Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, janúar 2008

Lćknisvottorđ uppá lygaveiki

Í gćrkvöldi gaf Dagur B. Eggertsson lćknir út lćknisvottorđ ţess efnis ađ Ólafur F. Magnússon lćknir sé lygalaupur. Ţví miđur er ég ekki svo kunnugur lćknisfrćđi og lćknisvottorđum ađ ég geti fullyrt hvort hćgt sé ađ dćma menn óvinnufćra sökum lygaveiki, en ţađ liggur samt í augum uppi ađ krankleiki á borđ viđ ósannsögli er fremur hvimleiđur sjúkdómur, nema ef til vill í stjórnmálum ţar sem snjallir lygarar eru metnir ađ verđleikum. Svo getur ţađ náttúrlega gerst ađ menn og konur geta orđiđ svo heltekin af illvígum lygasjúkdómi ađ ţau verđi gjörsamlega óvinnufćr. Ţess vegna legg ég til ađ skipuđ verđi nefnd lćkna sem fái ţađ hlutverk ađ meta meintan skort Ólafs F. Magnússonar á sannleiksást og enn fremur hvort ekki geti veriđ hćttulegt ađ láta hann ganga lausann.


mbl.is Dagur: Óvanur ţví ađ samstarfsmenn segi ekki satt
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Haltur leiđir blindan

Mikiđ ósköp voru ţeir álappalegir Vilhjálmur og Ólafur F. ţegar ţeir tilkynntu blađamönnum og alţjóđ um vel unniđ dagsverk. Ţar mátti sjá tvo útbrunna stjórnmálamenn reyna ađ klóra í vonlausan bakkann međ heila hersveit af hnífasettaliđi á bakviđ sig. Afturámóti spái ég stórtíđindum á vettvangi landsmálastórnmálanna innan skamms. Um ţađ vitna viđtöl viđ Ögmund Jónasson, Valgerđi Sverrisdóttur og Dag B. Eggertsson í sjónvarpinu í kvöld.
mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Samfylking sparki Íhaldinu úr ríkisstjórn

Mikiđ eru nú Reykvíkingar heppnir međ bćjafulltrúa hjá sér. Ekki er annađ ađ sjá en ţađ séu allnokkuđ fleiri í ţeim fríđa hópi en Björn Ingi sem ganga dags daglega um međ hnífasett ţess albúnir ađ reka hvuta sína á kaf í bakiđ á nćsta kollega. Ţađ vćri mikiđ gustukarverk ađ afvopna ţessa skćruliđa og eiginhagsmunaseggi međ ţví ađ efna til borgarstjórnarkosninga nú ţegar. Ef einhver döngun og dirfska vćri í Samfylkingunni ćtti hún skilyrđislaust leita hefnda fyrir Dag og hans fólk međ ţví ađ fleygja Sjálfstćđisflokknum eins og sullaveikum hundi út úr ríkisstjórn og mynda nýjan meirihluta á Alţingi međ VG og Framsóknarflokki.


mbl.is Nýr meirihluti í Reykjavík
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Styđja orđljóta götustráka

Ţađ vekur vissulega furđu ađ gleđipinnarnir í SÚS skuli verja sínum merkilega tíma í ađ mótmćla ţví ađ einhverjir orđljótir glćfrapjakkar og götustrákar í Hvíta-Rússlandi séu teknir úr umferđ. Eđa eru SÚSarar međmćltir ţví ađ rustafengnir óknyttadrengir fái ađ valsa um götur og gangstéttir hreytandi dónaskap og hávađa framaní saklausa vegfarendur? Ef svo er, má fastlega búast viđ ađ litlir, vansgreiddir prumphanar međ ţverslaufur fari ađ abbast uppá fólk í miđborg Reykjavíkur međ kjaftsteytingi og skítaskap. Nćr vćri ţeim andríku frjálshyggjupottormum í SÚS ađ glíma viđ ađ mótmćla pólitískum ráđningum í heimalandi sínu, einkavinavćđingu og botnlausri fjármálaspillingu.   


mbl.is SUS mótmćlir handtökum í Hvíta-Rússlandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ölvađir framsóknarmenn í slagsmálum

Ţegar ég sá fyrirsögnina ađ međfylgjandi frétt varđ mér fyrst fyrir ađ halda ađ ţar vćri á ferđinni enn eitt birtingarformiđ á innanbúđarfangbrögđunum í Framsóknarfjósinu. En í ţví ágćta fjósi stunda menn handalögmál í flórnum, fullir jafnt sem ófullir. Svo kom á daginn ađ ţarna hefđu bara ofurölvi njarđvíkingar ađ basla viđ ađ slást. Ţađ ţótti mér skítt. Ţó er ekki öll nótt úti enn međ ađ hinir kappsömu njarđvíkingar séu eftir allt saman góđir framsóknarmenn sem hafi lent í hári saman útaf sérlegum sparikosningafötum Björns Inga, búrsöxum hans og hnífapörum. Ţó má vel vera ađ hinir druknu útnesjamenn hafi veriđ ađ slást út af kvenmanni - sem er svo sem ágćtt útaf fyrir sig. Ég verđ ţó ađ viđurkenna ađ mér finnst fyrri tilgátan samt mun betri og sennilegri.
mbl.is Ofurölvi í slagsmálum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Friđarhöfđingi rćđst á sćrđan mann

Er nú ekki gamli rafturinn Halldór Ásgrímsson á sjó dreginn til ađ kynda betur undir bálinu í Framsóknarfjósinu sem var ţó alelda fyrir. Og hinn roskni kvótahöfđingi er ekkert ađ liggja á liđi sínu heldur hjólar beint í sćrđan liđţjálfa sem liggur gólandi í valnum međ fjöld búrhnífa í bakinu eftir dáindissveininn Björn Inga sem af einhverjum ástćđum virđist vera sérdeilis hjartfólginn hinum mikla jarli sem einhverjir bjartsýnismenn héldu fram ađ vćri sestur í ,,friđarstól." Ţađ er ţá aldeilis ,,friđarstóllinn atarna."  
mbl.is Ómakleg framganga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Grafreitur jarđsunginn

Lengi hefi ég vađiđ ţá villu í heimsku minni, ađ ţađ sé bara fólk, já og í einstaka tilfelli sárlega syrgđ gćludýr, sem eigi ađ fá ađ hvíla í friđi í grafreitum sínum. Nú kemur á daginn, og ţađ úr munni sjálfs Börns Bjarnasonar kirkjumálaráđherra, ađ ţađ eru grafreitirnir sjálfir sem eiga ađ hvíla í friđi. Af orđum kirkjumálaráđherra má skiljast, ađ hann, ásamt Öszuri vini sínum og öđrum međreiđarsveinum í Ţingvallanefdinni góđkunnu, hafi fyrir margt löngu boriđ Ţjóđargrafreitinn á Ţingvöllum til grafar međ hefđbundnum yfirsöng klerka og óskum um ađ hinn burtliđni grafreitur fái um alla framtíđ ađ hvíla í friđi. Ef ţannig er í pottinn búiđ er náttúrlega fráleitt raska ró hins látna grafreitar međ ţví ađ slaka oní hann dánu fólki, hversu geníalt sem innihald ţess hefur veriđ í lifanda lífi, eins og félagi Ţórbergur hefđi sagt.  
mbl.is Grafreiturinn fái ađ hvíla í friđi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

En ţegar hann var fleingdur ...

Ţegar hann var hýddur spratt hýđingin af nauđsyn, ţađ var réttlćtiđ ... En ţegar hann var fleingdur, ţá var hann aldrei flengdur mjög mikiđ, bara dulítiđ, af ţví ađ réttlćti guđs er óumflýanlegt. Guđ refsar öllum sem svíkjast um ... 
mbl.is Reiddist ţegar snjó var kastađ í bílinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Guđjón Ólafur skorađi grimmt í Silfrinu

Ég gat ekki betur heyrt á Guđjóni Ólafi í Silfri Egils en ađ bréfiđ góđa sem hann sendi flokkssystkynum sínum til hugleiđingar á dögunum hafi allsekki veriđ vanhugsađ af hans hálfu, heldur ţvert á móti hafi ţađ veriđ vel ígrundađ og saman sett af gefnu tilefni. Satt ađ segja fór Guđjón Ólafur á kostum í Silfrinu og mátti Egill Helga klippa á viđtaliđ fyrr en ráđ var fyrir gert ţví viđ sjálft lá ađ hann fćri ađ skellihlćgja upphátt hvađ eftir annađ á međan spjallgestur hans lét móđann mása.
mbl.is Segja bréf til framsóknarmanna vanhugsađ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ónotalegt dauđastríđ gamallar konu

Heldur virđist heilsa blessađrar Framsóknarmaddömunnar fara hrakandi, enda nírćđ orđin, fótfúin og hjartveik. Svona lagađ er kallađ öldrunarsjúkdómar og eru, einsog dćmin sanna, illviđráđanlegir og eiga ţađ sameiginlegt ađ enda allir á sama veg. Ofan á áđurnefnda öldrunarsjúkdóma hefur svo gamla maddaman mátt stríđa hin síđari ár viđ skćđan iđrasjúkdóm sem virđist öđru fremur ćtla ađ fćkka nokkuđ hérvistadögum gömlu konunnar. Nú síđast lagđist Maddaman í lokrekkju sína međ heiftarlegt iđratak og hefur ekki getađ fylgt fötum síđan. Ţađ sem lagđi ţá gömlu öđru fremur í bóliđ ađ ţessu sinni og olli iđratakinu var ađ innanmeiniđ Guđjón Ólafur, fyrrumţingmađur, tók sig til og skrifađi bréf í sínum anda í ţúsundatali sem hann spúđi síđan eins og skítadreifari út um allan framsóknarlíkamann. Auđvitađ hefur innspýting af ţessu tagi eiturverkandi áhrif á gamlan kropp. Og er nú svo illa komiđ ađ meira ađ segja elsku drengurinn Björn Ingi Borgarfulltrúi er kominn á fremsta hlunn međ strjúka út um tađhúsdyrnar á haughúsi Framsóknarfjóssins og yfirgefa ţar međ Maddömuna nírćđu á ögurstund. Og víst er um ţađ ađ Mađurinn Međ Ljáinn er farinn ađ stjákla óţolinmóđur um á fjósstéttinni Framsóknar, ţess albúinn ađ líkna gömlu konunni.       
mbl.is Björn Ingi úr Framsóknarflokki?
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband