Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
15.11.2007 | 12:38
Bónus-Gummi fagnar og fagnar og fagnar
Auðvitað fagnar Gummi Marteins ,sveitungi minn, húsleit Samkeppniseftirlitsins í Bónus eins og hann hafi skorað úrslitamarkið í heimsmeistarakeppninni. Ekki er að efa, að þessi óforskammaða húsleit er fréttaflutningi Ríkisútvarpsins að kenna því ekki er við fréttaflutning Baugsmiðlana sð sakast því hann hefur enginn verið, að sjálfsögðu. Það er náttúrulega afleitt, að Bónusfeðgar og annað gott fólk af sama kalíberi, sem gert hafa meira fyrir láglaunafólk er öll verkalýðshreyfing heimsins samanlögð, skuli sæta slíkum kárínum af sínum eigin löndum. Og sannast hér hið fornkveðna, að gjarnan launar kálfur ofeldið með ofbeldi. Svo er bara að vona að snápar og snuðrarar Samkeppnisstofunuar finni ekki neitt misjafnt i bókum Bónusar og Krónu, því þá mun ljóst verða að markið sem Gummi Marteins skoraði við mikinn fögnuð var sjálfsmark.
Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Bónus og Krónunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2007 | 07:45
Ruslið á Alþingi
Það er svo sem góða gjalda vert að breyta vinnufyrirkomulagi á Alþingi, sérstaklega ef breytingarnar hafa í það í för með sér, að þingmenn eigi auðvelda með að sitja á rassinum í sínum sætum á þingfundum, en séu ekki sí-ráfandi um þinghúsið eins og vankaðir höfuðsóttargemlingar. En mest nauðsyn er þó að breyta þingmannahópnum verulega. Þegar sjónvarpið birtir myndskeið frá Alþingi í fréttatímum, þar sem myndavélin er látin líða yfir hjörðina og þannig vill til að þorri þingheims er á sínum stað, blasir við fremur ófögur sjón. Þá birtis fólki í einni sjónhending næsta einslitur hópur. Og það sem verra er: Furðustór hluti þessa hóps er fólk sem á ekkert erindi á Alþingi, eigingjarnir sérhagsmunaspjátrungar af báðum kynjum ríða þarna röftum eins og ekkert sé, staurblindir af sjáfhverfu og sjálfsánægju. Það er því nauðsynlegt að flokkarnir taki sér tak fyrir næstu alþingiskosningar, taki til í sínum ranni og reki ónytjungana og sjátrungana af höndum sér.
Betra Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2007 | 22:02
Íslendingur kaupir demant á milljarð
Það kvu vera gaman að eiga dýra demanta. Þeir sem slíkan grip hafa eignast segja, að ekkert hressingarlyf, að kókaíni og fimm stjörnu koníaki meðtöldu, geri mann jafn alsælan til sálar og líkama. Maður losni bókstaflega undan áþján tíma og rúms í þessari jarðneski leiðinda tilveru. Og engin hætta sé á timburmönnum eða öðrum fráhvörfum af vímunni sem þessháttar demantur færi manni. Ég er viss um, að sá er hreppti demantinn væna á milljarð króna á uppboði Sotheby´s er endanega sáluhólpinn frá eilífð til eilífðar. Reyndar er ekki gefið upp hvaða persóna nældi sér í hinn 84,37 karata hvíta demant. En mjög líklegt er að sá guðssonur sé frjálsborinn íslendingur, sem hafi verið á góðri leið með að yfirbugast af velgengni við rúllettuborð auðhyggjunar, en borgið lífi sínu, sálu sinni og framhaldslífi með því að leggja út milljarð fyrir lítinn stein úr hörðu efni, sem fljótt á litið líkist glerpjátri eða plastglingri. Nú er bara að vona, að við sjáum einhverjum af okkar viðkunnanlegu og ástsælu burgeisum bregða fyrir á förnum vegi með miljarðsdemantinn góða dinglandi í gullkeðju um hálsinn.
Dýr demantur seldur á uppboði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2007 | 12:47
Ráðherra hræðir börn
Það hefur verið þrifalegur fjandi fyrir blessuð börnin að fá Einsa Kr. sjávarútvegsráðherra í heimókn eins og elliæran miðaldaklerk í messuhugleiðingum. Það góða við þessa heimsókn er ,að nú vita börnin hvernig strengjabrúða LÍÚ-gengisins lítur út. Þó að það standi ekki í fréttinni, er hætt við ungmennin hafi orðið verulega skelkuð þegar gijagaurinn úr Bolungarvík hóf upp raust sína og hótaði að senda þau öll sem eitt til sjós á galeiður kvótafíklana og láta þau læra brottkast og framhjálöndun og aðra nytsama iðju. Hæstum hæðum náði þó sjávarútvegsráðherra, þegar hann bar á borð fyrir sakleysingjana að ,,sjávarútvegurinn væri skohh undirstöðuatvinnugrein íslendinga," án þess að minnast einu orði á illa launaða erfiðisvinnu í fiskvinnsluhúsum, hvað þá hann gerði glæpsamegu arðráni LÍÚ-stóðsins skil; segði þeim frá ríkisvöðum ruddaskap kvótaleigu og einbeittum brotum húsbænda sinna á kjarasamningum sjómanna. En heim fóru börnin með þá lífsreynslu að hafa séð á einu bretti ýsu, lýsu og pólitíska strengjabrúðu LÍÚ. Það kæmi mér ekki á óvart, að þessi tugur nemenda úr Lindarskóla, sem kynnti sér sjávarútveg og sjávarútvegsráðherra í gæri, þiggi áfallahjálp í dag.
Það sem Íslendingar lifa á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2007 | 07:40
Tökum Færeyjar með hervaldi strax
Í dag er sorg í Færeyjum. Enda full ástæða til. Færeyingar lentu semsé í þeirri ógæfu í gær að tryggja hægri stjórninni í Danmörku áframhaldandi líf með því að álpast til að kjósa fólið Edmund Joensen á Danska þingið. Þessi forstokkaða breytni frænda okkar í Færeyjum vekur upp ýmsar áleitnar spurningar. Eigum við íslendingar t.d. að taka því þegjandi að færeyingar fari svona heimskulega að ráði sínu? Er ekki kominn tími til að við látum til skarar skríða og látum verða af því að láta gamlan draum okkar rætast og hertaka Færeyjar og innlima þær í hið íslenska lýðveldi? Það væri útrás sem talandi væri um. Auðvitað kemur ekki til mála að færeyingar fái að taka þátt í Alþingiskosningum herraþjóðarinnar, þeirra hlutverk verður að aðstoða okkur við að reisa virkjanir og álver, puða í fiskvinnslum vorum og róa til fiskjar fyrir ásættanlega þóknun fyrir vora ástsælu sægreifa og kvótafíkla. Það er því ekki eftir neinu að bíða með að senda Landhelgsisgæsluna, víkingasveitina, friðargæsluliðana og sýslumanninn á Selfossi til innrásar- og innlimunarstarfa í Færeyjum.
Joensen tryggir Fogh meirihluta á danska þinginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2007 | 21:56
Veðravíti eineltis
Þeir eru aldeilis gamansamir þarna á Veðurstofunni þykir mér. Glæpurinn er að engu orðinn hjá þeim fyrst að það eru bara 12% sem hafa orðið fyrir veðravíti eineltis hjá stofnuninni, en ekki 28% eins og fréttastofa Páls Magnússonar og Björgúlfs tilkynnti á laugardaginn. Þar með er ljóst orðið, að Veðurstofa Íslands er blásakaus af einelti, þar sem einungir 12 af hundraði hafa verið eineltir þar innan dyra. Annars minnir þessi veðurstofugauragangur mig á Wolfgang morðingja. Eitt sinn vék maður sér að honum í samkvæmi og spurði hann afdráttarlaust, hvort það væri rétt að hann hefði drepið fimm menn um ævina. - Það er helvítis lýgi, orgaði Wolfgang þá upp yfir sig, - ég hef ekki drepið nema tvo ! Svo geta menn velt fyrir sér hvað þarf að einelta marga til að það geti kallast einelti og hvað maður þarf að drepa marga menn til að hjóta nafnbótina morðingi.
Veðurstofan er góður vinnustaður" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2007 | 18:59
Frábær árangur í áfengisneyslu
Það er alltaf ánægjulegt þegar íslendingar ná árangri á einhverju sviði. Og árangur íslendinga í alkóhólþambi er ekki bara árangur, heldur stórkostlega framúrskarandi árangur, landi og þjóð til mikils sóma. 65% aukning í faginu á aldarfjórðungi er sko engin hégómi heldur fagur vitnisburður um kraftmikið víkingablóð í æðum frjálshuga þjóðar. Kunningi minn einn, GJH að nafni, er dæmigerður íslendingur hvað þetta varðar. Hann hann hefur fylgt þróununni og bætt á sig þessum 65% í brennivíni á umræddum tíma, þrátt fyrir að vandséð væri að hann gæti í nokkru bætt um betur fyrir 25 árum síðan. En minn maður hefur sem sé sannað á glæsilegan hátt að lengi er hægt að gera gott ástand betra og betra og skilar nú sínum 158 alkóhóllítrum á ári, án nokkurra erfiðismuna.
Áfengisneysla jókst um 65% á Íslandi á aldarfjórðungi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2007 | 12:51
Kommúnistaávarpið verður jólagjöfin í ár
Óttalegir ekkesens blábjánar eru þetta í jólagjafanefndinni, að gera sér í hugarlund að GPS staðsetnigartæki verði jólagjöfin í ár. Heldur blessað fólkið, að landsmenn séu orðnir svo villtir í góðæri ríka fólksins, að enginn rati orðið hjálparlaut á milli herbergja? Ef að ég ætti að segja fyrir um jólagjöf ársins myndi ég hikaust mæla með Kommúnistaávarpinu eftir þá félaga Karl Marx og Friðrik Engels. Mörgum villuráfandi sauðinum veitti sannarlega ekki af, að eyða dögunum milli jóla og nýárs í að lesa umrætt ávarp vel og vandlega. Ekki síst ættu þeir að festa sér vel í minni síðustu sex setningar Kommúnistaávarpsins, sem eru svo hljóðandi í nafni Marx og Engels: ,,Kommúnistar hirða ekki um að leyna skoðunum sínum og ætlunum. Þeir lýsa því yfir afdráttarlaust, að takmarki þeirra verði því aðeins náð, að allri þjóðfélgsskipan verði steypt af stóli með valdi. Lofum hinum drottnandi stéttum að skjálfa fyrir kommúnistabytingu. Þar hafa öreigarnir engu að týna nema hlekkjunum. Þeir eiga heilan heim að vinna. Öreigar allra landa sameinist ! "
Jólagjöfin í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2007 | 07:39
Kókjólasveinarnir, Björgólfur, Hannes, Finnur, Jóhannes í Bónus og Glitnir
Þeir láta ekki að sér hæða hevískir kókjólasveinarnir. Og svo ósvífnir eru þeir, að þeir kalla sig íslenskum jólasveinanöfnum eins og ekkert sé sjálfsagðara. Ef þeir kölluðu sig Björgólf í ölinu, Hannes Smárason, Jóhannes í Bónus, Finn Ingólfsson og Glitni en ekki Stekkjastaur eða Giljagaur, mætti fyrirgefa þessum eldrauðu auðvaldsþorpurum því það er alltaf viðkunnanlegara menn kalli sig nöfnum við hæfi. Svo trúi ég svona rétt mátulega, að síkáti miljónamæringurinn, sem segist heita Stekkjastaur og vera staddur í helli á Suðurlandi, hafi verið með heitt kakó í bollanum sínum þegar blaðamaður hafði samband við hann í gær. Ætli þrjóturinn hafi ekki verið með landabrugg í bollanum eins og venjulega og auk þess verið á kvennafari þegar hann spjallaði við blaðamannsgreyið. En eitt er víst: Rekist ég á kókjólasvein, sem þykist heita Kertasníkir eða Gluggagægir, fyrir þessi jól, skal sá þokkapiltur hafa meira en verra af. Ég skal sem sé taka kvikindið og innrita hann í fémínístaskor Háskóla Íslands og sjá til þess að hann eigi þaðan aldrei afturkvæmt.
Jólasveinar moka inn milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2007 | 21:13
Stríðsglæpamenn halda friðarráðstefnu !
Ja hvur djöfullinn ! Stríðshyskið í Wasington að halda friðarráðstefnu ! Allur andskotinn er nú til ! Það virðist algjörlega óendanlegt, hvað hægt er að ganga langt í hræsni. Það hlýtur að vera bjargföst trú illmennana Geogs W. Bush og Condom Lessu Ræs, að íbúar heimsins séu fávitar upp til hópa, ef ekki eitthvað þaðan af verra. Að þessir forhertu morðhundar skuli taka sér orðið frið í munn er nógu afleitt af þeirra hálfu, en að þau ætli að halda friðarráðstefnu slær öll met í ógeðfelldri óskammfeilni. Hvað ætli allur sá aragrúi fólks sem liggur dauður í valnum fyrir tilstilli bandaríkjamanna myndi segja um friðarráðstefnu Bush og Ræs ef það mætti mæla?
Condoleezza Rice undirbýr friðarráðstefnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 67
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1539508
Annað
- Innlit í dag: 58
- Innlit sl. viku: 192
- Gestir í dag: 55
- IP-tölur í dag: 55
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007