar sem helstu íþróttir yfirstéttarinnar og auðvaldsins eru lýgi, svik, spilling, undirferli, græðgi, heimska og þjófnaður. Enda eru bankaránin á Íslandi í aðdraganda Hrunsins fræg um allan heim og Íslendingar taldir viðsjárverðir gripir, sem eru vísir til alls þegar péníngalegar smugur og glæpir eru annarsvegar.
Þegar frú Ingveldi bárust fréttir í morgun af áframhaldandi veru Íslands á ,,gráa listanum" hafði hún aungvar vöbblur á og hringdi í Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra allra Samherjanna, og veitti henni öflugt tiltal, hellti sér yfir hana og lét hana vita hvur frú Ingveldur er í raun og veru. Síðan hefir aunginn séð eða heyrt Katrínu þessa, því hún, að samtali loknu, skreið eins og blauður fressköttur undir rúm og heldur sig þar enn þegar þessar línur eru skrifaðar.
Og frú Ingveldur gerði meira, því morgunstund gefur gull í mund, og hafði upp á Bjarnaben og stúlkunni með langa nafnið sem aunginn man, og talaði svo hressilega yfir hausamótunum á þeim að þau grénjuðu og góluðu og veltu sér upp úr gólfinu við fætur frú Ingveldar. Það var aumkunarverð sjón. Þegar frú Ingveldur kom aftur til sína heima eftir að hafa haft endaskipti á fyrrgreindum ráðherradulum var henni eiginlega allri lokið, - í bili. Aldrei á sinni lífsfæddri ævi hefir hún þekkt aðrar eins liðleskjur í valdastólum stjórnarráðsins. Eftir að hafa setið skamma stund við eldhúsborðið heima hjá sér ígrundað ástandið, hringdi hún í aldavinkonu sína, Máríu Borgargagn og bað hana um að segja sér pornóískar klámsögur, - mega vera grófar, sagði hún. Og Borgargagnið tók við og flutti fræði sín af andagift og tilþrifum, sem henni eru svo eðlislæg.
Förum í fyrsta lagi af gráa listanum í október | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2020 | 12:09
Dásamleg frétt
Þetta er aldeilis dásamleg frétt. Það er ekki hægt að hugsa sér meira happ fyrir herlausa þjóð en að fá orrustuflugvél, og það fjórar, til að gæta okkar fyrir, - ja fyrir hverju? Það er nú það. Það er erfitt að koma auga á hvað svona fullkomin drápsvél með vængi á að verja okkur fyrir; ekki verja flýgildi af þessum toga okkur fyrir óveðrum, kínadrepsóttum eða græðgisbrjáluðum frjálshyggjuvörgum. En hátæknileg morðvopn eru nú einusinni sáluhjálparatriði heimsvaldasinna af auðvaldsættum og því tæknilegri þeim mun betri eru þau fyrir fábrotið vitundarlíf þessa fólks.
Ekki þarf að velkjast í vafa um hjartanlega og heilshugar gleði íslensku ríkisstjórnarinnar með að fá þessi fjögur fljúgandi drápstæki til að verja sig fyrir einhverju sem aunginn maður veit hvað er. Í því sambandi má búast við að Katrín okkar forsætisráðherra verði létt á fæti og reigi sig skælbrosandi aftur á bak eins og firrt unglingsgelgja með fullfermi af hormónum í rassinum, - sona eins og hún reigði sig framan í NATO forstjórann og frægt hefir orðið í heiminum. Og Gwuðlaugur a. utanríkisraðherra mun eflaust flissa eins og hvolpur þegar hann fær að stíga inn í orrustuþoturnar atarna.
Nú eru viðsjárverðir tímar hér innanlands og dylgjur með mönnum. Hart er vegið að ríkisstjórn, Alþingi og borgarstjórninni í Reykjavík og má lítið út af bera svo ekki skapist byltingarástand og í framhaldi af því verði ríkisstjórnin sett af og alþingismennin send heim og Dagur borgarstjóri flæmdur úr ráðhúsinu að rekinn á fjöll. Þegar svo er komið er gott að eiga góða að og eflaust mun jafnaðarmannafrömuðurinn og NATO-stjórinn frá Noregi, þessi sem Katrín okkar reigði sig framan í svo hún var næstum búin að brjóta sig á bak aftur og stórslasa sig, glaður senda orrustuþoturnar fimm á vettvang til að brenna á byltingarmenn og annan óþjóðaskríl og bjarga þar með okkar yndislegu og strangheiðarlegu, óspilltu og ólýgnu yfirstétt frá því að lenda utangarðs og daga þar uppi eins og hvurjir aðrir óregluhundar í sárafátækt og umkomuleysi.
Fjórar nýjar F-35-orrustuþotur til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2020 | 20:36
Því miður var Hálfdán Varðstjóri ekki á vakt
Vafalaust er það ekki mikið skemmtiefni fyrir lögregluprjóna að þurfa að hlaupa inn í hóp af brjáluðum slagsmálahundum og reyna að stilla til friðar. Hér áður og fyrr vóru lögregluprjónar sem hættu sér inn í þessháttar orrustu undatekningarlítið slegnir í rot strax og þvældust eftir það ekki fyrir bardagamönnunum. Í dag bera slagsmálahundarnir foreldrum sínum og uppeldisaðferðum þeirra andstyggilega ófagurt vitni, vægast sagt, um það segir fúkyrðaflaumur, bölv, ragn og klám í garð löggæslumanna sína ófögru sögu.
Því miður var Hálfdán Varðstjóri ekki á vakt í gærkveld, þegar óeirðaseggir hófu óeirðir og létu ófriðlega við lögreglu með óþverra munnsöfnuði og hnefasteytingum. Marga fræga viðureign hefir Hálfdán Varðstjóri átt við snaróð hundsspott á strætum úti og torgum. Fyrir mörgum árum féllu liðlega tuttugu trylltar unglingstuskur í valinn í einni svipan á Hallærisplaninu fyrir hnefum Hálfdáns, en múgurinn, sem taldi hundruðir þar á planinu lagði allur á flótta og sást ekki meir á þeim slóðum það kveldið. Í annað sin höfðu alkóhól- og eituróðir skítapésar lagt íbúð í Þingholunum undir sig og létu mjög dólgslega. Þeir höfðu meðferðis kvensniptir af lágmenningarstétt og allar með brókarsótt.
Inn í þetta hús vóð Hálfdán Varðstjóri einn síns liðs og bauð hústökuröftum upp á brattan dans. Skipti aungvum togum, að skríllinn réðst sem einn maður á Hálfdán og hugðist kála honum á augabragði. En það fór nú á annan veg, sem frægt hefir orðið. Fyrir utan húsið í Þingholtunum stóðu þrír hugdeigir lögregluprjónar vörð meðan Hálfdán gjörði innrás sína, og eitthvað var þarna af almennum borgurum og krakkaskröttum, sem að öllu eðlilega áttu að vera sofnuð í bælum sínum. Ekki leið heldur á löngu þar til tíðindi urðu, því fyrst kom kengslegt ungmenni svífandi út um glugga og lét ekki staðar numið fyrr en úti á miðju stræti, þá steinrotað. Svo komu þau hvert af öðru í loftköstum úr um dyr og glugga, skrækjandi eins og óargadýr. Að lokum keyrði Hálfdán Varðstjóri öxi ofan í höfuðið á einum þorparanum og klauf það niður í munnhol og hrundu jaxlarnir niður á gólfið sem eitt haglél. Þetta víg kvaðst Hálfdán hafa vegið í sjálfsvörn, því mannandskotinn hefði ætt að sér með eldhúskoll á lofti. Þjóðhátíðadaginn þar á eftir var Hálfdán Varðstjóri boðaður suður á Bessastaði hvar hann var sæmdur Stórriddarastórkrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir óeigingjörn störf og hetjudáðir til varnar almenningi í landinu.
Létu svívirðingum rigna yfir lögregluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.2.2020 kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 61
- Sl. sólarhring: 125
- Sl. viku: 219
- Frá upphafi: 1539502
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007